Ákvæði um leikskóla
Mánudaginn 18. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Ég þakka fyrir að hafa leiðrétt ráðherrann. Ég var einungis að vekja athygli á misræmi sem er á milli laga um leikskóla sem nú eru orðin og þess frv. sem hér er og hef beðið félmn. að athuga sérstaklega það atriði. En ég er þakklátur félmrh. að hann skuli ætla að vera hér við 3. umr. málsins og hlakka til þess að heyra hann ljúka ræðu sinni til þess að hann geti til fullnustu eytt þeim misskilningi sem ég virðist vera haldinn varðandi leikskólann.