Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 428 . mál.


Nd.

748. Frumvarp til laga



um grunnskóla.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)



I. KAFLI

Markmið og skólaskylda.

1. gr.

    Ríki og sveitarfélögum er skylt að halda skóla fyrir öll börn og unglinga á aldrinum 6 til 16 ára eftir því sem nánar segir í lögum þessum. Skóli þessi nefnist grunnskóli. Öllum börnum og unglingum á framangreindum aldri er skylt að sækja skóla en frá því má þó veita undanþágu, sbr. 5., 7. og 8. gr.
    Sveitarfélögum eða einkaaðilum er óheimilt að reka skóla fyrir börn undir skólaskyldualdri nema með leyfi menntamálaráðuneytisins.
    Þegar tilgreindur er aldur nemanda í lögum þessum miðast hann við það almanaksár er nemandinn nær nefndum aldri.

2. gr.

    Hlutverk grunnskólans, í samvinnu við heimilin, er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Starfshættir skólans skulu því mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á kjörum fólks og umhverfi, á íslensku þjóðfélagi, sögu þess og sérkennum og á skyldum einstaklingsins við samfélagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að fjölbreyttum þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins.
    Grunnskólinn skal veita nemendum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og til þess að temja sér vinnubrögð sem stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal því leggja grundvöll að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra.

3. gr.

    Grunnskóli er tíu ára skóli.
    Hverjum grunnskóla má skipta í einingar með ákvörðun hlutaðeigandi sveitarstjórna og samþykki menntamálaráðuneytisins. Stefnt skal að því að hver grunnskóli sé heildstæður og einsetinn og nemendur séu ekki fleiri en 650.

4. gr.

    Í strjálbýli skal stefnt að heimanakstri nemenda en ekki heimavist. Óheimilt er að láta börn yngri en tíu ára dvelja í heimavist nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi að mati fræðslustjóra. Sveitarstjórn er heimilt að koma á fót skólaseljum frá aðalskóla, að fengnu samþykki menntamálaráðuneytis.

5. gr.


    Skólanefnd getur borið fram við fræðslustjóra rökstudda beiðni um tímabundna undanþágu frá því að uppfylla að fullu ákvæði 1. gr. þessara laga um skólaskyldu eða lágmarksákvæði 41. gr. um starfstíma skóla. Að fenginni tillögu fræðslustjóra úrskurðar menntamálaráðuneytið hvort eða að hve miklu leyti slík undanþága skuli veitt.

6. gr.

    Forráðamaður skólaskylds barns ber ábyrgð á að barnið innritist í skóla þegar það kemst á skólaskyldualdur og að það sæki skólann. Verði verulegur misbrestur á skólasókn skólaskylds barns án þess að veikindi eða aðrar gildar ástæður hamli skal skólastjóri reyna að leysa málið í samvinnu við ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu og skólanefnd. Takist það ekki skal málinu vísað til fræðslustjóra. Vilji forráðamaður barnsins ekki hlíta ákvörðun fræðslustjóra getur hvor aðili um sig vísað málinu til barnaverndarnefndar.

7. gr.

    Undanþegin því að sækja grunnskóla skv. 1. gr. eru:
a.    börn sem sækja viðurkennda einkaskóla, sbr. 72. gr.,
b.    börn er búa í skólahverfum sem fengið hafa undanþágu skv. 5. gr.

8. gr.


    Sæki forráðamaður skólaskylds barns um tímabundna undanþágu barnsins frá skólasókn er skólastjóra heimilt að veita slíka undanþágu, í samráði við umsjónarkennara, telji hann til þess gildar ástæður. Fræðslustjóra skal gert viðvart um slíkar undanþágur.

II. KAFLI

Stjórn grunnskóla.

9. gr.

    Menntamálaráðuneytið fer með yfirstjórn þeirra málefna er lög þessi taka til.
    Grunnskólaráð er samstarfsvettvangur menntamálaráðuneytisins og þeirra aðila er starfa að málefnum grunnskólans. Verkefni þess eru m.a. að hafa yfirlit yfir lög og reglur sem varða grunnskóla, gefa ráð um lagfæringar á þeim og samræmi á milli þeirra. Grunnskólaráð fylgist með framkvæmd grunnskólalaga og aðalnámsskrár, veitir ráðgjöf og mótar stefnu um samræmi í starfi þeirra sem vinna að skólamálum.
    Ráðið skal skipað níu fulltrúum. Tveimur fulltrúum kennarasamtaka og skal annar þeirra vera skólastjórnandi, einum fulltrúa foreldrafélaga eða samtaka þeirra, einum fulltrúa Kennaraháskóla Íslands, einum fulltrúa Háskóla Íslands, einum fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, einum fulltrúa Námsgagnastofnunar auk tveggja fulltrúa menntamálaráðuneytisins og skal annar þeirra vera fræðslustjóri. Jafnmargir skulu tilnefndir til vara.
    Grunnskólaráð skal skipað til tveggja ára í senn. Menntamálaráðuneytið setur grunnskólaráði erindisbréf, kveður nánar á um skipun þess, starfstilhögun og starfssvið. Ráðuneytinu til aðstoðar við fjárhagslega framkvæmd laganna skal vera samstarfsnefnd, skipuð tveimur fulltrúum frá menntamálaráðuneytinu og tveimur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Skal hún fá til umsagnar reglugerðir sem varða fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga samkvæmt lögum þessum áður en þær eru gefnar út. Enn fremur fái hún til umsagnar ágreiningsatriði, sem kunna að koma upp varðandi þessi samskipti, áður en þau koma til úrskurðar.
    Nefndin skal skipuð til fjögurra ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt og aðalmenn.

10. gr.

    Landið skiptist í fræðsluumdæmi sem hér segir:
1.    Reykjavíkurumdæmi sem nær yfir Reykjavík.
2.    Reykjanesumdæmi sem nær yfir Gullbringu- og Kjósarsýslu, Hafnarfjörð, Keflavík, Grindavík, Njarðvík, Garðabæ, Seltjarnarnes, Kópavog og Mosfellsbæ.
3.    Vesturlandsumdæmi sem nær yfir Borgarfjarðarsýslu, Akranes og Borgarnes, Mýrasýslu, Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, Ólafsvík, Stykkishólm og Dalasýslu.
4.    Vestfjarðaumdæmi sem nær yfir Austur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Ísafjarðarsýslu, Ísafjörð, Bolungarvík, Norður-Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu.
5.    Norðurlandsumdæmi vestra sem nær yfir Vestur-Húnavatnssýslu, Austur-Húnavatnssýslu, Blönduós, Skagafjarðarsýslu, Sauðárkrók og Siglufjörð.
6.    Norðurlandsumdæmi eystra sem nær yfir Eyjafjarðarsýslu, Akureyri, Ólafsfjörð, Dalvík, Suður-Þingeyjarsýslu, Húsavík og Norður-Þingeyjarsýslu.
7.    Austurlandsumdæmi sem nær yfir Norður-Múlasýslu, Seyðisfjörð, Suður-Múlasýslu, Neskaupstað, Eskifjörð, Egilsstaði, Austur-Skaftafellssýslu og Höfn.
8.    Suðurlandsumdæmi sem nær yfir Vestur-Skaftafellssýslu, Vestmannaeyjar, Rangárvallasýslu, Árnessýslu, Selfoss og Hveragerði.
    Í hverju fræðsluumdæmi skal vera fræðsluráð og fræðsluskrifstofa.

11. gr.


    Fræðsluráð skal skipað fimm eða sjö mönnum, sem kjörnir eru af sveitarstjórnum eða samtökum sveitarfélaga í hlutaðeigandi fræðsluumdæmi. Jafnmargir skulu kjörnir til vara. Um kosningu og starfshætti fer eftir meginreglum sveitarstjórnarlaga, nr. 8/1986.
    Í reglugerð skal kveðið á um fundi fræðsluráðs og starfssvið og um fundarsetu fræðslustjóra, skólastjóra, fulltrúa kennara, fulltrúa foreldra og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka, svo og annarra aðila, t.d. fulltrúa sveitarfélags er sérstaklega á hlut að tilteknu máli. Kennarafulltrúar skulu boðaðir til funda á sama hátt og fræðsluráðsmenn og hafa sama rétt og þeir til að æskja funda í fræðsluráði.
    Þessir aðilar skulu hafa málfrelsi og tillögurétt á fræðsluráðsfundum.
    Kostnaður vegna fræðsluráða greiðist af viðkomandi sveitarfélögum eða samtökum þeirra.

12. gr.

    Fræðsluráð fjallar um og fer með sameiginleg málefni sveitarfélaga á sviði skólamála í hlutaðeigandi fræðsluumdæmi.
    Fræðsluráð markar stefnu um málefni grunnskóla í hlutaðeigandi fræðsluumdæmi í samvinnu við fræðslustjóra. Fræðsluráð getur falið fræðslustjóra að annast framkvæmdastjórn fyrir ráðið.
    Fræðsluráð hefur samvinnu við skólanefndir í umdæminu og samræmir störf þeirra. Ráðið fer að öðru leyti með þau mál sem hlutaðeigandi sveitarstjórnir fela því eða ákveðin kunna að verða í reglugerðum settum samkvæmt lögum þessum.

13. gr.

    Menntamálaráðuneytið auglýsir stöðu fræðslustjóra og ræður í stöðuna, að fengnum umsögnum hlutaðeigandi fræðsluráðs. Við ráðningu fræðslustjóra er skylt að taka tillit til kennslufræðilegrar menntunar umsækjenda, stjórnunarreynslu þeirra innan skólakerfisins og þekkingar á skólamálum. Menntamálaráðuneytið setur fræðslustjórum erindisbréf.

14. gr.

    Fræðslustjóri er fulltrúi menntamálaráðuneytisins gagnvart skólamálum í umdæmi sínu og skal búsettur sem næst fræðsluskrifstofu þess. Hann er framkvæmdastjóri fræðsluráðs, sé svo um samið, og forstöðumaður fræðsluskrifstofu, sbr. 12. og 15. gr.
    Í umboði menntamálaráðuneytisins og í samvinnu við fræðsluráð hefur fræðslustjóri forgöngu um umbætur í skólamálum og eftirlit og umsjón með aðbúnaði, skipulagi og árangri skólastarfs í sínu umdæmi. Hann hefur, í umboði menntamálaráðuneytis, umsjón og eftirlit með framkvæmd laga um grunnskóla og sér til þess að nemendur njóti kennslu og þjónustu samkvæmt lögum og öðrum fyrirmælum menntamálaráðuneytis.
    Hann hefur, í umboði menntamálaráðuneytis, umsjón með eignum og rekstri þeirra skóla sem lög þessi taka til, sbr. þó 29. gr.

15. gr.

    Menntamálaráðuneytið ákveður fræðsluskrifstofu stað í samráði við viðkomandi fræðsluráð.
    Fræðslustjóri er forstöðumaður fræðsluskrifstofu. Starfsmenn fræðsluskrifstofu eru ríkisstarfsmenn. Um ráðningu og starfskjör þeirra fer eftir lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
    Verkefni fræðsluskrifstofu eru einkum þessi: áætlanagerð og eftirlit með námi og kennslu, ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta, kennsluráðgjöf, skólaþróun og endurmenntun og símenntun kennara í samráði við skóla sem veita kennaramenntun.
    Að fengnu samþykki menntamálaráðuneytisins er fræðslustjóra heimilt að semja svo við samtök sveitarfélaga, einstök skólahverfi og sveitarfélög að fræðsluskrifstofa taki að sér tiltekin verkefni fyrir þessa aðila, enda komi greiðsla fyrir. Á hliðstæðan hátt er fræðslustjóra heimilt að semja svo við samtök sveitarfélaga að skrifstofa þeirra eða einstakar starfsdeildir innan þeirra annist störf fyrir fræðsluskrifstofu, enda komi samþykki menntamálaráðuneytis til.

16. gr.

    Skólahverfi er sú eining sem stendur að einum grunnskóla eða fleiri. Sveitarfélög geta sameinast um rekstur grunnskóla og mynda þá eitt skólahverfi.
    Sveitarfélag, sem rekur tvo eða fleiri grunnskóla, telst eitt skólahverfi séu íbúar færri en 10 þúsund. Fjölmennari sveitarfélögum skal skipta í skólahverfi og annast viðkomandi sveitarstjórn þá skiptingu með samþykki menntamálaráðuneytisins. Við þá skiptingu skal miða við að íbúar í hverju skólahverfi séu að jafnaði ekki fleiri en 15 þúsund og ekki færri en 5 þúsund. Sama sveitarfélag getur átt aðild að fleiri en einu skólahverfi ef börn og unglingar á skólaskyldualdri úr viðkomandi sveitarfélagi eiga skólasókn til tveggja eða fleiri skólahverfa.

17. gr.

    Í hverju skólahverfi skal vera skólanefnd sem fer með málefni grunnskóla eftir því sem lög þessi og reglugerðir ákveða nánar.
    Skólanefnd skal kosin til fjögurra ára í senn af hlutaðeigandi sveitarstjórn eða sveitarstjórnum.
    Í sveitarfélagi, þar sem skólahverfi eru tvö eða fleiri, skulu fulltrúar í skólanefnd vera kosnir úr hópi íbúa í viðkomandi skólahverfi.
    Menntamálaráðuneytið setur skólanefndum erindisbréf er kveður nánar á um störf þeirra.

18. gr.

