Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 15. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Vegna þessarar þingskapaumræðu skal þess getið að forseti taldi nokkuð augljóst að það væru mikil ágreiningsmál sem hér væru á ferðinni. Annars vegar 11. dagskrármálið og hins vegar 14. dagskrármálið. Af þeim sökum hefur hann nú freistast til þess að draga nokkuð á langinn að taka þau til umræðu, en væntanlega verður það hægt á fundi sem hefst hér kl. hálfníu. Forseti vill þó engu lofa um það, en ef þessi skýring nægir þá er umræðu um þingsköp lokið og umræðunni um 8. dagskrármálið er frestað.