Listamannalaun
Þriðjudaginn 26. febrúar 1991


     Geir H. Haarde (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Það hefur komið hér fram ósk um að hv. menntmn. hittist milli umræðna og dregnar hafa verið til baka brtt. á þskj. 695. Ég vildi gjarnan beina því til hins virðulega meiri hl. menntmn. og annarra ábyrgðarmanna þessa frv. að á milli umræðna verði nýsamþykktri 15. gr. frv. breytt þannig að hún fái staðist tímans tönn. Þar stendur: ,,Lög þessi taka gildi hinn 1. jan. 1991.``