Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 328 . mál.


Nd.

578. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði.

Flm.: Jón Sæmundur Sigurjónsson, Ragnar Arnalds.



1. gr.


     4., 6. og 7. mgr. 14. gr. laganna falla brott.

2. gr.


     15. gr. laganna fellur brott.

3. gr.


     3. mgr. 18. gr. laganna fellur brott.

4. gr.


     Orðin „og göngusilungur“ í 1. mgr. 19. gr. laganna falla brott.

5. gr.


     Orðin „og göngusilungs“ í fyrirsögn IV. kafla falla brott.

6. gr.


     Á eftir V. kafla kemur nýr kafli, Um veiði göngusilungs í sjó , með átta nýjum greinum er orðast svo:

     a. (27. gr.)
     1. Öllum landeigendum er heimil veiði göngusilungs í sjó í netlögum landareignar sinnar.
     2. Þá er íbúum þéttbýlis einnig heimil veiði í netlögum viðkomandi þéttbýlis en hafa skulu þeir leyfi viðkomandi veiðifélags eða sveitarstjórnar til veiðanna.
     3. Eigi má skilja veiðirétt að nokkru eða öllu leyti við landareign, hvorki fyrir fullt og allt né um tiltekinn tíma.

     b. (28. gr.)
     1. Veiða má silung í sjó á færi og stöng, í ádráttarnet og í lagnet.
     2. Eigi má veiða silung utan netlaga.
     3. Silunganet má eigi leggja eða hafa ádrátt í sjó nær ósi straumvatns en 500 metra, enda gangi fiskur í það vatn. Þetta gildir þó ekki ef meiri hluti eigenda veiði í vatninu verða sammála um aðra tilhögun, þ.e. um styttri fjarlægð.

     c. (29. gr.)
     Göngusilung má einungis veiða frá 1. apríl til 20. september ár hvert.

     d. (30. gr.)
     Á veiðitíma þeim, sem getur í 29. gr., skal göngusilungur vera friðaður gegn allri veiði 60 stundir í viku hverri, frá laugardagskvöldi kl. 22 til þriðjudagsmorguns kl. 10.

     e. (31. gr.)
     1. Lagnet, sem ætlað er til silungsveiði, skal vera landfast, liggja þvert á fjöru og eigi vera lengra en nemur breidd netlaga sem er 115 metrar frá stórstraumsfjöruborði mælt beint út.
     2. Netið skal eigi vera smáriðnara en svo að 3,5 sm séu milli hnúta og hins vegar eigi stórriðnara en svo að 5 sm séu milli hnúta og girnisþykkt mest 0,5 mm.
     3. Bil milli lagneta í sjó skal vera minnst 100 metrar, þó aldrei minni en tvöföld lengd netsins.
     4. Ef maður veiðir fyrir landi annars manns er honum skylt að merkja netið með nafni og heimilisfangi. Sama gildir um íbúa þéttbýlis sem stunda veiði fyrir landi hrepps eða bæjar.

     f. (32. gr.)
     1. Ráðherra hefur yfirstjórn silungsveiða í sjó, sbr. 86. gr., og skulu löggæslumenn ríkisins hafa með höndum eftirlit með þeirri veiði.
     2. Þó getur ráðherra skipað eftirlitsmenn með sjávarveiði einungis á afmörkuðum svæðum með sjó samkvæmt tillögu veiðimálastjóra en hafa skal hann um það samráð við notendur veiði á svæðinu.
     3. Eftirlitsmenn skulu hafa gætur á því að veiði í umdæmi þeirra sé stunduð með löglegum hætti. Þeir skulu hafa frjálsa för með sjó á svæðinu eftir því sem þörf krefur og þeir hafa vald til að taka úr sjó veiðitæki sem notuð eru á ólöglegum stað eða tíma.
     4. Við framkvæmd starfa sinna skulu veiðieftirlitsmenn gæta þess að valda ekki ónæði í æðarvarpi og í selalögnum.
     5. Við veiðigæslu við sjó er óheimilt að nota þyrlur, aðrar lágfleygar flugvélar og vélbáta þar sem æðarvörp og arðgæf selalátur og selalagnir eru.

