Bygging og rekstur álvers
Mánudaginn 15. október 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Nú þegar hafa fimm ráðherrar úr ríkisstjórninni tekið til máls við þessa umræðu og lýst fimm mismunandi afbrigðum eða fimm mismunandi skoðunum á því máli sem hér er til umræðu, álmálinu. Ég vil mælast til þess við hæstv. forseta að hann reyni að sjá til þess að þeir sex ráðherrar sem eftir eru fái tækifæri til þess að taka sem fyrst til máls hér í hinu sameinaða þingi til þess að málið megi liggja ljóst fyrir þingheimi og til þess að greiða fyrir umræðum.