    Skólanefndir skulu skipaðar af sveitarstjórnum sem hér segir:
a.    Í sveitarfélögum með yfir 500 íbúa, sem standa ein að skólarekstrinum skal kjósa fimm menn.
         Eigi fleiri sveitarfélög aðild að skólahverfinu kýs hvert þeirra einn mann til viðbótar. Verði atkvæði við það jöfn skal sveitarfélagið þar sem skólinn er kjósa oddamann ef nemendur þess eru samanlagt fleiri en allra hinna. Sé svo eigi kýs það sveitarfélag skólahverfisins, sem næstflest börn átti þar skólaárið áður en kosið er, tvo menn í skólanefnd.
b.    Í öðrum sveitarfélögum, þar sem eitt sveitarfélag er skólahverfi, skal kjósa þrjá menn.
c.    Þar sem tvö sveitarfélög eða fleiri standa saman að skólahverfi með jafnri aðild árganga kýs hvert sveitarfélag einn mann. Verði tala nefndarmanna við það jöfn skulu tveir skólanefndarmenn kjörnir af því sveitarfélagi er átti flesta nemendur á grunnskólastigi á næstliðnu skólaári.
d.    Þar sem tvö sveitarfélög eða fleiri, önnur en þau sem um getur í a-lið, standa saman að skólahverfi með ójafnri aðild árganga skulu þau þeirra er eiga hlut að öllum stigum skólans kjósa tvo menn hvert í skólanefnd, en önnur einn mann. Verði atkvæði þá jöfn skal farið að sem í c-lið.
    Varamenn í skólanefndum skulu jafnmargir aðalmönnum og kosnir á sama hátt. Skólanefndir skulu kjörnar í upphafi kjörtímabils sveitarstjórna.
    Kennarar í skólahverfinu kjósa úr sínum hópi fulltrúa til að starfa með skólanefnd, kennarafulltrúa, og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á fundum.
    Þar sem stöðugildi við grunnskóla í skólahverfi eru 15 eða færri skal kjörinn einn kennarafulltrúi, en tveir þar sem stöðugildi eru 16 eða fleiri. Varamenn kennarafulltrúa skulu jafnmargir aðalmönnum.
    Skólastjórar – eða aðstoðarskólastjórar í forföllum þeirra – eiga rétt til setu á skólanefndarfundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
    Foreldrafélag eða samtök foreldra í skólahverfinu kjósa úr sínum hópi einn fulltrúa til starfa með skólanefnd. Foreldrafulltrúi hefur málfrelsi og tillögurétt á fundum.
    Að fengnum tillögum samtaka kennara á grunnskólastigi setur menntamálaráðuneytið reglur um hvernig haga skuli kosningu kennarafulltrúa samkvæmt þessari grein.
    Enn fremur setur ráðuneytið reglur um kosningu foreldrafulltrúa.

19. gr.


    Skólanefnd skal sjá um að öll skólaskyld börn í skólahverfinu njóti lögboðinnar fræðslu. Hún fylgist með og stuðlar að því að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi húsnæði og annar aðbúnaður, þar með taldar skólalóðir. Í samráði við skólastjóra lítur nefndin eftir að uppfylltar séu kröfur laga og reglugerða á þessu sviði og gerir tillögur til sveitarstjórnar um úrbætur.

20. gr.

    Skólastjóri er forstöðumaður grunnskóla og stjórnar starfi hans í samráði við kennara, skólanefnd og fræðslustjóra, en undir yfirstjórn menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið setur skólastjórum erindisbréf. Skólastjóri boðar til kennarafundar svo oft sem þurfa þykir, en þó eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði. Auk þess skal boða til slíks fundar ef þriðjungur kennara æskir þess.
    Öllum föstum kennurum skólans er skylt að sækja kennarafund þá mánuði er skóli starfar ef fundurinn fer fram á daglegum starfstíma skólans.
    Í skólum, sem eiga rétt á átta stöðugildum eða fleiri auk skólastjóra, skal almennur kennarafundur í upphafi hvers skólaárs kjósa þriggja manna kennararáð sem í umboði kennarafundar er skólastjóra til ráðuneytis um stjórn skólans. Í öðrum skólum fer almennur kennarafundur með hlutverk kennararáðs.
    Nánar skal kveðið á um framkvæmd þessarar greinar í reglugerð.

21. gr.

    Starfsmönnum skóla er skylt að efla sem mest samstarf skóla og heimila, m.a. með því að kennarar miðli fræðslu um skólamál til foreldra og veiti upplýsingar um starfið í skólanum.
    Foreldrar barna í grunnskóla, skólastjóri eða almennur kennarafundur geta óskað eftir því að stofnuð séu samtök foreldra og/eða foreldra og kennara við skólann í þeim tilgangi að styðja skólastarfið og efla tengsl milli heimila og skóla. Skólastjóri skal þá boða til stofnfundar slíkra samtaka.
    Fulltrúi foreldrafélags á rétt til setu á kennarafundum, fundum skólanefnda og fræðsluráða með málfrelsi og tillögurétti.
    Samtökin setja sér starfsreglur.

22. gr.

    Nemendum grunnskóla er heimilt að stofna nemendaráð sem vinni m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda. Skólastjóri felur einum af kennurum skólans að aðstoða nemendaráð.
    Fulltrúi nemenda eða nemendaráðs á rétt til setu á fundum skólastjóra og kennararáðs, svo og á kennarafundum, með málfrelsi og tillögurétt, nema þegar rædd eru málefni einstakra nemenda.
    Nemendaráð hvers skóla skal setja sér starfsreglur.

III. KAFLI

Skólahúsnæði.

23. gr.

    Gerð skólamannvirkja er undirbúin heima í héraði af sveitarstjórn í samráði við skólanefnd.
    Stofnkostnaður grunnskóla greiðist af sveitarfélögum. Í hverju skólahverfi skal vera skólahúsnæði sem fullnægir þörfum grunnskóla við þær aðstæður sem þar eru. Við gerð eða breytingar skólamannvirkja skal m.a. tekið tillit til hvort nemendur ganga til skóla, er ekið þangað daglega, búa þar í heimavist eða fyrirkomulag er blandað.

24. gr.

    Eigi tvö sveitarfélög eða fleiri félag með sér um byggingu skólahúsnæðis skal miða skiptingu stofnkostnaðar við eftirtalin meginatriði, nema um annað semjist:
a.    íbúafjölda,
b.    útsvarsskyldar tekjur í sveitarfélögum næstliðið ár,
c.    þann barnafjölda sem hverju sveitarfélagi ber að senda í skólann,
d.    kennslustundafjölda samkvæmt námsskrá í þeim bekkjum sem aðild sveitarfélags miðast við.
    Eigi einungis hluti sveitarfélags aðild að viðkomandi skólahverfi skal miða a- og b-liði við þann hluta.

25. gr.


    Í skólahúsi skal, auk kennslustofa, gera ráð fyrir skólasafni; aðstöðu fyrir nemendur til náms, annarra starfa og hvíldar utan kennslustunda; aðgengi og aðstöðu fatlaðra; aðstöðu til að neyta matar; snyrtiherbergjum; skrifstofu- og vinnuherbergjum skólastjórnenda og kennara; aðstöðu til heilsugæslu, íþróttaiðkana og almennrar félagsstarfsemi í þágu nemenda; húsnæði til sérkennslu og ráðgjafarþjónustu og annars þess er lög þessi gera ráð fyrir. Ef henta þykir má ætla aðstöðu til íþrótta eða annarrar kennslu í öðru húsnæði í nágrenni skólans.
    Við gerð heimavistarskóla skal kappkostað að þeir minni sem mest á venjuleg heimili og þannig sé gengið frá að nemendur geti jafnan náð til umsjónarmanns heimavista. Menntamálaráðuneytið ákveður í reglugerð hvaða búnaður og kennslutæki skulu vera í skólum miðað við stærð þeirra og hlutverk.
    Menntamálaráðuneytið beitir sér fyrir því að gerðar verði framkvæmdaáætlanir um skólabyggingar sem miðist við einsetinn skóla.

26. gr.

    Sveitarstjórnir ákveða í samráði við hlutaðeigandi skólanefnd hvaða sérfræðingar skuli annast hönnun skólabygginga, þ.e. undirbúningsvinnu og áætlanagerð, þar með gerð uppdrátta.
    Tillöguuppdrættir að gerð skólamannvirkja skulu kynntir opinberlega í viðkomandi skólahverfi. Skólastjóri og fulltrúar kennara hvers skóla skulu vera með í ráðum við hönnun húsnæðis fyrir skólann.
    Áður en framkvæmdir hefjast skal leitað eftir samþykki menntamálaráðuneytis fyrir viðkomandi skólamannvirki. Nafn skóla er háð samþykki viðkomandi fræðsluráðs, að fenginni umsögn örnefnanefndar.

27. gr.

    Um listskreytingu skólamannvirkja fer eftir lögum nr. 34/1982, um Listskreytingasjóð ríkisins.

28. gr.

    Eðlilegt viðhald skólahúsa og búnaðar, þar á meðal endurnýjun kennslutækja, er sveitarfélögum skylt að annast á fullnægjandi hátt.
    Viðhaldskostnaður greiðist af sveitarfélögum.

29. gr.

    Dagleg umsjón og umráð skólamannvirkja, þar á meðal skólastjóra- og kennarabústaða sem eru sameign ríkis og sveitarfélaga eða í eigu sveitarfélaga einna, skal vera í höndum skólastjóra og skólanefndar í umboði sveitarstjórnar og menntamálaráðuneytisins.
    Sveitarstjórn er heimilt að ráðstafa skólahúsnæði eða hluta þess til æskulýðsstarfsemi, íþróttastarfsemi og almennrar félagsstarfsemi í þágu íbúa byggðarlagsins. Slíkt er þó aðeins heimilt að það raski í engu skólahaldi né annarri lögbundinni notkun húsnæðisins.
    Að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar getur sveitarstjórn ákveðið að skólahúsnæði sé utan venjulegs skólatíma notað til gistingar og veitingareksturs. Tekjur af eignum skóla renna til sveitarsjóða.

IV. KAFLI

Starfslið grunnskóla.

30. gr.

    Við hvern skóla, sem starfar samkvæmt lögum þessum, skal vera skólastjóri.
    Um embættisgengi skólastjóra grunnskóla gilda ákvæði laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, nr. 48/1986.
    Menntamálaráðuneytið ræður skólastjóra, að fengnum tillögum skólanefndar, kennararáðs og fræðslustjóra sem í hlut eiga.
    Verði ágreiningur milli umsagnaraðila sendir hver aðili um sig greinargerð til menntamálaráðuneytis.

31. gr.

    Í grunnskóla, sem á rétt á tíu kennurum eða fleiri í fullu starfi, auk skólastjóra, ræður menntamálaráðuneytið aðstoðarskólastjóra, að fengnum tillögum skólastjóra, skólanefndar og kennararáðs.
    Verði ágreiningur milli umsagnaraðila sendir hver aðili um sig greinargerð til menntamálaráðuneytis. Um embættisgengi aðstoðarskólastjóra gildir hið sama og um skólastjóra.
    Þar sem grunnskóli starfar í tveimur eða fleiri einingum, sem vegna aðstæðna eru ekki í sama byggðarlagi, er menntamálaráðuneytinu heimilt að ráða aðstoðarskólastjóra, að fenginni tillögu skólanefndar, skólastjóra og fræðslustjóra, enda þótt forsendur þær, sem greindar eru í 1. mgr., séu ekki fyrir hendi.
    Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og vinnur undir stjórn hans að stjórnarstörfum. Í skólum, þar sem starfa færri en tíu kennarar, ákveður skólastjóri í upphafi skólaárs í samráði við skólanefnd hver af föstum kennurum skólans skuli annast skólastjórn í forföllum hans.

32. gr.

    Skólastjóri ræður kennara, námsráðgjafa og skólasafnverði í samráði við skólanefnd, og innan heimilda fjárlaga. Verði ágreiningur milli skólastjóra og skólanefndar sendir hvor aðili um sig greinargerð til menntamálaráðuneytisins til úrskurðar. Hafi umsækjandi um stöðu kennara ekki réttindi til kennslu við grunnskóla, og ekki er völ á kennara með full kennsluréttindi, skal skólastjóri senda undanþágunefnd grunnskóla beiðni um að lausráða umsækjandann til bráðabirgða í samræmi við ákvæði laga nr. 48/1986, um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.
    Menntamálaráðuneytið staðfestir ráðningar kennara, námsráðgjafa og skólasafnvarða til starfa í skólahverfi samkvæmt lögum þessum.
    Um embættisgengi kennara fer eftir ákvæðum laga nr. 48/1986.

33. gr.

    Fræðslustjóri auglýsir stöður skólastjórnenda, kennara, námsráðgjafa og skólasafnvarða.
    Þegar skólastjóri eða kennari lætur af störfum sökum aldurs eða að eigin ósk skal hann tilkynna það skriflega til skólanefndar og næsta yfirmanns síns (fræðslustjóra eða skólastjóra) fyrir 1. febrúar. Stefnt skal að því að ráðningar í stöður kennara og skólastjórnenda fari fram eigi síðar en 1. maí ár hvert.
    Þurfi að ráða skólastjórnendur eða kennara fyrirvaralítið má ráða í starfið án undangenginnar auglýsingar, en auglýsa skal slíkar stöður svo fljótt sem unnt er.

34. gr.

    Skólastjóri ræður stunda- og forfallakennara við grunnskóla í samráði við skólanefnd, sbr. þó lög nr. 48/1986. Sveitarstjórn eða skólanefnd í umboði hennar ræður þá starfsmenn skóla er teljast starfsmenn sveitarfélaga í samráði við skólastjóra.

35. gr.

    Skólastjórar, aðstoðarskólastjórar, kennarar, námsráðgjafar og skólasafnverðir, sem ráðnir eru til starfa við grunnskóla, skulu gegna þeim samkvæmt lögum og erindisbréfi er menntamálaráðuneytið setur.
    Um vinnutíma og kjör starfsmanna grunnskóla fer eftir ákvæðum laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna og kjarasamningum stéttarfélaga eftir því sem við á.

36. gr.

    Þegar kennari nær 55 ára aldri minnkar kennsluskylda hans um 1 / 6 og er hann nær 60 ára aldri minnkar kennsluskylda hans enn um 1 / 6 af fullri kennsluskyldu. Til þess að öðlast þennan rétt þarf tíu ára kennsluferil.

37. gr.

    Í grunnskóla skal kennsla falin föstum kennurum eftir því sem við verður komið, og stundakennurum að öðru leyti, sbr. þó 13. gr. laga nr. 48/1986. Heimilt er að ráða kennara í einni eða fleiri kennslugreinum fyrir tvö eða fleiri skólahverfi samtímis til þess að fullnægja kennsluþörf ef ekki er fullt verkefni fyrir kennarann í einu skólahverfi.
    Skólastjóri við heimavistarskóla er jafnframt heimavistarstjóri. Í heimavistum skal daglegt eftirlit og umsjón með nemendum jafnframt vera í höndum kennara, fóstra eða annarra starfsmanna sem menntamálaráðuneytið viðurkennir. Kostnaður við gæslu á heimavist greiðist af hlutaðeigandi sveitarfélagi.
    Menntamálaráðuneytið setur reglugerð um störf og starfslið í heimavistum og aðbúnað nemenda þar.

38. gr.

    Fyrir hverja bekkjardeild eða sambærilegan námshóp í grunnskóla skal skólastjóri velja umsjónarkennara í samráði við kennararáð eða kennarafund. Umsjónarkennarinn fylgist sérstaklega með námi og þroska nemenda sinna, leiðbeinir þeim og leitast við að efla samstarf skóla og heimila, sbr. 21. gr.
    Skólastjóra er heimilt að fela föstum kennurum árganga- og fagstjórn, samkvæmt nánari reglum sem menntamálaráðuneytið setur um hlutverk og starfssvið umsjónarkennara, árganga- og fagstjóra.

