Samvinnufélög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Skúli Alexandersson :
    Herra forseti. Fjh. - og viðskn. hefur fjallað um frv. til laga um samvinnufélög. Nefndin leggur til að smábreyting verði gerð á frv. Hún er um að 29. gr. samvinnulaganna haldi gildi sínu áfram og er tillaga um það í nál.
    Nefndin var öll samþykk þessu og leggur til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem ég hef hér nefnt.