Ferill 175. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 175 . mál.


Sþ.

198. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um endurgreiðslu á sérstöku gjaldi af erlendum lántökum.

Frá Halldóri Blöndal.



1.    Hversu hljóðar samþykkt ríkisstjórnar um að ekki skuli greitt sérstakt gjald af erlendum lántökum vegna viðhalds og endurbóta á fiskiskipum, unnum hér á landi, sbr. ummæli viðskiptaráðherra í efri deild 10. maí 1989?
2.    Hvaða dag var samþykkt ríkisstjórnarinnar gerð?
3.    Hversu hefur framkvæmd samþykktarinnar verið háttað og hvernig hefur hún verið kynnt?
4.    Hefur komið til endurgreiðslu samkvæmt samþykktinni?