39. gr.

    Menntamálaráðuneytið getur veitt kennara námsleyfi í allt að eitt ár til að efla þekkingu sína og starfshæfni. Leyfistímann skal nota til:
     a.    reglulegs náms í viðurkenndri menntastofnun eða
     b.    a.m.k. tveggja mánaða námsferðar sem skipulögð er og/eða boðið til af aðila eða stofnun sem menntamálaráðuneytið viðurkennir.
    Af því fé, sem veitt er á fjárlögum til að kosta námsleyfi kennara, má veita ferðastyrki og styrki til viðbótar námsleyfi. Menntamálaráðuneytinu er heimilt að auglýsa eftir umsækjendum til að leggja fyrir sig tiltekið nám gegn námsleyfi og/eða styrk.
    Enginn kennari getur á starfsævi sinni fengið hærri fjárhæð í námsleyfi og styrki en nemur tveggja ára embættislaunum.
    Að námsleyfi loknu er kennara skylt að senda ráðuneytinu skýrslu um nám sitt á leyfistímabilinu og er ráðuneytinu heimilt að birta hana.
    Námsleyfi má binda því skilyrði að sá er það hlýtur starfi að skólamálum á Íslandi í minnst þrjú ár að námi loknu.
    Ákvæði þessarar greinar gilda einnig um skólastjórnendur.
    Setja skal reglugerð sem kveður nánar á um framkvæmd námsleyfis.

40. gr.


    Til endurmenntunar skólastjórnenda og kennara á grunnskólastigi skal auk námsleyfa, sbr. 39. gr., verja fjárhæð sem til þess er ætluð á fjárlögum hverju sinni.

V. KAFLI

Starfstími grunnskóla, námsefni og kennsluskipan.

41. gr.

    Reglulegur starfstími grunnskólanemenda skal vera níu mánuðir á hverju skólaári, og hefjast 1. september, en ljúka 31. maí.
    Með hliðsjón af atvinnuháttum og aðstæðum í einstökum skólahverfum getur fræðslustjóri veitt tímabundna undanþágu frá framangreindum ákvæðum. Æski skólanefnd að hluta námsskyldu barna sé fullnægt með sumarskóla getur menntamálaráðuneytið heimilað það, að fenginni umsögn fræðsluráðs. Skipan þessara mála skal nánar ákveðin með reglugerð og skóladagatali sem ráðuneytið gefur út árlega.

42. gr.

    Menntamálaráðuneytið setur grunnskólum aðalnámsskrá. Í henni er m.a. kveðið nánar á um uppeldishlutverk grunnskólans og meginstefnu í kennslu og kennsluskipan í samræmi við hlutverk grunnskólans, sbr. 2. gr.
    Í öllu starfi skólans skal leggja áherslu á:
—    að efla sjálfsvitund og félagsvitund nemenda, stuðla að líkamlegri og andlegri velferð og heilbrigðum lífsháttum,
—    þjálfun í íslensku í öllum námsgreinum og leikræna og listræna tjáningu,
—    skilning og frjótt, skapandi starf og jafnvægi milli bóklegs og verklegs náms,
—    að námið nýtist nemendum í daglegu lífi, frekara námi og starfi,
—    að búa bæði kynin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi,
—    upplýsingatækni, margvíslegar leiðir við öflun þekkingar með notkun tæknimiðla, safna- og heimildavinnu,
—    náms- og starfsfræðslu, kynningu á atvinnulífi og námsleiðum til undirbúnings náms- og starfsvals.
    Í aðalnámsskrá skal setja meginmarkmið og ákvæði um megininntak og skipulag náms og kennslu á þessum sviðum:
    a.    Notkun móðurmálsins í ræðu og riti, lestur íslenskra bókmennta og umræða um mál og málnotkun.
    b.    Hugtök og táknmál í stærðfræði, stærðfræði í daglegu lífi, meðhöndlun stærða og talna og leikni í röksemdafærslu.
    c.    Listgreinar, fagurskyn, listhneigð og hagleikur, einkum í mynd- og handmennt og tónmennt.
    d.    Heimilishald, heimilisrækt, neysla og hollusta.
    e.    Líkams- og heilsurækt, skyndihjálp, íþróttir, sund og dans.
    f.    Eðli lifandi og lífvana náttúru, tækni og gagnkvæm áhrif manns og umhverfis.
    g.    Mannlegt samfélag, samfélagshættir, umheimur og umhverfi nær og fjær í fortíð og nútíð, einkum með hliðsjón af Íslandi.
    h.    Kristin trú og siður, önnur trúarbrögð og almenn lífsgildi.
    i.    Erlend tungumál, að skilja og tjá sig á einu Norðurlandamáli og ensku og kynnast menningu viðkomandi þjóða.
    Í aðalnámsskrá skal nánar kveðið á um uppbyggingu, áherslur og skipan náms í grunnskóla á námsár, svo og hlutfallslega skiptingu tíma milli námssviða og námsgreina. Þess skal gætt að námið verði sem heildstæðast.
    Í 8.–10. bekk skal nám vera að hluta frjálst val. Heimilt er að meta tímabundna þátttöku nemenda í atvinnulífinu á skólatíma sem nám, enda sé það skipulagt í samráði við skólann. Menntamálaráðuneytið setur nánari reglur um valnám.
    Við setningu aðalnámsskrár, skipulagningu náms og kennslu og við gerð og val námsgagna skal þess sérstaklega gætt að allir nemendur fái sem jöfnust tækifæri til náms, sbr. 2. gr., og komið sé í veg fyrir mismunun vegna uppruna, kyns, stéttar, trúarbragða eða fötlunar, jafnframt því sem skólinn viðurkenni og komi til móts við mismunandi persónugerð, þroska, getu og áhugasvið nemenda.
    Menntamálaráðuneytið hefur aðalnámsskrá grunnskóla stöðugt til athugunar og endurskoðunar og gerir tillögur um breytingar þegar þörf er talin á. Menntamálaráðuneytið gefur aðalnámsskrá grunnskóla út eigi sjaldnar en fimmta hvert ár.
    Þess skal gætt að námsbækur og önnur námsgögn, sem skólar nota, samrýmist gildandi lögum og aðalnámsskrá.

43. gr.


    Í öllum skólum á grunnskólastigi skal nemendum gefinn kostur á að taka þátt í tómstunda- og félagsstarfi á vegum skólans, bæði í daglegu starfi og utan venjulegs skólatíma.
    Í félagsstarfi skal m.a. að því stefnt að nemendur verði færir um að taka að sér félagsleg störf í þjóðfélaginu.
    Kostnaður við félagsstörf greiðist af hlutaðeigandi sveitarfélagi.
    Skólastjórar grunnskóla skulu árlega gera fræðslustjóra grein fyrir því hvernig tómstunda- og félagslífi í skóla þeirra var háttað á næstliðnu skólaári.

44. gr.

    Við ákvörðun daglegs og vikulegs starfstíma nemenda í grunnskóla skal þess gætt að í heild fari hann, þ.e. kennslutími, stundarhlé og sjálfsnám utan kennslustunda, ekki fram yfir hæfilegt vinnuálag miðað við aldur nemenda og þroska.
    Vikulegur kennslutími á hvern nemenda í grunnskóla skal að lágmarki vera þessi:
    a.    í 1. bekk 1000 mínútur,
    b.    í 2. bekk 1000 mínútur,
    c.    í 3. bekk 1000 mínútur,
    d.    í 4. bekk 1080 mínútur,
    e.    í 5. bekk 1280 mínútur,
    f.    í 6. bekk 1360 mínútur,
    g.    í 7. bekk 1400 mínútur,
    h.    í 8. bekk 1400 mínútur,
    i.    í 9. bekk 1400 mínútur,
    j.    í 10. bekk 1400 mínútur.
    Skólastjóri ákveður lengd kennslustunda. Samfelld kennslustund má þó ekki vera lengri en 80 mínútur og ekki skemmri að jafnaði en 20 mínútur. Meðallengd kennslustunda í grunnskóla telst vera 40 mínútur.
    Stundarhlé í grunnskóla skulu að jafnaði vera 15 mínútur á móti hverjum 100 mínútum sem kenndar eru.
    Daglegur kennslutími nemenda skal vera samfelldur með eðlilegum stundarhléum og matartímum.

45. gr.


    Í grunnskóla skal jólaleyfi nemenda vera frá og með 21. desember til og með 3. janúar og páskaleyfi frá pálmasunnudegi til og með þriðjudegi eftir páska. Að öðru leyti skulu leyfisdagar ákveðnir í reglugerð.

46. gr.

    Að jafnaði skal við það miðað að nemendur í hverri bekkjardeild í grunnskóla séu ekki fleiri en 24 að meðaltali, eftir að frá hafa verið taldir sérbekkir fyrir nemendur sem ekki stunda nám í almennum bekkjum grunnskóla, sbr. 50. gr., og ekki séu fleiri en 30 nemendur í einstökum bekkjardeildum. Í 1.–3. bekk skulu nemendur í einstökum bekkjardeildum þó ekki vera fleiri en 22.
    Menntamálaráðuneytið getur, sbr. 42. gr., sett ákvæði í aðalnámsskrá grunnskóla er heimili skólum að skipta almennum bekkjardeildum í smærri hópa þegar tilteknir námsþættir eru kenndir.
    Þegar kennarar vinna saman að kennslu námshópa er heimilt að leysa upp að nokkru deilda- og bekkjaskipan og kenna nemendum saman, ýmist í smærri eða stærri hópum.
    Heimilt er að blanda saman aldurshópum ef skólinn telur sig þannig ná betur markmiðum sínum og markmiðum aðalnámsskrár.

47. gr.

    Í fámennum skólum, þar sem nemendur á mismunandi aldri eru saman í deild í 1.–8. bekk, skal við það miðað að nemendur í bekkjardeild séu ekki fleiri en hér segir:
    a.    10 nemendur ef aldursflokkar eru fimm til sjö,
    b.    12 nemendur ef aldursflokkar eru fjórir,
    c.    17 nemendur ef aldursflokkar eru þrír,
    d.    22 nemendur ef aldursflokkar eru tveir.
    Þegar sérstaklega stendur á getur fræðslustjóri ákveðið fjölgun um allt að fjóra nemendur í bekkjardeild gegn aukinni kennslu með fjölgun tíma.

48. gr.


    Í 9. og 10. bekk grunnskóla skal hvor aldursflokkur vera sér í deild, nema menntamálaráðuneytið heimili annað í samráði við viðkomandi skólanefnd og skólastjóra.
    Til þess að 9. og 10. bekk grunnskóla verði haldið uppi í skólahverfi mega nemendur í þessum deildum ekki vera færri en 12 að meðaltali, nema að fenginni heimild menntamálaráðuneytisins, enda gildi þá ákvæði 47. gr.

VI. KAFLI

Réttindi og skyldur nemenda og kennara.

49. gr.

    Börnum og unglingum er bæði rétt og skylt að sækja grunnskóla fái þau ekki hliðstæða kennslu annars staðar, sbr. 7. og 72. gr. þessara laga.
    Skólaskylda barns hefst við upphaf skólaárs á því almanaksári sem barnið verður sex ára. Foreldrar eða forráðamenn barns geta sótt um, eða samþykkt, að það hefji skólagöngu fyrr eða síðar en segir í lögum þessum um skólaskyldu 6 ára barna. Skólastjóri veitir slíka heimild, að fengnum meðmælum hlutaðeigandi ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu.
    Ljúki nemandi öllu námi grunnskóla með góðum árangri á skemmri tíma en tíu árum telst hann hafa lokið skyldunámi.
    Að höfðu samráði við foreldra eða forráðamenn, auk skólastjóra, getur fræðslustjóri heimilað nemanda að hverfa frá grunnskólanámi að loknum 9. bekk í allt að eitt ár vegna þátttöku í atvinnulífi og lýkur nemandi þá grunnskólanámi þeim mun síðar. Heimilt skal að meta þessa þátttöku nemandans í atvinnulífi til jafns við nám í tilteknum valgreinum 10. bekkjar.

50. gr.

    Börn og unglingar, sem að dómi kennara og annarra sérfræðinga skóla og fræðsluskrifstofu þurfa sérkennslu vegna erfiðleika í námi, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar, eiga rétt á kennslu við sitt hæfi, sbr. 2. gr.
    Kennslan getur verið einstaklingsbundin eða farið fram í hópi innan eða utan almennra bekkjardeilda, í sérstökum deildum eða í sérskóla.
    Meginstefnan skal vera sú að kennslan fari fram í heimaskóla. Kennslan skal taka mið af sérkennsluþörfum og/eða fötlun nemandans og öðrum aðstæðum hans.
    Séu foreldrar barns eða forráðamenn, kennarar og aðrir sérfræðingar skóla og fræðsluskrifstofu sammála um að barnið fái ekki notið kennslu við sitt hæfi í heimaskóla, geta forráðamenn sótt um skólavist fyrir það í sérskóla. Heimilt er að fela sérskóla að annast kennslu fatlaðra barna undir skólaskyldualdri, enda verði kennsla við hæfi þeirra ekki tryggð með öðrum hætti.
    Sérmenntaðir kennarar skulu annast kennsluna þar sem því verður við komið.
    Menntamálaráðuneytið setur reglugerð um sérkennslu í grunnskólum.
    Menntamálaráðuneytið skal gera heildaráætlun um skipulag og framkvæmd sérkennslu í landinu.

51. gr.

    Við einstaka grunnskóla eða fræðsluskrifstofur skulu starfa námsráðgjafar er annast náms- og starfsráðgjöf og persónulega ráðgjöf er snertir nám nemenda.
    Námsráðgjafar annast náms- og starfsfræðslu í samvinnu við kennara.
    Námsráðgjafar skulu ráðnir með sama hætti og kennarar. Starfssvið og menntun námsráðgjafa og umfang þjónustunnar skal nánar skilgreint í reglugerð.

52. gr.

    Til að samræma skipulag og framkvæmd sérkennslu, námsráðgjafar, ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu og heilsugæslu skal starfa nemendaverndarráð í hverjum skóla eftir því sem við verður komið.
    Setja skal reglur um nemendaverndarráð.

53. gr.

    Á starfstíma skólans má nemandi ekki stunda vinnu utan hans valdi hún því að nemandinn geti ekki rækt nám sitt sem skyldi eða notið nauðsynlegrar hvíldar að dómi skólastjóra og kennara. Í slíkum tilvikum skal skólastjóri gera forráðamanni nemandans og hlutaðeigandi vinnuveitanda viðvart, en verði ekki bót á ráðin skal vísa málinu til barnaverndarnefndar.

