Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Það hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að forsrh. komi hér í salinn. Hann mun vera rétt ókominn. Ég bið þingmenn um að hafa biðlund.
Hv. 1. þm. Suðurl. hefur nú þegar talað tvisvar í þessu máli svo að forseti stendur frammi fyrir því að víkja aðeins frá þingsköpum til þess að gefa honum tækifæri í formi athugasemdar að endurtaka þessar stuttu fyrirspurnir til hæstv. forsrh.