Valgerður Sverrisdóttir:
Hæstv. forseti. Í fjarveru frsm. menntmn. Ed. mæli ég fyrir nál. um Launasjóð stórmeistara í skák á þskj. 1121.
Nál. hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess með þeim breytingum sem gerðar voru á því í Nd.``
Undir nál. rita Eiður Guðnason, Guðrún Agnarsdóttir, Halldór Blöndal, Salome Þorkelsdóttir, Jón Helgason, Skúli Alexandersson og Valgerður Sverrisdóttir.