Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 8 . mál.


Sþ.

8. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um húshitunarkostnað.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



1.     Hversu mikill munur er á húshitunarkostnaði sambærilegs íbúðarhúsnæðis hjá viðskiptavinum Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða annars vegar og Hitaveitu Reykjavíkur hins vegar?
2.     Hversu mikið yfirtók ríkissjóður í sumar af skuldum Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða og hve mikið lækkaði raforkuverð vegna þessara aðgerða?
3.     Til hvaða annarra aðgerða ætlar ríkisstjórnin að grípa á næstunni til að jafna húshitunarkostnað?