Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri
Föstudaginn 08. febrúar 1991


     Kristín Einarsdóttir :
    Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir að fá að gera örstutta athugasemd. Ég vildi gera þá athugasemd að hæstv. utanrrh. leiddi hjá sér að svara þeirri spurningu sem þó var aðalinntakið í því sem ég vildi vita. Ég vissi þetta með sjávarútveginn og orkulindirnar en ég vildi vita fyrst og fremst hvort 7. liður 4. gr., svo ég tali nú mjög skýrt, geti staðist gagnvart þeim samningum, bæði varðandi bankana og aðrar fjárfestingar. Þetta vildi ég láta koma fram, virðulegur forseti, því ég get ekki sætt mig við að það sé svarað út í hött og sagt að um misskilning sé að ræða.