Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Herra forseti. Skv. lögum nr. 7/1975 hafa alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, frá 1972 og 1981, haft lagagildi hér á landi. En árið 1987 voru gerðar breytingar á reglunum sem gerð er grein fyrir í greinargerð með frv. þessu.
    Með þessu frv. er lagt til að lögum nr. 7/1975 verði breytt til þess að þessar breytingar fái lagagildi. Enn fremur er texti svokallaðrar 26. reglu, d-liður, leiðréttur.
    Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.