54. gr.

    Nemendum ber að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks skóla í öllu því er skólann varðar, fara eftir skólareglum og fylgja almennum umgengnisvenjum í samskiptum við starfsfólk og skólasystkin.
    Ef nemanda reynist verulega áfátt í hegðun ber kennara hans að leita orsaka þess og reyna að ráða á því bót, m.a. með viðtölum við nemandann sjálfan og forráðamenn hans. Verði samt ekki breyting á til batnaðar skal
kennari leita aðstoðar skólastjóra og sérfróðra ráðgjafa skólans.
    Meðan mál skv. 2. mgr. eru óútkljáð getur skólastjóri vísað nemanda úr skóla um stundarsakir, enda tilkynni hann forráðamönnum nemanda og fræðslustjóra tafarlaust þá ákvörðun.
    Fræðslustjóri tekur þá málið til meðferðar í samráði við skólanefnd og nemendaverndarráð.
    Óheimilt er að víkja nemanda úr skóla, nema honum hafi verið tryggt annað úrræði.
    Í reglugerð skal mæla nánar fyrir um framkvæmd þessarar greinar.

55. gr.

    Hafi kennari gerst brotlegur við lög þessi eða reglugerðir samkvæmt þeim að mati skólastjóra, eða skólastjóri að mati kennara, má vísa málinu til skólanefndar sem beinir því sem skjótast til fræðslustjóra ásamt nauðsynlegum upplýsingum. Telji fræðslustjóri að aðgerðir í málinu þoli enga bið getur hann gert tafarlausar ráðstafanir til úrbóta um stundarsakir, en gefur þegar í stað skýrslu til menntamálaráðuneytisins sem tekur ákvörðun í málinu.
    Telji foreldrar eða forráðamenn barna að skólastjóri eða kennari hafi gerst brotlegur við lög þessi eða reglugerðir samkvæmt þeim fer um málið eins og segir í 1. mgr.
    Um meðferð slíkra mála fer að öðru leyti samkvæmt lögum nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

VII. KAFLI

Kennsluráðgjöf og sálfræðiþjónusta.

56. gr.

    Á fræðsluskrifstofu skal veita kennsluráðgjöf til leiðbeiningar kennurum í almennri kennslu og sérkennslu. Fræðsluskrifstofa hefur umsjón og eftirlit með sérkennslu í umdæminu og faglega umsjón með nýbreytni- og þróunarstarfi í grunnskólum umdæmisins.

57. gr.

    Á fræðsluskrifstofu skal halda uppi ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu. Eftir ósk foreldra, kennara og heilsugæslu skóla skal hún annast athuganir á nemendum sem annaðhvort eiga í sálrænum, tilfinningalegum, félagslegum og öðrum skyldum erfiðleikum, eða nýtast ekki hæfileikar sínir í námi og starfi, og leiðbeina foreldrum og starfsmönnum skóla um uppeldi þeirra og kennslu og taka þá nemendur sem með þurfa til meðferðar eða vísa þeim á viðeigandi meðferð. Hún skal annast rannsóknir og athuganir á sínu sviði, vinna að forvörnum og stuðla að því að sálfræðileg þekking nýtist í skólastarfi.
    Menntamálaráðuneytinu er heimilt að fela ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu grunnskóla að annast þessa þjónustu á forskóla- og framhaldsskólastigi, enda sé veitt til þess fé á fjárlögum.

58. gr.

    Á fræðsluskrifstofu eða í tengslum við hana er heimilt að reka kennslugagnamiðstöð og veita sérfræðilega ráðgjöf og þjónustu við stofnun og rekstur skólasafna.

59. gr.


    Sérfræðiþjónusta fræðsluskrifstofu skal þjóna öllum grunnskólum umdæmisins. Ákveða skal í reglugerð lágmarkssérfræðiþjónustu á fræðsluskrifstofum og fjölda starfsmanna og menntun þeirra.
    Fræðslustjóri gerir heildaráætlun fyrir sérfræðiþjónustu í fræðsluumdæminu. Þjónustan skal skipulögð miðað við aðstæður á hverjum stað. Heimilt er að fella alla þessa þjónustu í eina heild. Einnig er heimilt að reka hluta hennar utan fræðsluskrifstofu.

60. gr.

    Forstöðumaður kennsluráðgjafar skal vera kennari með framhaldsmenntun í sérkennslufræðum eða uppeldisfræði. Forstöðumaður ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu skal vera sálfræðingur. Aðrir starfsmenn sérfræðiþjónustu fræðsluskrifstofa geta verið: kennarar, sérkennarar, uppeldisfræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafar eða aðrir sérfræðingar.
    Kostnaður við kennsluráðgjöf og sálfræðiþjónustu greiðist úr ríkissjóði.

VIII. KAFLI

Námsmat.

61. gr.

    Megintilgangur námsmats er örvun nemenda og námshjálp.
    Með námsmati í grunnskóla skal reynt að afla sem öruggastrar og víðtækastrar vitneskju um það hver árangur hefur orðið af skólastarfinu. Hverjum kennara og skóla ber að fylgjast vandlega með því hvernig nemendum
gengur að ná þeim námsmarkmiðum sem aðalnámsskrá og skólinn setja þeim, sbr. 42. gr. Námsmat fer ekki eingöngu fram í lok námstímans, heldur er það einn af föstum þáttum skólastarfsins, órjúfanlegt frá námi og kennslu.

62. gr.

    Námsmat í grunnskóla skal að jafnaði framkvæmt af kennurum skólans, sbr. þó 65. gr., og skulu nemendur stöðugt fá glöggar upplýsingar um námsárangur. Kennarar skulu gefa vitnisburð a.m.k. í lok hvers námsáfanga.
    Óheimilt er að veita upplýsingar um vitnisburði nemenda öðrum en þeim sjálfum og forráðamönnum þeirra, nema nauðsyn beri til vegna flutnings nemenda milli skóla. Þó skal heimilt að veita öðrum þessar upplýsingar vegna fræðilegra rannsókna, enda sé krafist fullrar þagnarskyldu.

63. gr.

    Menntamálaráðuneytið leggur skólunum til samræmd próf eða könnunarpróf. Skal einkum við það miðað að þessi próf veiti glögga vitneskju um árangur skólastarfsins.
    Kveða skal nánar á um fyrirkomulag prófanna í reglugerð.
    Ráðuneytið veitir einnig sérfræðilegar leiðbeiningar um hvernig skólarnir geti sem réttast metið námshæfni og námsárangur nemenda og gefið sem gleggstar umsagnir og upplýsingar um þá.

64. gr.

    Er grunnskólanámi lýkur skal nemandi fá skírteini er votti að hann hafi lokið skyldunámi samkvæmt lögum. Í skírteinið skal skrá vitnisburð í þeim námsgreinum er nemandi lagði stund á í 10. bekk.
    Einkunnir úr samræmdum prófum skulu færðar sem sjálfstæðar einkunnir.

65. gr.

    Menntamálaráðuneytið skipar prófdómara við samræmt námsmat, svo og trúnaðarmenn til aðstoðar við framkvæmd samræmdra könnunarprófa.
    Nánari ákvæði um tilhögun námsmats setur ráðuneytið í reglugerð. Þar skal og setja ákvæði um hvernig fylgst verði með námi þeirra nemenda á skólaskyldualdri sem eigi sækja almennan grunnskóla.

IX. KAFLI

Skólaþróun o.fl.

66. gr.

    Menntamálaráðuneytið hefur yfirumsjón með þróunar- og tilraunastarfi í skólum, sér um endurskoðun aðalnámsskrár, hefur með höndum mat á skólum, skólastarfi og námsgögnum. Það sér um gerð samræmdra prófa og annast upplýsinga- og leiðbeiningarstarf í skólum.

67. gr.

    Til að leiðbeina um skólastarf í grunnskóla, sbr. 66. gr., fylgjast með árangri þess og stuðla að umbótum og þróun skulu vera námstjórar og aðrir sérfræðingar. Þeir starfa í menntamálaráðuneytinu og á fræðsluskrifstofum og eru ráðnir til allt að fjögurra ára í senn. Við ráðningu þeirra skal tekið tillit til kennslufræðilegrar menntunar og kennslureynslu.

68. gr.

    Árlega skal veita fé á fjárlögum í Þróunarsjóð grunnskóla. Menntamálaráðuneytið hefur umsjón með sjóðnum og setur reglur um styrkveitingar.

69. gr.

    Menntamálaráðuneytið getur veitt einstökum fræðsluumdæmum, skólahverfum og opinberum kennslustofnunum heimild til að reka tilraunaskóla eða gera tilraunir með ákveðna þætti skólastarfs með undanþágu frá ákvæðum laga og reglugerða, svo sem um nám, starfstíma skóla, kennslutilhögun, stundafjölda o.s.frv., enda brjóti slíkar undanþágur ekki í bága við 2. gr. þessara laga eða þrengi hlutverk grunnskóla frá því sem þar er gert ráð fyrir.
    Menntamálaráðuneytinu er heimilt að styrkja tilraunaskóla og sérstök nýbreytniverkefni eftir því sem fjárlög heimila hverju sinni.

X. KAFLI

Skólasöfn.

70. gr.

    Við hvern grunnskóla skal vera skólasafn. Heimilt er að sameina almenningsbókasöfn og skólasöfn, ef forráðamenn beggja telja slíkt æskilegt og
menntamálaráðuneytið samþykkir.
    Að skólasöfnum skal þannig búið, að því er varðar húsnæði, bókakost, önnur námsgögn og starfslið, að þau geti gegnt því hlutverki að vera eitt af meginhjálpartækjum í skólastarfinu.
    Nánari ákvæði um skólasöfn, húsnæði þeirra, bókakost, önnur kennslugögn, starfshætti, starfslið og menntun þess setur menntamálaráðuneytið í reglugerð.

XI. KAFLI

Heilsuvernd.

71. gr.

    Um heilsuvernd í grunnskóla fer eftir gildandi lögum um heilsuvernd í skólum. Sá aðili, sem fer með stjórn heilsuverndar í skólahverfi, skal hafa samráð við skólanefnd og skólastjóra um skipulagningu og fyrirkomulag þeirrar starfsemi.
    Skólastjóra ber að fylgjast með því að starfsfólk heilsuverndar ræki sín störf í skólanum í samræmi við þá tilhögun sem sett hefur verið samkvæmt framangreindu.

XII. KAFLI

Einkaskólar.

72. gr.

    Menntamálaráðuneytinu er heimilt að löggilda grunnskóla eða hluta grunnskóla, sbr. 3. gr., eða skóla fyrir börn undir skólaskyldualdri, sbr. 1. gr., sem kostaðir eru af einstökum mönnum eða stofnunum, ef þeir starfa samkvæmt reglugerð eða skipulagsskrá sem ráðuneytið staðfestir, enda hlíti slíkir skólar sama eftirliti og reglum og aðrir grunnskólar. Kennarar við skóla þessa skulu fullnægja öllum skilyrðum um rétt til kennslu í grunnskóla. Börn, sem þessa einkaskóla sækja, hafa undanþágu skv. 7. gr., en forstöðumaður skal fyrir upphaf hvers skólaárs senda hlutaðeigandi skólanefnd skrá um nemendur og tilkynna henni allar breytingar á nemendaskrá jafnóðum og þær verða.
    Einkaskólar eiga ekki kröfu til styrks af almannafé. Skólagjöld eru háð samþykki menntamálaráðuneytisins.

XIII. KAFLI

Fjármál.

73. gr.

    Ríkissjóður greiðir launakostnað vegna almennrar kennslu í grunnskólum skv. 42. gr. og 44. gr. með þeirri skólaskipan sem ákveðin er skv. 16. gr. í hverju skólahverfi.
    Fjölda kennslustunda, sem ríkissjóður greiðir, skal miða við heildarfjölda nemenda er stunda nám samtímis í grunnskólum hvers skólahverfis skv. 46. gr. og 47. gr.
    Að fengnu samþykki menntamálaráðuneytisins er heimilt að víkja frá þeim meginreglum sem um getur í 1. og 2. mgr. þar sem fleiri en einn grunnskóli eða útibú er í sama skólahverfi. Skal þá mið tekið af eðlilegri skólasókn eftir búsetu nemenda og staðsetningu skóla innan skólahverfis.
    Auk almennrar kennslu greiðir ríkissjóður kennslukostnað vegna viðurkenndrar forfallakennslu, sjúkrakennslu og sérkennslu samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.
    Menntamálaráðuneytið setur reglur um skiptingu bekkjardeilda m.a. vegna verklegrar kennslu, svo og um valgreinar í 8.–10. bekk.
    Samþykki viðkomandi skólanefnd og sveitarstjórn að kennslustundir og aðrar starfsstundir við skóla séu fleiri en samrýmist ákvæðum þessarar og 74. gr., eða sérstakri heimild menntamálaráðuneytisins greiðist kostnaður vegna umframstundanna úr sveitarsjóði.

74. gr.

    Auk kostnaðar við kennslu skv. 73. gr. greiðir ríkissjóður launakostnað við stjórnun grunnskóla, námsráðgjöf og störf í skólasafni samkvæmt nánari ákvörðun í reglugerð, svo og þann launakostnað er stafar af lækkun kennsluskyldu kennara samkvæmt lagafyrirmælum eða ákvörðun menntamálaráðuneytis.
    Ríkissjóður greiðir enn fremur laun stjórnskipaðra prófdómara og kostnað er leiðir af kjarasamningum ríkisins við kennara.

75. gr.

    Sveitarfélög greiða allan annan rekstrarkostnað grunnskóla en laun vegna kennslu og stjórnunar, eða kostnað vegna annarra þeirra rekstrarþátta sem
greindir eru í lögum þessum sem verkefni ríkissjóðs.

76. gr.

    Skólastjóri skal árlega gera áætlun fyrir skóla sinn um fyrirkomulag kennslu, kennslustundafjölda og annan rekstrarkostnað sem ríkissjóður og sveitarsjóður bera. Áætlunina skal miða við komandi rekstrarár skólans, er telst vera frá 1. júlí til 30. júní. Áætlun þessa skal leggja fyrir skólanefnd og skal hún, að því er fjármál varðar, hljóta samþykki sveitarstjórnar áður en hún er send fræðslustjóra fyrir 15. apríl ár hvert eða annan þann dag sem menntamálaráðuneytið ákveður. Áætlun þessa skal endurskoða við upphaf skólaárs ef þörf krefur.
    Áætlun fyrir fræðsluumdæmið í heild sendir fræðslustjóri til menntamálaráðuneytisins á þeim tíma sem ráðuneytið ákveður.

77. gr.

