Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Nú hafði forseti hugsað sér að reyna að koma þessu máli til nefndar á þessum fundi og eru raunar góður horfur á því. En með tilliti til þess hversu áliðið er orðið og ætlunin var að taka hér einnig á dagskrá heilbrigðisáætlun hæstv. heilbrrh. sem komin er úr nefnd, þá vildi forseti leita samvinnu við hv. þm. um að þeir geri sitt besta til að stytta mál sitt svo að þessum störfum megi ljúka nú á þessum fundi.