Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 448 . mál.


Sþ.

783. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um fíkniefnaneyslu unglinga.

Frá Inga Birni Albertssyni.



    Hvernig hyggjast stjórnvöld bregðast við sívaxandi fíkniefnaneyslu unglinga sem fjölmiðlar flytja fréttir af þessa dagana? Eru þær fréttir réttar að rekin sé umfangsmikil dreifingarstarfsemi á fíkniefnum í framhaldsskólum og félagsmiðstöðvum unglinga og til hvaða ráða hyggjast lögregluyfirvöld grípa? Hefur lögreglan orðið vör við vaxandi ofbeldi meðal unglinga sem rekja má til fíkniefnasölu og fíkniefnaneyslu?