    Menntamálaráðuneytið hefur eftirlit með fjármálalegri framkvæmd þessara laga og skulu því afhentir ársreikningar skólanna.
    Hlutaðeigandi sveitarfélög annast fjármál og reikningshald, en geta falið skólanefnd, skólastjóra eða sérstökum reikningshaldara að hafa á hendi reikningshald í umboði sínu.
    Reikningar skólanna skulu endurskoðaðir á sama hátt og reikningar hlutaðeigandi sveitarfélaga. Þar sem fleiri sveitarfélög en eitt standa að rekstri grunnskóla skulu hlutaðeigandi sveitarstjórnir sameiginlega tilnefna til fjögurra ára í senn tvo fulltrúa til að endurskoða reikninga skólans og tvo til vara. Menntamálaráðuneytið og aðilar í umboði þess skulu eiga aðgang að öllu slíku reikningshaldi og upplýsingum um skólakostnað.

78. gr.

    Ríkissjóður greiðir allan kostnað af rekstri fræðsluskrifstofu þar með talinn allan kostnað við kennsluráðgjöf og sálfræðiþjónustu í þeim skólum sem lög þessi taka til. Fjárveitingar til þessara starfa skulu greiddar mánaðarlega til fræðsluskrifstofu.
    Í reglugerð skal setja ákvæði um hvernig reikna skuli framlög til fræðsluskrifstofu.

79. gr.

    Sveitarfélög greiða stofnkostnað grunnskóla, sbr. 23. gr. Jafnframt falla úr gildi að því er tekur til grunnskóla ákvæði laga nr. 49/1967, um skólakostnað. Þó skulu haldast ákvæði þeirra laga um verðtryggingu stofnkostnaðarframlaga ríkissjóðs að því er tekur til framkvæmda sem fullgerðar voru eða hafnar í árslok 1989. Menntamálaráðuneytið setur reglur um lágmarksstærð grunnskólahúsnæðis og búnað þess.

XIV. KAFLI

Gildistaka og reglugerð.

80. gr.

    Menntamálaráðuneytið getur sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laga þessara.

81. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og jafnframt falla úr gildi lög um grunnskóla, nr. 63/1974 með áorðnum breytingum, lög nr. 13/1962, um heyrnleysingjaskóla, og önnur lagaákvæði sem fara í bága við lög þessi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Ákvæði 44. gr. um vikulegan lágmarkskennslutíma á hvern nemenda komi til framkvæmda á næstu þrem árum frá gildistöku laga þessara.
    Ákvæði 46. og 47. gr. um fjölda nemenda í bekkjum og ákvæði 51. gr. um námsráðgjafa við einstaka grunnskóla eða fræðsluskrifstofu komi til framkvæmda á næstu fimm árum frá gildistöku laganna samkvæmt ákvörðun í fjárlögum hverju sinni.
    Stefnt skal að því að ákvæði 3. gr. um einsetinn skóla komi að fullu til framkvæmda á næstu 10 árum frá gildistöku laganna samkvæmt áætlun sem unnin yrði í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Jafnframt verði á því árabili jafnt og þétt aukið við kennslutíma grunnskólanemenda að því marki að við lok tímabilsins verði vikulegur stundafjöldi allra nemenda 35 stundir.
    Að fimm árum liðnum frá gildistöku laga þessara skal menntamálaráðherra gera Alþingi grein fyrir framkvæmd og undirbúningi þeirra bráðabirgðaákvæða sem hér eru talin.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Þetta frumvarp til laga um grunnskóla kveður á um margvíslega nýja þætti í starfi grunnskólans, en í meginatriðum byggir frumvarpið á gildandi grunnskólalögum sem hafa reynst vel en þau voru sett 1974. Samkvæmt því er markmiðsgrein laganna óbreytt. Frumvarpið er lagað að ákvæðum í IV. kafla laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, sem fjallar um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 63/1974, með síðari breytingum. Í bráðabirgðaákvæði er kveðið á um að þær nýjungar, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, komi til framkvæmda á allt að 10 árum eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum.
    Frumvarpið er samið í menntamálaráðuneytinu í september og október 1989 af starfshópi sem skipaður var Gerði G. Óskarsdóttur, ráðunaut menntamálaráðherra, Hrólfi Kjartanssyni, deildarstjóra í skólaþróunardeild, Kolbrúnu Gunnarsdóttur sérkennslufulltrúa, Sigurði Helgasyni, deildarstjóra í grunnskóladeild, Sólrúnu Jensdóttur, skrifstofustjóra á skólamálaskrifstofu, og Örlygi Geirssyni, skrifstofustjóra á fjármálaskrifstofu.
    Áður hafði verið lagt fram til kynningar á Alþingi vorið 1989 frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 63/1974, um grunnskóla, er samið var af sama starfshópi. Við samningu þess frumvarps hafði starfshópurinn samstarf við fjölda aðila og tók mið af fyrirliggjandi tillögum að breytingum á lögunum, frumvarpi til laga að nýjum grunnskólalögum og frumvörpum til laga um breytingar á grunnskólalögum sem lögð hafa verið fyrir Alþingi á þessum áratug. Þar má nefna tillögur nefndar, sem skipuð var í maí 1979 til þess að endurskoða lögin, ábendingar frá ráðstefnu í Munaðarnesi 29.–30. október 1981, frumvarp til laga um breytingar á grunnskólalögum frá Ingvari Gíslasyni menntamálaráðherra 1983, frumvarp til laga um breytingar á grunnskólalögum, sem flutt var af Skúla Alexanderssyni, Þórði Skúlasyni og Sveini Jónssyni 1986, frumvarp til laga um breytingar á grunnskólalögum flutt af Salome Þorkelsdóttur 1986, frumvarp til laga um grunnskóla frá menntamálaráðherra Sverri Hermannssyni 1987, frumvarp til laga um breytingar á grunnskólalögum flutt af Salome Þorkelsdóttur, Valgerði Sverrisdóttur, Guðrúnu Agnarsdóttur, Margréti Frímannsdóttur og Guðmundi Ágústssyni 1988, frumvarp til breytinga á lögunum, sem flutt var af Ragnhildi Helgadóttur, Birgi Ísl. Gunnarssyni og Þorsteini Pálssyni 1988, frumvarp til breytinga á grunnskólalögum, sem flutt var af Guðrúnu Agnarsdóttur og Danfríði Skarphéðinsdóttur 1988, og frumvarp um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá 1988.
    Starfshópurinn ákvað að senda nokkrum samstarfsaðilum fyrstu drög að frumvarpinu og voru þeir beðnir um umsögn og breytingartillögur. Þessir aðilar voru Bandalag kennarafélaga, Félag skólastjóra og yfirkennara, fræðslustjórar, Kennaraháskóli Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Félag íslenskra skólasálfræðinga, Félag íslenskra námsráðgjafa og Félag skólasafnskennara. Fulltrúar allra þessara aðila komu á heilsdagsfund með starfshópnum 20. febrúar 1989 og skiluðu þar athugasemdum sínum og gerðu grein fyrir þeim. Starfshópurinn vann síðan úr þeim athugasemdum og skilaði tillögum sínum að frumvarpi til menntamálaráðherra 20. mars 1989.
    Skömmu eftir að menntamálaráðherra hafði lagt frumvarpið fram til kynningar á Alþingi var það sent eftirtöldum aðilum til umsagnar: Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Bandalagi kennarafélaga, Félagi skólastjóra og yfirkennara, Skólameistarafélagi Íslands, Námsgagnastofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fræðslustjórum, fræðsluráðum, Félagi íslenskra skólasálfræðinga, Félagi íslenskra námsráðgjafa, Félagi skólasafnskennara, Fóstrufélagi Íslands, Fósturskóla Íslands, Sálfræðingafélagi Íslands og Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa.
    Vegna þeirra fjölmörgu tillagna, sem bárust um breytingar á frumvarpi því sem menntamálaráðherra lagði fram til kynningar vorið 1989 og með tilliti til þess að lög nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, breyttu ákvæðum nálægt 20 greina í gildandi lögum, ákvað ráðherra að leggja fram nýtt frumvarp til laga um grunnskóla og fól starfshópnum í byrjun september að semja drög að því.
    Meginbreytingar frumvarpsins eru sem hér segir:
1.    Gert er ráð fyrir 10 ára grunnskóla, en samkvæmt gildandi lögum er hann níu ár. Hér er fyrst um fremst um jöfnunaratriði að ræða þar sem meginhluti 6 ára barna er þegar í skólum eða yfir 90 %. Það eru börn í dreifbýli sem ekki fá kennslu strax 6 ára eða svo litla og fáa tíma að vart kemur að notum.
2.    Í 3. gr. frumvarpsins er kveðið á um einsetningu skóla sem þýðir að hver bekkjardeild hafi sína stofu. Þetta er undirstaða þess að unnt sé að lengja viðverutíma barna í skólunum á sama tíma og þjóðfélagið byggir á þeirri forsendu að báðir foreldrar vinni utan heimilis. Með lengdum skóladegi er gert ráð fyrir því að unnt verði að sinna margvíslegum verkefnum í skólunum sem nú vinnst ekki tími til. Í ákvæði til bráðabirgða er við það miðað að þessu markmiði verði náð á 10 ára tímabili.
3.    Gert er ráð fyrir því að stofnað verði grunnskólaráð sem er samstarfsvettvangur þeirra aðila sem vinna að málefnum grunnskólans. Fulltrúar foreldrafélaga, kennarafélaga og kennaramenntunarstofnana verða í grunnskólaráði, auk fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, Námsgagnastofnunar og menntamálaráðuneytisins.
4.    Í frumvarpinu eru alls staðar felld út orðin „skipun“ og „setning“ og talað um ráðningu í staðinn. Er gert ráð fyrir því að skólastjórar annist ráðningu kennara og annarra starfsmanna skólanna en stjórnenda. Ráðning stjórnenda yrði í höndum fræðslustjóra í umboði menntamálaráðuneytisins. Að sjálfsögðu er miðað við að hlítt verði lagaákvæðum um réttindi kennara eins og þau eru nú. Er miðað við að útfærsla þessa lagaákvæðis verði í einstökum atriðum rædd við kennarasamtökin.
5.    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að hámarksfjöldi nemenda í 1.–3. bekk verði lækkaður frá því sem nú er og er gert ráð fyrir því að þetta ákvæði komi til framkvæmda á fimm árum.
6.    Valddreifing er eitt einkenni frumvarpsins. Þannig eru foreldrar og kennarar og einstakir skólastjórnendur kvaddir til verka oftar en í gildandi lögum. Þetta kemur m.a. fram í auknum verkum fræðslustjóra og fræðsluskrifstofa og skólastjórnenda. Þetta birtist líka í því að gert er ráð fyrir því að skipta stærstu sveitarfélögunum í skólahverfi þar sem hvert hverfi hafi sína skólanefnd. Er það síðastnefnda í samræmi við frumvarp sem lagt var fram í efri deild Alþingis í fyrra frá þingmönnum úr öllum flokkum. Í frumvarpinu er ekki gerð tillaga um að kennarar og foreldrar eigi fulla aðild að skólanefndum og fræðsluráðum. Stafar þetta af því að fylgt er út í hörgul þeim breytingum á grunnskólalögum sem gerðar voru á síðasta þingi varðandi breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Menntamálaráðuneytið telur hins vegar æskilegt að Alþingi taki afstöðu til þess hvort ekki er rétt að tryggja foreldrum og kennurum aðild að fræðsluráðum og skólanefndunum.
7.    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir náms- og starfsráðgjöf í skólunum bæði til þess að tengja þá umhverfi sínu en ekki síður til þess að búa nemendur betur undir framhaldsnám en nú er gert í grunnskólanum. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að nemendaverndarráð hafi samræmingarhlutverkt vegna einstakra nemenda sem njóta þjónustu sérfræðinga og sérkennara.
8.    Þá er gert ráð fyrir því að ákvæðin um tímafjölda á hvern nemenda sem nú eru í grunnskólalögum verði lágmarksákvæði þannig að ekki verði heimilt að bjóða minni kennslu handa nemendunum en grunnskólalög kveða á um.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um I. kafla.


Markmið og skólaskylda.


Um 1. gr.


    Með breytingartillögu þessari við 1. gr. gildandi laga er lagt til að lögleidd verði skólaskylda 6 ára barna.
    Með því að færa núverandi forskóla 6 ára barna inn í grunnskólann er verið að svara kröfum tímans um aukinn þátt skólanna í uppeldi og fræðslu á þessu aldursstigi.
    Forskólanefnd á vegum menntamálaráðuneytisins lagði til 1981 að lögfesta fræðsluskyldu 6 ára barna og stefna að skólaskyldu þess aldurshóps. Sérstakur starfshópur ráðuneytisins um forskólann lagði til 1984 og 1986 að komið yrði á
skólaskyldu 6 ára barna og þau þannig viðurkennd sem fullgildir nemendur grunnskólans. Undir þetta tóku allir þáverandi fræðslustjórar landsins. Í frumvarpi til laga um grunnskólann 1987 (354. mál) var lagt til að lögfesta fræðsluskyldu 6 ára barna og í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um grunnskólann 1988 (126. mál) var lagt til að lögfesta skólaskyldu. Í skólastefnu Kennarasambands Íslands er lögð áhersla á fræðsluskyldu 6 ára barna.
    Í nágrannalöndum okkar er þessu á ýmsan hátt varið. Í Svíþjóð er fræðsluskylda fyrir 6 ára börn og í Bretlandi hefst skólaskylda við 5 ára aldur svo að dæmi séu tekin. Hins vegar hefst skólaskylda í Noregi enn við 7 ára aldur.
    Undanþáguákvæði frá skólaskyldu eru óbreytt frá gildandi lögum.
    Ákvæði í greininni þar sem segir að óheimilt sé að reka skóla fyrir börn undir skólaskyldualdri, nema með leyfi menntamálaráðuneytisins, eru í 74. gr. gildandi laga.
    Nú sækja um 95% 6 ára barna forskóla. Kennslumagn fyrir 6 ára börn er miðað við fjölda þeirra í viðkomandi skóla, þ.e. 1 stund á viku á hvert barn. Þetta þýðir að nemendum er mismunað stórlega þar sem kennslustundir geta verið allt frá 1 stund á viku í minnstu skólunum upp í 20 í þeim stærstu.

Um 2. gr.


    Markmiðsgrein grunnskólalaga frá 1974 er tekin upp óbreytt. Með því er lögð áhersla á að í meginatriðum byggist frumvarpið á gildandi grunnskólalögum. Leitast er við að aðlaga lögin þeim breytingum sem orðið hafa í samfélaginu og skólakerfinu á þeim 15 árum sem liðin eru frá því að lög um grunnskóla voru samþykkt.

