Afgreiðsla lánsfjárlaga
Mánudaginn 04. mars 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða hv. 5. þm. Austurl. vill forseti taka fram að forsetar þingsins hafa ítrekað rekið á eftir afgreiðslu lánsfjárlaga. Forsetar geta ekki mikið betur gert í því efni en að hvetja til að þeim störfum ljúki sem allra fyrst.