Starfslok efri deildar
Miðvikudaginn 20. mars 1991


     Salome Þorkelsdóttir :
    Hæstv. forseti. Fyrir hönd okkar þingdeildarmanna vil ég þakka hæstv. forseta góðar óskir í okkar garð. Ég vil jafnframt þakka hæstv. forseta mjög gott samstarf og réttláta fundastjórn ásamt umburðarlyndi í garð okkar þingdeildarmanna.
    Ég tek undir óskir hæstv. forseta og þakkir til skrifstofustjóra og starfsfólks Alþingis, sem mikið hefur mætt á, ekki síst nú síðustu dægrin, og sem leggur sig fram og veitir okkur þingmönnum alla þá aðstoð sem með þarf til að auðvelda okkur þingstörfin.
    Ég ítreka góðar óskir okkar allra til hæstv. forseta og óska honum og fjölskyldu hans velfarnaðar. Ég bið hv. þingdeildarmenn að rísa úr sætum til að staðfesta orð mín og óskir. --- [Deildarmenn risu úr sætum.]