Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Þriðjudaginn 20. nóvember 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 157 um frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á og viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Frv. um það mál var lagt fram hér í Ed. á þskj. 117.
    Nefndin fjallaði um frv. og mælir með samþykkt þess, enda er hér aðeins um að ræða að breyta þeirri fjárhæð sem Ísland leggur til í þennan sjóð og á fjárlögum er gert ráð fyrir þeim peningum sem hér er mælt fyrir um.