Um 3. gr.


    3. gr. grunnskólalaga er breytt til samræmis við breytingar á 1. gr. og talað um 10 ára skóla. Núverandi 6 ára bekkur verður 1. bekkur, 1. bekkur verður 2. bekkur o.s.frv. Sveitarstjórnum er gert að ákveða í samráði við menntamálaráðuneytið hvort skóli skuli starfa sem ein stofnun eða vera skipt í einingar, en þó er stefnt að heildstæðum skóla, þ.e. skóla þar sem starfræktir eru allir bekkir grunnskólans frá 1. til 10. bekkjar undir einni stjórn. Einnig eru þau nýmæli að skólar skuli vera einsetnir, þ.e. að hver bekkjardeild hafi sína skólastofu og stofur séu því sem næst jafnmargar og bekkjardeildir í viðkomandi skóla, auk sérgreinastofa. Þar með gefst möguleiki á að lengja skóladag nemenda og hafa hann samfelldan. Í þjóðfélaginu er kallað á slíkt fyrirkomulag bæði til þess að unnt sé að sinna ýmiss konar námi og starfi í skólunum sem ekki gefst ráðrúm til nú og einnig vegna þátttöku beggja foreldra í atvinnulífinu. Ljóst er að talsvert vantar á að skólahúsnæði í landinu sé nægjanlegt til þess að fullnægja þessum skilyrðum. Í athugun sem gerð var á vegum menntamálaráðuneytisins í byrjun árs 1989 kom í ljós að nú vantar í landinu rúmlega 500 kennslustofur til þess að einsetja megi grunnskólann, sjá bráðabirgðaákvæði. Því markmiði er unnt að ná á 10 árum með svipuðu framkvæmdafé til skólanna og á þessu ári. Í greininni er mörkuð sú stefna að fjöldi nemenda í skóla skuli að öllu jöfnu ekki fara yfir 650, en það samsvarar þriggja hliðstæðna skóla, þ.e. skóla með þrjár bekkjardeildir í hverjum árgangi. Fjölmennari skólar þykja of stórir og ópersónulegir vinnustaðir fyrir nemendur og kennara.

Um 4. gr.


    Merking greinarinnar er nánast óbreytt frá gildandi lögum. Stefnt er að heimanakstri í stað heimavistar eins og áður. Sveitarstjórnum er heimilt að fengnu samþykki ráðuneytis að koma á fót skólaseljum þar sem heimanakstri til aðalskóla verður ekki við komið. Frumkvæðið er hér fært frá ráðuneytinu til sveitarstjórna. Í greininni eru þau nýmæli að óheimilt er að yngri börn en 10 ára dvelji í heimavist nema í undantekningartilvikum. Skólasel skulu því koma í stað heimavista fyrir umrædda aldurshópa.

Um 5. gr.


    Tvær síðustu málsgreinar 5. gr. gildandi laga eru felldar brott þar sem ákvæðið á ekki við lengur vegna laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Um 6. gr.


    Þær breytingar eru gerðar á 6. gr. gildandi laga að skólastjóra er ætlað að hafa samvinnu við starfsmenn ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu og skólanefnd um lausn mála áður en þeim er vísað til fræðslustjóra.

Um 7. gr.


    Engin breyting frá gildandi lögum.

Um 8. gr.


    Þær breytingar, sem lagðar eru til við 8. gr. laganna, gera ráð fyrir því að skólastjóri hafi að höfðu samráði við umsjónarkennara heimild til þess að veita tímabundna undanþágu frá skólasókn telji hann til þess gildar ástæður. Í gildandi lögum veitir fræðslustjóri slíkar undanþágur að fenginni umsögn skólastjóra og skólanefndar en það hefur reynst örðugt í framkvæmd. Hér er því verið að einfalda málsmeðferð.

Um II. kafla.


Stjórn grunnskóla.


Um 9. gr.


    Gerðar eru verulegar breytingar á 9. gr. gildandi laga. Gert er ráð fyrir stofnun grunnskólaráðs sem verði samstarfsvettvangur menntamálaráðuneytis, kennarasamtaka, Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Námsgagnastofnunar og foreldra. Þessum samstarfsvettvangi er fyrst og fremst ætlað að samræma störf þeirra sem fjalla um málefni grunnskólans, stuðla að markvissara skólastarfi og auðvelda framþróunina. Grunnskólaráð skal hafa yfirlit yfir gildandi lög og reglugerðir um grunnskólann, fylgjast með framkvæmd þeirra og gefa ráð um lagfæringu á þeim og samræmi á milli þeirra. Ráðuneytið setur grunnskólaráði erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um starfstilhögun og starfssvið ráðsins.
    Ákvæði um samstarfsnefnd ráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fjallar um fjárhagslega framkvæmd grunnskólalaganna er óbreytt frá gildandi lögum.

Um 10. gr.


    Hér eru gerðar þær breytingar á 10. gr. gildandi laga að nýir kaupstaðir bætast við í upptalningu. Heimildarákvæði laga nr. 29/1978, um stofnun sérstaks fræðsluumdæmis í sveitarfélögum með 10 þús. íbúa eða fleiri, er fellt niður.

Um 11. gr.


    1. og 2. mgr. eru samhljóða ákvæði í 11. gr. grunnskólalaga eftir breytingu sem gerð var á þeim með lögum nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
    Ákvæði um fundi fræðsluráðs eru felld brott, enda eiga þau betur heima í reglugerð. Gert er ráð fyrir að fræðslustjóri hafi rétt til setu á fundum fræðsluráðs þótt hann sé ekki framkvæmdastjóri þess, sbr. 12. gr.
    Þá er bætt við ákvæði um að allur kostnaður við fræðsluráð greiðist af viðkomandi sveitarfélögum eða samtökum þeirra.

Um 12. gr.


    Greinin er efnislega samhljóða 12. gr. grunnskólalaga eftir breytingu sem gerð var á þeim með lögum nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þó er fyrri hluta 2. mgr. laganna sem fjallar um að fræðsluráð skuli vera fræðslustjóra til ráðuneytis um dagleg störf hans breytt þannig að í staðinn koma ákvæði um samvinnu fræðsluráðs og fræðslustjóra um stefnumörkun skólamála í viðkomandi fræðsluumdæmi.

Um 13. gr.


    Í 32. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, er gerð sú breyting á grunnskólalögum að fræðslustjórar verða starfsmenn menntamálaráðuneytisins. Því þykir eðlilegt að fræðsluráð séu umsagnaraðilar þegar ráða á fræðslustjóra í stað þess að gera tillögur þar um.
    Gert er ráð fyrir að menntamálaráðuneytið setji fræðslustjórum erindisbréf.

Um 14. gr.


    1. og 3. mgr. eru efnislega samhljóða þeirri breytingu sem gerð var á grunnskólalögum með 32. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
    2. mgr. fjallar um verksvið fræðslustjóra.

Um 15. gr.


    Greinin er í meginatriðum samhljóða þeirri breytingu sem lög nr. 87/1989 gerðu á 15. gr. grunnskólalaga.
    Bætt er þó inn ákvæði um að menntamálaráðuneytið verði að samþykkja þau verkefni sem fræðsluskrifstofur taka að sér fyrir sveitarfélög eða samtök þeirra eða þessir aðilar taka að sér fyrir fræðsluskrifstofur.
    Að öðru leyti fjallar greinin um verkefni fræðsluskrifstofu.

Um 16. gr.


    Greinin gerir ráð fyrir breytingu á skipan skólanefnda í sveitarfélögum með yfir 10 þúsund íbúa.
    Þetta er í samræmi við frumvarp sem lagt var fram á Alþingi 1988 af þingmönnum úr öllum flokkum (154. mál).
    Í greinargerð með því frumvarpi segir m.a.: „Tilgangur þessa frumvarps er að færa yfirstjórn skólamála, í þessu tilviki starf skólanefndar, nær vettvangi, auka lýðræði og áhrif íbúa skólahverfis á stjórn skóla og auðvelda þannig samstarf einstakra skóla og skólanefnda og gera það markvissara en nú er.
    Það er álit flutningsmanna að með þessum hætti aukist líkur á því að málefni einstakra skóla fái betri umfjöllun og afgreiðslu fyrr en nú er og einnig að íbúar einstakra íbúðahverfa geti haft aukin áhrif á þróun skólamála í sínu nánasta umhverfi.“
    Flutningsmenn frumvarpsins höfðu einkum í huga þann vanda Reykvíkinga að Reykjavík er eitt skólahverfi samkvæmt grunnskólalögum. Þeir töldu þó að sami vandi gæti birst í öðrum byggðarlögum og því kæmi til greina að lækka viðmiðunartöluna 20 þúsund, t.d. í 10 þúsund, ef aðrir þingmenn teldu það til bóta.
    Í 16. gr. er miðað við 10 þúsund íbúa og tekur breytingin því til Reykjavíkur og stærstu kaupstaða.

Um 17. gr.


    Greinin er efnislega svipuð 17. gr. gildandi laga en uppsetning og orðalag er einfaldað.
    Felld eru brott ákvæði um að skólanefndum sé heimilt að ráða sér starfsmann, skólafulltrúa, enda er slík ákvörðun á valdi viðkomandi sveitarfélaga hverju sinni.
    Þá er bætt inn ákvæði um kosningu skólanefnda í sveitarfélögum þar sem skólahverfi eru tvö eða fleiri, sbr. 16. gr.

Um 18. gr.


    18. gr. gildandi laga er efnislega óbreytt hvað varðar skipan skólanefnda.
    Þó eru gerðar nokkrar orðalagsbreytingar til samræmis við breytingar á 16. og 17. gr. frumvarpsins.
    Gert er ráð fyrir að skólanefndir í sveitarfélögum, sem standa ein að skólarekstrinum, skulu skipaðar fimm mönnum ef íbúar eru 500 eða fleiri í stað 900 áður. Ákvæði þess efnis að í Reykjavík fari fræðsluráð með hlutverk skólanefndar er fellt brott.
    Þær nýjungar eru teknar upp í greininni að foreldrar í hverju skólahverfi kjósi úr sínum hópi fulltrúa til starfa með skólanefnd. Enn fremur er ráðuneytinu gert skylt að leita tillagna samtaka kennara á grunnskólastigi áður en reglur eru settar um kosningu kennarafulltrúa í skólanefnd. Ráðuneytið setur einnig reglur um kosningu foreldrafulltrúa.

Um 19. gr.


    19. gr laganna er umorðuð og stytt verulega, einkum með tilliti til laga um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, nr. 87/1989.

Um 20. gr.


    Áréttað er í greininni að skólastjóri er forstöðumaður þess skóla sem hann starfar við og stjórnar starfi hans. Staða skólastjóra hefur þótt óljós og er hér leitast við að skýra hana og einfalda gildandi lagatexta til að taka af öll hugsanleg tvímæli. Skólastjórar skulu starfa undir yfirstjórn menntamálaráðuneytisins sem setur þeim erindisbréf. Kennarafundur eða kennararáð í umboði þess skal vera skólastjóra til ráðuneytis við stjórn skólans.

Um 21. gr.


    Í greininni er lögð aukin áhersla á samskipti heimila og skóla og kennurum gert skylt að miðla fræðslu um skólamál til foreldra og veita upplýsingar um starfið í skólanum. Markmiðið er að foreldrar geti fylgst betur með námi barna sinna og þar með verið færari um að veita skólanum nauðsynlegt aðhald og hafa áhrif á skólastarfið.
    Réttur foreldra er aukinn með því að bæta inn ákvæði um að fulltrúi foreldrafélags eigi rétt til setu á fundum skólanefnda og fræðsluráða auk kennarafunda.

Um 22. gr.


    Í greininni eru gerðar nokkrar orðalagsbreytingar frá gildandi lagatexta varðandi nemendaráð. Heimildin tekur til allra grunnskólanemenda í stað nemenda í 7.–9. bekk áður. Markmiðið er að efla félagsþroska nemenda þegar á unga aldri. Lögð er aukin áhersla á að nemendaráðin láti eigin mál til sín taka, svo sem félags-, hagsmuna- og velferðarmál nemenda. Nemendaráðið setur sér sjálft samþykktir til að starfa eftir.

Um III. kafla.


Skólahúsnæði.


Um 23. gr.


    Greinin er efnislega samhljóða 34. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Um 24. gr.


    Greinin er í samræmi við 35. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Um 25. gr.


    Í greininni er skólahúsnæði skilgreint. Lögð er áhersla á mikilvægi skólasafns, aðgengi og aðstöðu fatlaðra, aðstöðu fyrir nemendur til náms og hvíldar og aðstöðu til að neyta málsverðar og húsnæði til sérkennslu og ráðgjafarþjónustu. Í 3. mgr. er gert ráð fyrir að menntamálaráðuneytið ákveði í reglugerð hvaða búnaður og kennslutæki skulu vera í skólum miðað við stærð þeirra og hlutverk. Auk þess er gert ráð fyrir því að menntamálaráðuneytið beiti sér fyrir að gerðar verði framkvæmdaáætlanir um skólabyggingar sem miðist við einsetinn skóla, sbr. 3. gr.

Um 26. gr.


    Greinin gerir ráð fyrir að 2. mgr. gildandi lagagreinar falli niður, en í staðinn komi ákvæði um að tillöguuppdrættir að gerð skólamannvirkja skuli kynntir opinberlega í viðkomandi skólahverfi til þess að foreldrar og aðrir íbúar hafi tækifæri til að gera athugasemdir og koma með ábendingar. Einnig er gert ráð fyrir því að viðkomandi skólastjóri og fulltrúar kennara séu með í ráðum við hönnun skólahúsnæðis því að sjálfsagt þykir að þeir sem í skólum starfa hafi áhrif á gerð húsnæðis vegna sérþekkingar sinnar.
    Þá eru einnig ákvæði um að áður en framkvæmdir hefjist skuli leitað eftir samþykki menntamálaráðuneytis í samræmi við ákvæði í 79. gr. frumvarpsins sem er samhljóða 48. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
    Eðlilegt þykir að menntamálaráðuneytið fái upplýsingar um fyrirhuguð skólamannvirki í tvíþættum tilgangi.
    Í fyrsta lagi til þess að unnt sé að koma á framfæri athugasemdum vegna lágmarkskrafna um aðbúnað og vinnuaðstöðu til kennslu og í öðru lagi að
ráðuneytið geti með nægjanlegum fyrirvara tekið afstöðu til þess kostnaðar við kennslu o.fl. sem af byggingu skólans leiðir.

Um 27. gr.


    Greinin er samhljóða 36. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Um 28. gr.


    Greinin er samhljóða 37. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Um 29. gr.


