Búfjárhald
Fimmtudaginn 07. mars 1991


     Frsm. landbn. (Alexander Stefánsson) :
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 798 um frv. til laga um búfjárhald frá landbn.
    Nefndin hefur fjallað ítarlega um frv. Til viðræðna við nefndina komu Jón Höskuldsson deildarstjóri, Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur, Ólafur R. Dýrmundsson ráðunautur og Sigurður Sigurðsson dýralæknir.
    Nefndin hafði til hliðsjónar þær umsagnir sem bárust landbn. Ed. um frv. en auk þess bárust umsagnir frá umhvrn. og Félagi dýralækna.
    Nefndin mælir með samþykkt frv. með þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum Ed. en einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. Undir þetta nál. skrifa allir nefndarmenn í landbn.