Atvinnuleysistryggingar
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Jón Sæmundur Sigurjónsson :
    Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið hefur ríkisstjórnin heitið því að taka á þessu máli í sambandi við upptöku tryggingagjalds og þegar er búið að stofna til nefndar til að vinna að þessu máli. Fulltrúar ASÍ sem komu inn í nefndina og töluðu um þetta mál lögðu eindregið til að aðilar vinnumarkaðarins kæmu að þessu máli og hefðu þar hönd í bagga. Á 75 ára afmælisdegi samtaka verkafólks á Íslandi, ASÍ, getum við ekki neitað þeim um þessa beiðni. Ég segi því já.