Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Fundi er fram haldið í sameinuðu þingi. Forseti hefur dokað við eina mínútu vegna þess að hæstv. utanrrh. er enn ekki kominn í húsið. Nú vildi ég spyrja næsta hv. ræðumann, 3. þm. Reykv., hvort hann óski eftir að forseti doki við enn um stund. --- Hv. þm. kinkar kolli til samþykkis og ég vil þá biðja hv. þm. að hafa aðeins biðlund, ég trúi ekki öðru en að hæstv. ráðherra komi hér á hverri stundu.
    Forseta er kunnugt um að hæstv. utanrrh. var við skyldustörf frá kl. 18.30 til 9.00. Það líða sjálfsagt ekki margar mínútur þar til hæstv. ráðherra kemur, en ég hef í hyggju að fresta fundinum til kl. korter yfir 9. --- [Fundarhlé.]