Lágmarksframfærslukostnaður
Fimmtudaginn 25. október 1990


     Flm. (Stefán Valgeirsson) :
    Virðulegi forseti. Á þskj. 38 hef ég leyft mér að flytja till. til þingsályktunar um athugun á lágmarksframfærslukostnaði í landinu. Tillgr. er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela Hagstofu Íslands að kanna, meta og gera sundurliðaða greinargerð um lágmarksframfærslukostnað í landinu. Greinargerðin sýni lágmarksframfærslukostnað manns sem ekki á aðrar eignir sem tengjast framfærslu en föt og venjulegt innbú. Skal greinargerðin miðast við framfærslu í eitt ár á verðlagi í desember 1989. Skal miðað við að maðurinn geti veitt sér hollt og næringarríkt fæði og búi í húsnæði sem ekki spillir heilsu hans og hann þarf ekki að deila með öðrum, einnig að hann geti unnið öll heimilisstörf sjálfur. Meta skal fæðis- og húsnæðiskostnað og hitunar- og rafmagnskostnað sérstaklega. Einnig skal meta aðra kostnaðarliði sérstaklega eftir því sem henta þykir, en við mat á kostnaði við föt, bækur, skemmtanir og annað en brýnustu lífsnauðsynjar skal miða við kostnað sem láglaunafólk hefur haft af þessu í framfærsluvísitölugrundvelli Hagstofunnar.
     Þá er Hagstofunni einnig falið að kanna og taka saman greinargerð um lágmarksframfærslukostnað barns sem sýni sundurliðaðan framfærslukostnað fyrir hvert ár frá fæðingu til fullnaðs átján ára aldurs þess. Skal miðað við sömu forsendur og fyrir fullorðinn einstakling með þeirri athugasemd að barnið sé barn einstæðs foreldris sem eins er ástatt um og greinir í fyrri hluta áætlunarinnar.
     Sé umtalsverður, meira en 5%, munur á kostnaði við lágmarksframfærslu eftir kyni mannsins eða barnsins skal greina sérstaklega frá því. Einnig skal greina sérstaklega frá mismun sem kann að vera á hitunar- og rafmagnskostnaði eftir búsetu, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar þar sem hann er hvað hæstur í strjálbýli. Hagstofan skal leita sérfræðiaðstoðar utan stofnunarinnar eftir því sem hún telur þörf á.
     Leitast skal við að ljúka könnuninni sem fyrst og eigi síðar en 1. júní 1991.``
    Tillaga sama efnis um lágmarksframfærslukostnað var flutt á tveimur síðustu þingum, en fékkst ekki afgreidd. Mikilvægi málsins leyfir ekki slíka niðurstöðu.
    Í samfélagi, sem hefur jöfnuð og velferð að meginmarkmiði, hlýtur lágmarksframfærslukostnaður fólks að vera grundvallarstærð sem önnur mörk og viðmiðanir í hagkerfinu verða að miðast við. Er þar átt við lágmarkslaun, elli- og örorkulaun, barnabætur og aðrar greiðslur til framfærslu barna, einnig gengisákvarðanir, vexti, skatta á laun og óbeina skatta og gjöld á lífsnauðsynjar o.fl.
    Það er því mjög brýnt fyrir þá sem vinna að samfélagsmálum og þá sem láta sig slík mál varða að hafa upplýsingar um lágmarksframfærslukostnað í landinu. Á þetta hefur skort. Framfærsluvísitala Hagstofunnar byggist á meðaltali framfærslukostnaðar og ekki hefur verið gerð hér á landi alvarleg tilraun til að

komast að því hver lágmarksframfærslukostnaður einhleypings er. Hér eru að sjálfsögðu mörg álitamál, t.d. hvort telja eigi með kostnað við tóbaksnotkun, bifreið og fleira. Flutningsmaður tekur ekki afstöðu til þess, en gerir sér vonir um að sundurliðun í greinargerðinni upplýsi um þessa kostnaðarliði sérstaklega, og löggjafarvaldið eða önnur stjórnvöld, sem áhuga hafa á þessum málum, setji með tímanum ákveðnari viðmiðanir sem síðari kannanir á lágmarksframfærslukostnaði skuli miðast við. Sama á við um stærð og búnað húsnæðis og endurgjald fyrir það. Auðvitað er eðlilegt í framtíðinni að miða við ákveðnar grunnþarfir og einhverja nærtækustu lausnina við að uppfylla þær. Þessi og önnur atriði af sama toga skýrast betur við vinnu að verkinu og er við því að búast að Hagstofan, framkvæmdaraðilinn, greini frá matsvandamálum og öðrum atriðum sem ástæða þykir til í forsendum greinargerðarinnar.
    Mér hefur verið tjáð að Hagstofan hafi talið mikil vandkvæði á að gera slíka könnun og talið hana mjög vandasama. Ekki ætla ég að gera lítið úr því. En þetta mál er þannig vaxið að þó að það sé erfitt þá verðum við að gera kröfu til þess að hún verði gerð og að um matsatriðin og vandamálin sem upp kunna að koma í slíkri athugun verði sérstaklega fjallað í þessari skýrslu. Það er nú svo í okkar þjóðfélagi að alltaf vex munurinn á því sem fólk hefur og þarf til framfærslu, öfugt við það sem menn segjast stefna að. Það er ekki nóg að tala um það, eins og gert er í þessu þjóðfélagi, að það þurfi að byggja upp atvinnulífið úti á landi en gera svo þveröfugt. Það er ekki nóg að gera samninga um lægstu taxta ef þeir duga ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Það verður að krefjast þess að lágmarkslaunin dugi til þess. Og sé minna til skiptanna en svo að hægt sé að verða við fyllstu kröfum annarra, sem virðast nú vera oft óbilgjarnir í sinni kröfugerð miðað við það ástand sem er, þá verður bara að miða það við það að fólk hafi lágmarksframfærslu. Þetta er eitt af stærstu málum þjóðfélagsins og það er ekki vansalaust ef hv. alþm. þora ekki að sjá framan í slíka athugun. Eða fyrir hvað er það annað að ekki er tekið á þessu máli? Þó að Hagstofan telji þetta vandaverk þá hafa áreiðanlega önnur vandaverk, sem ekki hefur síður verið vandi að leysa, verið leyst.
    Eins og ástandið er hjá mörgu fólki nú, sem ég fullyrði af minni könnun að hefur ekki lágmarksframfærslu, getur ekki veitt sér hollt fæði, hefur ekki húsnæði sem er boðlegt, þá verður að krefjast þess að tekið verði á þessu máli, hvað sem öðrum hagstærðum líður í þjóðfélaginu. Og nú vil ég brýna hæstv. forseta Alþingis að ýta á það að þetta mál verði kannað, ýta á það og það sem fyrst. Ég mun reyna hér á þingi að flytja frv. um lágmarkslaun, en auðvitað er það galli að hafa ekki fyrir framan sig raunverulegan framfærslukostnað. Það er annað að hafa á tilfinningunni en að vita það nokkurn veginn. Þótt ég viti að það verður annmörkum háð að fá nákvæmlega rétta tölu er það alltaf vísbending um það hvernig þessi mál standa. Ég mun gera það samt en ætlast til að

þetta sé skoðað því þá yrði náttúrlega að taka málið upp síðar, þeir sem hér verða á þingi, og miða við þær niðurstöður sem af slíkri könnun leiðir.
    Hæstv. forseti. Ég óska eftir að þetta mál fari til félmn. og síðari umr.