Frsm. heilbr.- og trn. (Stefán Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir nál. heilbr.- og trn. á þskj. 830 um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 76/1982, um lyfjadreifingu, með síðari breytingum. Þar segir:
,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og kannað umsagnir þær er heilbrigðis- og trygginganefnd neðri deildar bárust. Lagt er til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Guðmundur H. Garðarsson og Karl Steinar Guðnason voru fjarverandi afgreiðslu málsins.``
Undir nefndarálitið rita Stefán Guðmundsson, Salome Þorkelsdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir og Jóhannes Geir Sigurgeirsson.