Endurgreiðsla á gjaldi af erlendum lánum
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Þar sem hér er um sértækan skatt að ræða sem lagt er til að verði endurgreiddur og aðeins leggst á þrjú fyrirtæki en samsvarandi verk hafa hins vegar verið endurgreidd hjá öðrum fyrirtækjum og gagnvart öðrum mönnum er af þeim sökum hér um óheiðarlega, ósiðlega og ég vil segja ólöglega skattheimtu að ræða. Ég segi nei.