Ábyrgðadeild fiskeldislána
Föstudaginn 15. mars 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því að nú hefur hæstv. fjmrh. tvisvar flutt hér efnislegar ræður um það frv. sem er á dagskrá. Ég lít svo á að stjórni forseti eðlilega deildinni hér á eftir, þá hafi hæstv. fjmrh. aðeins rétt til að gera örstuttar athugasemdir. Hinn tíminn er útrunninn.