Ferill 366. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 366 . mál.


Ed.

627. Frumvarp til laga



um veitingu ríkisborgararéttar.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)



1. gr.

    Ríkisborgararétt skulu öðlast:
1.     Alwood, John Nathaniel, tölvufræðingur í Mosfellsbæ, f. 13. september 1958 í Englandi.
2.     Andersen, Jakob Andreas, uppeldisfulltrúi í Reykjavík, f. 8. október 1952 í Danmörku.
3.     Cummings, Roger, uppeldisfulltrúi í Reykjavík, f. 18. apríl 1950 í Englandi.
4.     Eichmann, Kurt Willi, sjómaður í Reykjavík, f. 23. desember 1948 í Þýska alþýðulýðveldinu.
5.     Haugen, Herborg Laufey Ólafsdóttir, verkakona í Reykjavík, f. 10. janúar 1919 á Íslandi.
6.     Jón Hannesson, verkamaður í Reykjavík, f. 1. júní 1926 á Íslandi.
7.     Krasinska, Ewa Barbara, húsmóðir á Egilsstöðum, f. 12. ágúst 1956 í Póllandi.
8.     Nardini, Tino, matargerðarmaður í Reykjavík, f. 17. ágúst 1953 á Ítalíu.
9.     Pape, Greta Hólmfríður, húsmóðir í Reykjavík, f. 25. mars 1961 í Bandaríkjum Norður-Ameríku.
10.     Rosdahl, Björn Snorri, barn í Reykjavík, f. 30. október 1978 á Íslandi.

2. gr.


    Nú fær maður, sem heitir erlendu nafni íslenskt ríkisfang með lögum, og skulu þá börn hans, fædd síðan, heita íslenskum nöfnum samkvæmt lögum um mannanöfn, en hann skal, þá er hann hlýtur íslenskt ríkisfang, taka sér íslenskt eiginnafn — ásamt því sem hann ber fyrir — er börn hans taka sem kenningarnafn. Honum skal þó heimilt, ef hann kýs heldur, að breyta svo eiginnafni sínu að það fullnægi kröfum laga um mannanöfn.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Umsækjendur þeir, sem teknir hafa verið á lagafrumvarp þetta, fullnægja skilyrðum sem sett hafa verið af allsherjarnefndum beggja þingdeilda.
    Frumvarp þetta er annað frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem borið er fram á yfirstandandi löggjafarþingi. Fyrra frumvarpið hlaut afgreiðslu fyrir miðsvetrarhlé.