Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Vegna orða hv. 3. þm. Vesturl. skal það viðurkennt að full ástæða hefði verið til þess. Forseti hefur verið fremur tregur til að víta hv. þingmenn og vissulega hafa komið tilvik áður þar sem litlu hefur munað. En forseti hefur tekið þá afstöðu að yfir skuli forseta ganga ef til þess kemur.