    Greinin er efnislega samhljóða 38. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Um IV. kafla.


Starfslið grunnskóla.


Um 30. gr.


    Lagt er til að heiti IV. kafla breytist frá gildandi lögum og verði Starfslið grunnskóla. Vitnað er til laga nr. 48/1986, um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra. Í þessu frumvarpi eru alls staðar felld út ákvæði um setningu og skipun, en í stað þess er gert ráð fyrir ráðningu starfsmanna skóla. Þá er það nýmæli að kennararáð geri tillögu til menntamálaráðuneytisins um ráðningu skólastjóra auk skólanefndar og fræðslustjóra.

Um 31. gr.


    Starfsheitinu yfirkennari samkvæmt gildandi lagagrein er breytt í starfsheitið aðstoðarskólastjóri. Þetta er gert til að undirstrika að þessi starfsmaður er fyrst og fremst aðstoðarmaður skólastjóra. Menntamálaráðuneytið ræður aðstoðarskólastjóra, að fengnum tillögum skólastjóra, skólanefndar og kennararáðs.
    Í skólum, sem ekki eiga rétt á ráðningu aðstoðarskólastjóra, felur skólastjóri í samráði við skólanefnd í upphafi skólaárs einum af föstum kennurum skólans að annast skólastjórn í forföllum sínum. Er þetta gert til að tryggja stjórn skólans forfallist skólastjóri skyndilega.
    Fellt er niður ákvæði um að ráðherra sé skylt að fara eftir tillögum umsagnaraðila ef þeir eru sammála um að mæla með ákveðnum umsækjanda í stöðu aðstoðarskólastjóra þar sem ekki þykir ástæða til að hafa þau sérákvæði um þessa starfsmenn eingöngu.

Um 32. gr.


    Nú er ráðningu þannig háttað að menntamálaráðuneytið setur eða skipar kennara, að fengnum tillögum skólastjóra, skólanefndar og fræðslustjóra.
    Þrátt fyrir þessi ákvæði hefur ráðning kennara raunverulega verið í höndum skólastjóra. Breytingin er því fyrst og fremst formleg þar sem rétt þykir að það fyrirkomulag sé lögfest.
    Gert er ráð fyrir að skólastjóri ráði kennara, námsráðgjafa og skólasafnverði í samráði við skólanefnd og geti þessir aðilar vísað hugsanlegum ágreiningi til menntamálaráðuneytisins með greinargerð. Takist ekki að fá kennara með réttindi til að sækja um auglýsta stöðu, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, skal skólastjóri sækja um undanþágu til að ráða tiltekinn starfsmann til kennslustarfa í samræmi við 13. gr. laga nr. 48/1986, um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.
    Fræðslustjórar munu staðfesta ráðningarsamninga í umboði menntamálaráðuneytis.

Um 33. gr.


    Fræðslustjórar auglýsa lausar stöður við grunnskóla í stað menntamálaráðuneytis þar sem þeir eru nær vettvangi.
    Þá er gert ráð fyrir að gengið sé frá ráðningum fyrir 1. maí í stað 1. júlí til þess að ráðningum sé lokið áður en skólastarfi lýkur að vori og þar með sé hægt að skipuleggja næsta skólaár fyrr en nú er.

Um 34. gr.


    Greinin er í samræmi við 39. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, að öðru leyti en því að gert er ráð fyrir samráði skólastjóra og skólanefndar um ráðningu þeirra starfsmanna sem greinin tekur til.

Um 35. gr.


    Greinin er óbreytt að öðru leyti en því að fellt er niður ákvæði um að skólastjórar og kennarar heimavistarskóla skuli ekki fá skipun fyrr en eftir tveggja ára reynslu við störf í slíkum skóla, sbr. lög nr. 48/1986.
    Nýjum starfsheitum, aðstoðarskólastjóri, námsráðgjafi og skólasafnvörður, er bætt inn í gildandi lagagrein.

Um 36. gr.


    Greinin breytist þannig að skilyrði fyrir kennsluafslætti við 55 og 60 ára aldur verður 10 ára kennsluferill í stað 20 ára. Bent skal á að hjá framhaldsskólakennurum er kennsluafsláttur vegna aldurs ekki bundinn lengd starfsferils.

Um 37. gr.


    Orðalagi greinarinnar er breytt í samræmi við 13. gr. laga nr. 48/1986, um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, sbr. 32. gr. þessa frumvarps.
    2.–4. mgr. eru efnislega samhljóða 40. grein laga nr. 87/1989 um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
    Þegar talað er um „fasta kennara“ er átt við þá kennara sem ráðnir eru í 1/2 starf eða meira.

Um 38. gr.


    Gert er ráð fyrir að skólastjórar velji umsjónarkennara bekkja í samráði við kennararáð eða kennarafund. Starfssvið umsjónarkennara verður skilgreint í reglugerð. Skólastjóra er enn fremur heimilað að fela föstum kennurum árgangastjórn og fagstjórn eftir nánari reglum er menntamálaráðuneytið setur um hlutverk þeirra.
    Hér er gerð sú breyting að skólastjórar velja umsjónarkennara í samráði við kennararáð eða kennarafund til þess að tryggja að kennarar séu með í ráðum.

Um 39. gr.


    Ákvæði 40. gr. í gildandi lögum um orlof eru einfölduð.
    Í stað „orlofs“ er notað orðið námsleyfi sem undirstrikar enn betur markmið greinarinnar. Í stað „orlofstímans“ er talað um leyfistímann af sömu ástæðu.

Um 40. gr.


    Í greininni er orðinu „skólastjórnenda“ bætt í textann til að leggja áherslu á rétt þeirra til endurmenntunar.

Um V. kafla.


Starfstími grunnskóla, námsefni og kennsluskipan.


Um 41. gr.


    Gert er ráð fyrir níu mánaða reglulegum starfstíma grunnskólanemenda frá 1. september til 31. maí.
    Í gildandi lögum er reglulegur starfstími grunnskóla hins vegar mismunandi eftir skólahverfum eða 7–9 mánuðir.
    Hér á eftir fylgir tafla yfir nemendafjölda í grunnskólum landsins skólaárið 1988/1989 skipt niður eftir starfstíma þeirra og til samanburðar sama skipting skólaárið 1973/1974:

Fjöldi
nemenda % %

Starfstími 73/74 88/89 73/74 88/89
9 mánuðir 23.261 32.777 56,90 77,04
8,5 mánuðir 5.632 5.746 13,77 13,51
8 mánuðir 10.661 3.962 26,07 9,31
Styttri en 8 mán. 1.332 58 3,26 0,14
Samtals 40.886 42.543 100 100
    Stefnt er að því að jafna þennan mun og er það í samræmi við þróunina á síðustu árum eins og ofangreind tafla sýnir.

Um 42. gr.


    Í fyrsta hluta greinarinnar er í raun kveðið nánar á um þau meginatriði sem fjallað er um í 2. gr. laganna. Þau eru sameiginleg öllum námsgreinum og koma ekki einungis fram í venjulegri kennslu heldur í öllu starfi skólans. Hér er fyrst og fremst lögð aukin áhersla á þessi atriði og tekið tillit til þeirrar þróunar sem orðið hefur frá setningu laganna 1974 fremur en að um efnisbreytingar sé að ræða.
    Í stað orðsins „kennslufræði“ í gildandi lögum er hér notað orðið kennsluskipan. Með þessari breytingu er lögð áhersla á faglegt sjálfstæði skóla og að starfslið skóla velji sjálft þær kennsluaðferðir sem við eiga hverju sinni. Með kennsluskipan er átt við að aðalnámsskrá segi fyrir um skipulag náms, t.d. röðun námsefnis á námsár.
    Í a–i-liðum eru ákvæði um hvaða markmið og inntakslýsingar skuli setja í aðalnámsskrá. Hér er ekki um efnislegar breytingar að ræða þótt uppröðun sé lítillega breytt frá gildandi lagagrein. Aukin áhersla er lögð á hlut skólans í að stuðla að heilbrigði og hollustu.
    Síðasta málsgrein er viðbót við gildandi lagagrein. Þetta ákvæði er nú í lögum um Námsgagnastofnun, en þar sem það varðar ekki síður ýmsa aðra útgefendur námsefnis þykir rétt að hafa það í lögum um grunnskóla. Í tillögu um breytingar á lögum um Námsgagnastofnun er gert ráð fyrir að þetta ákvæði falli þar út.

Um 43. gr.


    Hér er gerð sú áherslubreyting frá gildandi lögum að tómstunda- og félagsstarf fari ekki aðeins fram utan venjulegs skólatíma heldur sé einnig liður í daglegu starfi. Síðasta málgrein um kennaranámskeið á vegum menntamálaráðuneytisins er felld brott, enda eru slík námskeið fremur verkefni stofnana sem annast kennaramenntun en ráðuneytisins. Þriðja málsgrein er samhljóða 41. gr. laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Um 44. gr.


    1. mgr. er óbreytt. Hér er um almennt ákvæði að ræða sem varðar vinnuálag á nemendur.
    Í 2. mgr. er orðalagið „sem næst“ fellt út en í stað þess sett lágmark í a–j-liði. Lágmarkskennsla sem nemendur í grunnskóla eiga rétt á verður ákveðnari með þessu móti. sjá enn fremur ákvæði til bráðabirgða.
    Í a–j-liðum er lagt til að vikulegur skólatími yngri barna verði aukinn að lágmarki í 1000 mínútur eða 5 kennslustundir á dag að jafnaði miðað við 5 daga kennsluviku.
    Í eftirfarandi töflu er samanburður á vikulegum kennslustundafjölda samkvæmt
    a.    gildandi lögum,
    b.    gildandi viðmiðunarstundaskrá,
    c.    lágmarki í 44. gr. frumvarps þessa,
    d.    hámarki í ákvæði til bráðabirgða í frumvarpi þessu.
    Miðað er við meðallengd kennslustundar, 40 mínútur.

a b c d
Grunnskólalög Viðmst. skrá Frv. lágmark Frv. hámark
1. b. (6 ára) 25 35
2. b. (7 ára) 22 22 25 35
3. b. (8 ára) 24 22 25 35
4. b. (9 ára) 27 26 27 35
5. b. (10 ára) 32 29 32 35
6. b. (11 ára) 34 32 34 35
7. b. (12 ára) 35 34 35 35
8. b. (13 ára) 36–37 35 35 35
9. b. (14 ára) 36–37 35 35 35
10. b. (15 ára) 36–37 31–35 35 35
    Í neðri bekkjum grunnskólans er því lagt til að vikulegur kennslutími verði aukinn og er það í samræmi við kröfur í þjóðfélagi þar sem báðir foreldrar vinna utan heimilis. Með lengdum skóladegi er auk þess gert ráð fyrir því að unnt verði að sinna margvíslegum verkefnum í skólanum sem nú vinnst ekki tími til.

Um 45. gr.


    Greinin breytist með þeim hætti að aftan við „jólaleyfi“ kemur: nemenda.

Um 46. gr.


    Meðaltal nemenda í bekk verði 24 í stað 28.
    Í raun er verið að staðfesta þá þróun sem orðið hefur. Meðalfjöldi nemenda í bekk hefur lækkað og er 22–24 nemendur í stærri skólum. Meðaltal er lægra í fámennum skólum. Í gildandi lögum er ákvæði um að nemendafjöldi í bekkjardeild fari ekki yfir 30. Sú tala gildir áfram um efri bekki grunnskóla, en gert ráð fyrir því að í 1.–3. bekk (6, 7 og 8 ára börn) fari nemendafjöldi einstakra bekkja aldrei yfir 22. Eðlilegt er að í skólabyrjun þar sem grunnur er lagður að skólagöngu, séu færri nemendur í bekk en þegar ofar dregur. Hvort tveggja er að nemendur þurfa meiri einstaklingsaðstoð og mikilvægt að tryggja sem best grundvallarfærni, svo sem í lestri.
    Nýrri málsgrein er bætt við sem heimilar skólum að blanda saman aldurshópum. Margir skólar hafa þegar tekið upp slíkt skipulag, bæði tímabundið og til lengri tíma, og í fámennum skólum er blöndun árganga óhjákvæmileg. Blöndun árganga hentar vel til að ná ýmsum markmiðum náms og kennslu í grunnskólum, svo sem um félagsþroska, samvinnu og jafnrétti. Enn fremur er með slíku skipulagi oft auðveldara að laga námsefni og námskröfur að einstaklingum. Að öðru leyti eru ekki efnisbreytingar frá gildandi lögum.

Um 47. gr.


    Orðalag 1. og 2. mgr. gildandi laga er einfaldað. Í greininni er miðað við samkennslu nemenda í fámennum skólum í 1.–8. bekk (6–13 ára nemendur) í stað 1.–6. bekk áður (7–12 ára).
    Einn liður, a-liður, er viðbót og er þar sett hámark á nemendafjölda í skólum þar sem mjög fáir nemendur eru í árgangi. Með þessari viðbót er heimild laga til samkennslu rýmkuð nokkuð og greinin nær betur yfir margs konar afbrigði og sveiflur sem gjarnan koma upp í mjög fámennum skólum.

Um 48. gr.


    Til samræmis við fyrri breytingar breytist 48. gr. laganna. Í 1. mgr. greinarinnar er í stað „7.–9. bekk“ sett inn 9.–10. bekk og einnig í 2. mgr.
    Í lok 1. mgr. í stað „skólayfirvöld“ í gildandi lögum kemur: „skólanefnd og skólastjóri“.

Um VI. kafla.


Réttindi og skyldur nemenda og kennara.


Um 49. gr.


    Aldursákvæði eru rýmkuð frá gildandi lögum. Enn fremur fellur niður ákvæði um vorskóla þar sem þeir eru nú aflagðir. Að öðru leyti er orðalag einfaldað.

Um 50. gr.


    Gildandi lagagreinar nr. 50, 51 og 52 um sérkennslu eru hér settar í eina grein umorðaðar og færðar til nútímaviðhorfa til sérkennslu, þarfa fatlaðra og stöðu þeirra í þjóðfélaginu.
    Ýmis ákvæði sem vart eiga við lengur eru felld úr gildandi lögum.
    Meginmarkmiðið er að fatlaðir og aðrir þeir sem þarfnast sérkennslu sitji við sama borð og aðrir nemendur með hliðsjón af markmiðsgrein gildandi grunnskólalaga; kennslan taki mið af fötlun nemandans og heildaraðstæðum hans og fari að öðru jöfnu fram í heimaskóla. Gert er ráð fyrir að þörf nemenda fyrir sérkennslu og/eða aðstoð við fatlaða nemendur verði metin út frá þeim markmiðum sem aðalnámsskrá grunnskóla gerir ráð fyrir. Námsleiðir, kennsluaðferðir og önnur aðstoð sé metin með tilliti til þess hvers nemandinn þarfnast af öðru tagi eða til viðbótar því sem hinn almenni nemandi þarfnast til að markmiðum aðalnámsskrár verði náð.

