Ferill 159. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 159 . mál.


Sþ.

988. Breytingartillögur



við till. til þál. um leiðsögumenn í skipulegum hópferðum erlendra aðila á Íslandi.

Frá atvinnumálanefnd.



1.    Tillgr. orðist svo:
          Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa nefnd til að endurskoða reglugerð nr. 175/1983 um eftirlit með skipulögðum hópferðum erlendra aðila til Íslands í atvinnuskyni. Í nefndinni eigi sæti fimm fulltrúar skipaðir af eftirfarandi aðilum: samgönguráðuneyti, umhverfisráðuneyti, Félagi leiðsögumanna, Félagi íslenskra ferðaskrifstofa og ferðafélögum áhugamanna. Ný reglugerð öðlist gildi eigi síðar en 1. janúar 1991.
2.    Fyrirsögn till. verði: Till. til þál. um leiðsögumenn og endurskoðun reglugerðar nr. 175/1983, um eftirlit með skipulögðum hópferðum erlendra aðila til Íslands í atvinnuskyni.