Leikskóli
Föstudaginn 15. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Vegna þessara spurninga hv. síðasta ræðumanns vill forseti að það komi alveg skýrt fram að hann hefur verið upplýstur um það að Sjálfstfl. mundi láta þetta frv. óáreitt við afgreiðslu hér á þingi og mundi ekki standa gegn því að það yrði afgreitt. Þetta eru þær upplýsingar sem forseti hefur. Hér liggur að vísu fyrir frá hv. þm. Sólveigu Pétursdóttur tillaga um að vísa frv. til ríkisstjórnarinnar og verður auðvitað látið á það reyna hvort hv. þingdeild vill fara þá leið. En samkvæmt því samkomulagi sem forseti taldi að væri fyrir hendi um forgangsröð mála hér á Alþingi þá var þetta mál í þeim flokki og forseti þekkir það mál ekki betur en svo að hann mun hér á eftir að öllu óbreyttu bera þetta frv. upp til atkvæða.