Ferill 7. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 7 . mál.


Nd.

648. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið um það umsögn frá Menningar- og fræðslusambandi alþýðu. Þá studdist nefndin við umsagnir frá síðasta þingi frá Tryggingastofnun ríkisins, Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Öryrkjabandalagi Íslands og Kvenfélagasambandi Íslands. Jafnframt kom Finnur Ingólfsson, formaður endurskoðunarnefndar almannatryggingalaga, á fund nefndarinnar.
    Þar sem nefndinni er kunnugt um að efni þessa frumvarps verður í tillögum sem endurskoðunarnefnd almannatryggingalaga mun brátt skila frá sér leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 21. febr. 1990.



Jón Sæmundur Sigurjónsson,


form., frsm.


Anna Ólafsdóttir Björnsson,


fundaskr.


Geir H. Haarde.


Geir Gunnarsson.


Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.


Guðmundur G. Þórarinsson.


Ragnhildur Helgadóttir.