Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Forseti (Geir H. Haarde):
    Forseti vill láta þess getið að þar sem nú er komið miðnætti er nú lokið þeim fundartíma sem tilkynnt var í upphafi starfa í deildinni í dag að ætlunin væri að ráðstafa til kvöldfundar. En þar sem aðeins einn ræðumaður er á mælendaskrá vill forseti freista þess að ljúka umræðunni á þessum fundi.