Fjárlög 1991
Fimmtudaginn 13. desember 1990


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en hv. 2. þm. Norðurl. e. tekur til máls um þingsköp vill forseti upplýsa það að nú þegar hefur náðst símasamband við hæstv. samgrh. og hann telur sig geta verið kominn hér eftir 10 mín. eða svo. En ekki hefur enn þá tekist að ná í hæstv. menntmrh. þannig að forseti getur ekki svarað því á þessari stundu hvort hann getur komið hér í húsið á næstu mínútum, en væntanlega verður það ljóst innan skamms.