Gjald af erlendum lánum vegna skipasmíða
Mánudaginn 30. apríl 1990


     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Þegar þetta mál var tekið út úr nefndinni var ég ekki viðstödd nefndarfund og var þess reyndar getið á nál. meiri hl. En eftir að hafa hlustað á rökstuðning hv. flm. finnst mér að koma þurfi til móts við þann vanda sem hann lýsir þar og ef ekki kemur annað fram í þessu máli til lausnar á þeim vanda tel ég eðlilegt að styðja þetta mál.