Ábyrgðadeild fiskeldislána
Miðvikudaginn 14. mars 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Þótt ég hefði fremur kosið að viðskiptabankarnir tækju sinn þátt í afurðalánum til fiskeldis eins og til var ætlast í upphaflegri útgáfu frv., tel það að öllu leyti eðlilegra, og ég efist reyndar um að þessi breyting verði fiskeldinu mjög til góðs, hún kann að draga úr vilja viðskiptabankanna til að taka eðlilegan þátt í þessu máli, þá vil ég þó stuðla að samkomulagi um þetta mikilvæga frv. svo það nái fram að ganga og segi já.