Dagpeningar ráðherra
Fimmtudaginn 24. janúar 1991


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Aðeins til að enginn sé rangupplýstur um þetta mál, þá vil ég taka það fram að forsetar Alþingis hafa ekki notið sömu dagpeninga og ráðherrar. Það hefur hæstv. ráðherra misskilið. Forsetar Alþingis hafa fengið nákvæmlega sömu dagpeningafyrirgreiðslu og þingmenn. Hins vegar mun vera í bígerð af hálfu fjármálastjóra þingsins að breyta þeim reglum sem þingið getur auðvitað ákveðið sjálft ef það svo kýs. En hingað til hefur þetta ekki verið á þennan veg. Forsetar hafa notið sömu kjara og hv. þm.