Um 51. gr.


    Tekið er upp það nýmæli að námsráðgjafar skuli starfa við einstaka grunnskóla eða fræðsluskrifstofur og sinna ráðgjöf við nemendur um mál er tengjast námi þeirra. Hér er um að ræða náms- og starfsráðgjöf og persónulega ráðgjöf.
    Uppeldishlutverk skólans hefur stóraukist hin síðari ár án þess að skólanum hafi verið búin aðstaða til að mæta því sem skyldi. Breyttir þjóðfélagshættir kalla á markvissa ráðgjöf við nemendur.
    Námsráðgjöfum er einnig ætlað að sinna náms- og starfsfræðslu í samvinnu við kennara. Reiknað er með að t.d. bekkjarkennarar eða fagkennarar sinni fræðslunni en námsráðgjafi liðsinni þeim um skipulag og efni. Námsleiðum hefur fjölgað mjög á framhaldsskólastigi og fjölbreytni starfa í atvinnulífinu eykst stöðugt. Grunnur að starfsvali er lagður snemma á ævi hvers einstaklings og því er mikilvægt að börnum sé kynnt atvinnulífið bæði beint og óbeint með ýmsum hætti og í tengslum við margar námsgreinar allan grunnskólann.

Um 52. gr.


    Greinin fjallar um nemendaverndarráð sem ætlað er að samræma skipulag og framkvæmd ýmissar þjónustu við nemendur. Hér er einkum átt við sérkennslu, námsráðgjöf, ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu og heilsuvernd. Stundum hefur þótt skorta á að samræmi væri í aðgerðum þeirra aðila sem fjalla um mál einstakra nemenda á þessum sviðum og jafnvel væri stefnt í gagnstæðar áttir án þess menn vissu hverjir af öðrum. Nemendaverndarráðið er hugsað sem samráðsvettvangur þeirra aðila sem hér um ræðir. Slík ráð hafa nú um skeið starfað í nokkrum skólum og þótt gefast vel.

Um 53. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt frá gildandi lögum að öðru leyti en því að orðið „skólalæknir“ fellur út en í stað þess kemur: kennari. Rétt þykir að kennari nemanda sem fylgist með daglegu starfi hans dæmi hér um ásamt skólastjóra.

Um 54. gr.


    Greinin er umorðuð og reynt að tryggja að viðbrögð við hegðunarvandkvæðum séu skipuleg og markviss.
    Í 5. mgr. er nýtt ákvæði um að nemanda sé ekki vikið úr skóla án þess að ráðstafanir séu gerðar til að tryggja honum skólavist annars staðar eða önnur úrræði.

Um 55. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt frá gildandi lögum.

Um VII. kafla.


Kennsluráðgjöf og sálfræðiþjónusta.


Um 56. gr.


    Gildandi lög gera ráð fyrir ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu á vegum fræðsluskrifstofu. Í lögunum er gert ráð fyrir að félagsráðgjafar, sálfræðingar og sérkennarar annist þá þjónustu. Þróunin hefur hins vegar orðið sú að við ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu starfa nú nær eingöngu sálfræðingar. Hins vegar hafa fræðsluskrifstofur í síauknum mæli sinnt kennsluráðgjöf, bæði vegna almennrar kennslu og sérkennslu, ásamt nýbreytni- og þróunarstarfi og símenntun kennara. Sá þáttur sérfræðiþjónustu hefur ekki fallið undir ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu.
    Sú skipting á sérfræðiþjónustu fræðsluskrifstofanna sem hér er gert ráð fyrir er því í raun staðfesting á því sem orðið er.

Um 57. gr.


    Ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu fræðsluskrifstofa er ætlað svipað hlutverk í þessu frumvarpi og í gildandi lögum. Aðalbreytingin er sú að það megi fela henni að annast þjónustu við forskóla og framhaldsskólastigið. Tilgangurinn
með því er að tryggja samfellu í þessari mikilvægu þjónustu sem skólakerfið veitir nemendum.

Um 58. gr.


    Þetta er ný grein sem heimilar rekstur kennslugagnamiðstöðva við fræðsluskrifstofur og þjónustu við skólasöfn. Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar í Reykjavík hefur starfað síðan 1983. Þar hefur verið haldið uppi öflugri kynningu og upplýsingastarfsemi og almennri þjónustu við starfsfólk skóla. Kennarar hafa nýtt sér í ríkum mæli þá aðstöðu og aðstoð sem þar er boðin fram, en augljósir annmarkar eru á því að kennarar utan Reykjavíkur geti haft af henni full not. Möguleikar Kennslumiðstöðvarinnar í Reykjavík á að þjóna landsbyggðinni til jafns við Reykjavíkursvæðið eru enn fremur takmarkaðir.
    Þegar er kominn vísir að svonefndum kennslugagnasöfnum við fræðsluskrifstofur utan Reykjavíkur. Nefnd sem skipuð var til að fjalla um kennslugagnamiðstöðvar í tengslum við fræðsluskrifstofur skilaði áliti fyrir stuttu og mælir mjög eindregið með frekari uppbyggingu á þessu sviði. Alþingi samþykkti ályktun um málið 1985 og menntamálaráðuneytið hefur farið fram á fjárveitingar til að koma á fót og efla þá þjónustu sem kennslugagnamiðstöðvar í tengslum við fræðsluskrifstofur geta í té látið. Greinin miðar því að því að staðfesta þá þróun, sem þegar er orðin, í því skyni að jafna aðstöðu skóla í landinu.

Um 59. gr.


    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fræðslustjórar skipuleggi sérfræðiþjónustu fræðsluskrifstofanna með tilliti til aðstæðna í hverju umdæmi. Í reglugerð um fræðsluskrifstofur skal ákveða lágmarkssérfræðiþjónustu. Í heildaráætlun fræðslustjóra þarf m.a. að koma fram hvaða sérfræðingar eru nauðsynlegir og hvers konar fyrirkomulag á sérfræðiþjónustu fellur best að aðstæðum.
    Í fjölmennari fræðsluumdæmum má gera ráð fyrir að sérfræðiþjónustan verði deildaskipt. Við þá deildaskiptingu er brýnt að tengsl sérkennslunnar við kennslufræðideild og sálfræðideild verði tryggð vegna þeirrar stefnu að fatlaðir stundi nám við hlið ófatlaðra.

Um 60. gr.


    Þar sem sérfræðiþjónustan er deildaskipt er gert ráð fyrir, eðli málsins samkvæmt, að sálfræðingur sé forstöðumaður ráðgjafar- og sálfræðideilda, en kennari með framhaldsmenntun í uppeldisfræði eða sérkennslufræðum sé forstöðumaður kennsluráðgjafar. Sé sérfræðiþjónustu komið fyrir í einni deild koma áðurnefndir sérfræðingar til álita þegar forstöðumaður er ráðinn, enda séu uppfyllt þau skilyrði sem kunna að verða sett í reglugerð.

Um VIII. kafla.


Námsmat.


Um 61. gr.


    Megintilgangur námsmats er hér færður fram til áherslu.

Um 62. gr.


    Í stað orðsins „próf“ í gildandi lögum (57. gr) kemur: námsmat, enda litið svo á að próf í venjulegum skilningi séu hluti af námsmati og ýmsar aðrar aðferðir en próf henti betur til að afla upplýsinga um sum markmið náms.
    Ekki þykir ástæða til að binda í lögum að einkunnir og vitnisburðir sé fært í prófbækur og einkunnabækur.
    Síðari efnisgrein er óbreytt.

Um 63. gr.


    Meginbreytingin er sú að ekki er lengur tiltekið í hvaða námsgreinum skuli halda samræmd próf. Þá er ekki lengur gert ráð fyrir stöðluðum prófum. Ákvæði laganna um stöðluð próf hefur ekki komið til framkvæmda enda afar tímafrekt, kostnaðarsamt og vafi á að gagnsemi slíkra prófa réttlæti kostnaðinn. Auk þess hafa markmið, námsefni og kennsluhættir í grunnskóla verið í örri þróun og því líkur á að staðla þyrfti próf mjög oft.
    Gert er ráð fyrir að nánari útfærsla og fyrirkomulag samræmdra prófa og könnunarprófa verði skilgreint í reglugerð.
    Seinni efnisgreinin er óbreytt.

Um 64. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt.

Um 65. gr.


    2. og 3. mgr. 61. gr. laganna eru felldar út enda óþarfar.

Um IX. kafla.


Skólaþróun o.fl.


Um 66. gr.


    Í stað „... gerð áætlana um umbætur í starfi skóla, rannsókna- og tilraunastarf í skólum ...“ er gert ráð fyrir að menntamálaráðuneytið hafi yfirumsjón með þróunar- og tilraunastarfi í skólum. Í þessu felst m.a. að hafa frumkvæði að og gera áætlanir um umbætur í grunnskólum og fylgjast með þróun og nýbreytni sem aðrir eiga frumkvæði að.
    Eðlilegt má telja að eiginlegar skólarannsóknir fari fram á vegum rannsóknastofnana, svo sem Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála, Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands.
    Mat á skólum, skólastarfi og námsgögnum tekur til almenns eftirlitshlutverks ráðuneytisins bæði í þeim tilgangi að afla vitneskju um hvar umbóta er þörf og fylgjast með framkvæmd laga og reglugerða sem kveða á um skóla og skólastarf.
    Ákvæði um útgáfu námsefnis og kennaramenntun í 62. gr. gildandi laga eru óþörf þar eð nýrri lög um Námsgagnastofnun og Kennaraháskóla Íslands fela í sér hversu með þau mál skuli fara.

Um 67. gr.


    Greinin er svo til óbreytt. Skýrar er tekið fram í greininni að námstjórar og aðrir sérfræðingar sem ráðnir eru til þeirra verkefna sem greinin kveður á um geti starfað bæði í menntamálaráðuneytinu og á fræðsluskrifstofum. Er það í samræmi við þau verkefni sem frumvarpið gerir ráð fyrir að fræðsluskrifstofur annist sbr. 14. gr.

Um 68. gr.


    Þetta er ný grein. Þróunarsjóður grunnskóla hefur þegar verið stofnaður og er úthlutað árlega fé úr honum samkvæmt sérstökum reglum. Ekki er gert ráð fyrir að sjóðurinn standi straum af rannsóknum, námsleyfum eða breytingum á húsnæði og aðstöðu heldur styrki skóla, kennarahópa eða einstaka kennara sem hafa frumkvæði að umbótum í námi og kennslu og skipulagi skólastarfs.
    Með þessu móti er ýtt enn frekar undir faglegt frumkvæði og ábyrgð skóla og kennara og svigrúm til umbóta í skólastarfi aukið.

Um 69. gr.


    1. mgr. er efnislega óbreytt frá gildandi lögum.
    2. mgr. er felld út enda óþörf í ljósi laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
    Í staðinn kemur heimild til að styrkja sérstök nýbreytniverkefni eða tilraunaskóla.

Um X. kafla.


Skólasöfn.


Um 70. gr.


    Heiti X. kafla breytist úr Bókasöfn í Skólasöfn. 72. gr. gildandi laga er færð að nútímaviðhorfum um hlutverk og starfsemi skólasafna. Skólasöfn hafa reynst vera eitt af meginhjálpartækjum í skólastarfinu. Því er nauðsynlegt að nánar verði kveðið á um skólasöfnin, búnað þeirra og starfslið í reglugerð.

Um XI. kafla.


Heilsuvernd.


Um 71. gr.


    73. gr. gildandi laga er einfölduð og færð til samræmis við framkvæmd heilsuverndar í skólum eins og hún er nú.

Um XII. kafla.


Einkaskólar.


Um 72. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt 75. gr. gildandi laga að öðru leyti en því að bætt er við ákvæði um að skólagjöld séu háð samþykki menntamálaráðuneytisins.

Um XIII. kafla.


Fjármál.


Um 73. gr.


    Fjármálakafli frumvarpsins tekur í öllum meginatriðum mið af þeim breytingum er urðu á grunnskólalögum við samþykkt laga nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Ákvæði 74.–79. gr. grunnskólalaga eru efnislega samhljóða lögum nr. 87/1989, um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
    Hinsvegar felur 73. gr. frumvarps þessa í sér breytingar frá ákvæðum 76. gr. grunnskólalaga, en þeirri grein var ekki breytt með ákvæðum laga nr. 87/1989. Breytingar þessar stefna að einföldun og taka mið af breyttri verkaskiptingu.
    Samkvæmt frumvarpsgreininni greiðir ríkissjóður alla almenna kennslu sem ákveðin er á hverjum tíma í samræmi við nemendafjölda í hverju skólahverfi og eðlilega skiptingu í námshópa, auk þess forfallakennslu, sjúkrakennslu og sérkennslu samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.

Um 74. gr.


    Óbreytt ákvæði 77. gr. grunnskólalaga, sbr. 43. gr. laga nr. 87/1989, að öðru leyti en því að bætt er við orðinu námsráðgjafi í 1. mgr. til samræmis við ákvæði 32. og 51. gr. þessa frumvarps.

Um 75. gr.


    Óbreytt ákvæði 78. gr. grunnskólalaga, sbr. 44. gr. laga nr. 87/1989.

Um 76. gr.


    Óbreytt ákvæði 80. gr. grunnskólalaga.

Um 77. gr.


    Óbreytt ákvæði 81. gr. grunnskólalaga, sbr. 46. gr. laga nr. 87/1989, að öðru leyti en því að bætt er við orðinu fjárhagslegri í 1. mgr.

Um 78. gr.


    Óbreytt ákvæði 82. gr. grunnskólalaga, sbr. 47. gr. laga nr. 87/1989, að því frátöldu að í stað „ráðgjafar-“ kemur: kennsluráðgjafar- í samræmi við ákvæði VII. kafla frumvarpsins.

Um 79. gr.


    Óbreytt ákvæði 83. gr. grunnskólalaga, sbr. 48. gr. laga nr. 87/1989.

Um 80. gr.


    Engar athugasemdir eru við grein þessa.

Um 81. gr.


    Verði frumvarp þetta að lögum falla úr gildi lög um grunnskóla nr. 63/1974 með áorðnum breytingum, lög um heyrnleysingjaskóla, nr. 13/1962, svo og þau lagaákvæði er kunna að brjóta í bága við þau.

Um ákvæði til bráðabirgða.


    Vísast um þau til inngangs að greinargerð.