     g. (33. gr.)
     Nú leikur grunur á að fiskur sé ólöglega veiddur og getur þá eftirlitsmaður krafist þess að sá er hefur hann undir höndum geri eftirlitsmanni grein fyrir hvar hann hafi fengið fiskinn. Ekki telst fiskurinn þó ólöglegt veiðifang nema sannað verði að hann sé ólöglega veiddur.

     h. (34. gr.)
     Nú leikur grunur á að ólöglegt veiðifang sé geymt í verslun, reykhúsi eða frystihúsi og er þá eftirlitsmanni heimilt að gera leit að slíku veiðifangi en hafa skal hann áður fengið heimild eða úrskurð dómara til leitarinnar.

7. gr.


     5. og 6. mgr. 89. gr. laganna orðast svo:
     5. Nú leikur grunur á að fiskur sé ólöglega veiddur og getur þá eftirlitsmaður krafist þess að sá er hefur hann undir höndum geri eftirlitsmanni grein fyrir hvar hann hafi fengið fiskinn. Ekki telst fiskurinn þó ólöglegt veiðifang nema sannað verði að hann sé ólöglega veiddur.
     6. Nú leikur grunur á að ólöglegt veiðifang sé geymt í verslun, reykhúsi eða frystihúsi og er þá eftirlitsmanni heimilt að gera leit að slíku veiðifangi en hafa skal hann áður fengið heimild eða úrskurð dómara til leitarinnar.

8. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Allt frá fyrstu öldum byggðar á Íslandi hafa það verið lög hér á landi að landeigendur við sjó eigi einkarétt til veiða fyrir sínu landi. Í lögum frá þjóðveldistímanum segir að almenningur megi aðeins veiða fyrir utan netlög. „En það eru netlög yst er 20 möskva djúp selanót nær til botns á fjöru og komi þá flár upp.“ Þetta er óbreytt í Jónsbókarlögum og var þetta lagaákvæði Jónsbókar í gildi allt fram um miðja 19. öld. Það mun svo hafa verið með tilskipun konungs um veiði á Íslandi frá 20. júní 1849 að stærð netlaga var ákveðin tiltekin fjarlægð út frá stórstraumsfjöruborði, án tillits til aðdýpis, 60 faðmar, sbr. 3. gr. tilskipunarinnar. Þessu lagaákvæði, um að hverri jörð fylgi réttur til veiða 60 faðma út frá stórstraumsfjöruborði, hefur löggjafinn ekki enn þá séð sér fært að breyta. Hins vegar hafa á seinni árum verið hafðir í frammi ýmsir tilburðir til þess að skerða þennan veiðirétt landeigenda í netlögunum. Þær aðgerðir hafa oft verið réttlættar með því að hagsmunir almennings krefðust þess að svo væri gjört. Þessar skerðingar hefjast fyrst árið 1933. Þá ganga í gildi lög sem banna laxveiði í sjó. Þó fengu nokkrir bændur, er þessar veiðar höfðu stundað, að halda þeim áfram en aðrir fengu einhverjar bætur fyrir að hætta þessum veiðiskap. Þar sem laxveiði hafði ekki verið talin til tekna misstu landeigendur laxveiðiréttinn um alla framtíð. Er þetta upphaf þess sjónarmiðs margra þeirra er ráðið hafa veiðimálum að veiðiréttur falli niður ef veiði er ekki stunduð á jörðinni. Varla getur það staðist að réttindi, sem fylgt hafa jörð um margar aldir, falli niður þó þau hafi ekki verið notuð um tíma. Flestum bændum er það mikið áhugamál að réttindi jarða þeirra séu í engu skert og á það ekki síst við um hlunnindi sem fylgt hafa jörðunum frá ómunatíð. Lögunum um bann við laxveiði í sjó var á sínum tíma ekki svo mjög mótmælt þar sem fáir stunduðu þá veiði. Suma mun þó hafa grunað að þetta væri aðeins upphaf frekari skerðingar. Það kom líka á daginn því að árið 1970 var bannað með lögum að veiða silung í sjó hálfa vikuna, þ.e. frá föstudagskvöldi til þriðjudagsmorguns. Þeir sem stóðu að þessari lagasetningu og þar með skerðingu veiðiréttar sögðu þetta gert til þess að hindra ofveiði silungsstofnsins og einnig til að minnka líkur á ólöglegri laxveiði í sjó. Landeigendur við sjóinn álíta á hinn bóginn þetta helgarbann gróflega eignaupptöku og að það geti varla staðist vegna ákvæðis 67. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttar.
    Í lögunum frá 1970 var landbúnaðarráðherra heimilað að setja reglur um silungsveiði í sjó. Þessa heimild nýtti ráðherra sér þó ekki fyrr en 2. ágúst 1989. Þá voru settar reglur sem veiðiréttareigendur við sjóinn töldu mjög óhagstæðar sínum hagsmunum. Var reglunum harðlega mótmælt og mótmælalistar með nöfnum 347 manna, sem flestir eru búsettir á Norðurlandi og eiga veiðirétt í sjó, afhentir landbúnaðarráðherra. Þessar reglur voru að margra áliti nokkuð fljótfærnislega gerðar og sum ákvæði þeirra óskýr. Það ásamt mótmælum landeigenda við sjóinn mun hafa orðið til þess að ráðherra sá sér ekki annað fært en nema reglurnar úr gildi 4. maí 1990. Sama dag voru settar aðrar reglur um sama efni. Þær voru að vísu heldur skárri en þær fyrri en þrengja þó svo mjög veiðimöguleika í netlögunum að mönnum, sem þessa veiði stunda, finnst hart við þær að búa. Einkum er megn óánægja með það að mega ekki stunda veiði í öllum netlögunum. Þá er og gerð netanna, sem nota má, og útbúnaður þeirra þyrnir í augum margra.
    Hver skyldi nú vera ástæðan fyrir því að löggjafinn hefur lagt svo mikið kapp á að rýra möguleika til silungsveiði í sjó?
    Fyrst er þess að geta að löngum hafa þeir sem átt hafa veiðirétt í ánum verið hræddir um að strandbúar veiddu fisk sem annars mundi ganga í árnar. Áreigendur hafa, einkum á síðari árum, haft vel skipulögð samtök og mikið fjármagn er þeim hefur hlotnast með sölu á veiðileyfum sem stöðugt hafa hækkað í verði. Þessir menn hafa ekki heldur þurft að greiða virðisaukaskatt af seldum veiðileyfum og búmark þeirra bænda, sem hafa miklar tekjur af laxveiðihlunnindum, hefur ekki verið skert. Á hinn bóginn hafa þeir sem veiðirétt eiga með ströndum landsins verið sundraðir og forustulitlir og skort fé.
    Frá sjónarmiði margra veiðiréttareigenda við sjóinn er nú mælirinn fullur og ekki um annað að ræða en reyna að endurheimta töpuð réttindi.
    Svo er nú komið mjög víða við strendur landsins að silungurinn er það eina sem hægt er að veiða í netlögunum. Hrognkelsin eru mjög víða hætt að ganga upp að ströndinni þar sem áður var góð veiði. Selveiði er tilgangslaust að stunda vegna aðgerða ofstækissamtaka úti í löndum sem gert hafa selskinnin verðlaus.
    Eins og öllum er kunnugt hafa miklir erfiðleikar gengið yfir íslenskan landbúnað síðari árin, aðallega vegna sölutregðu og verðfalls á afurðum hans erlendis. Vegna þess hefur orðið að skerða mikið framleiðslurétt bænda. Reynt hefur verið að koma á fót nýjum búgreinum, svo sem loðdýrarækt og fiskeldi, og voru nokkrar vonir bundnar við að sú starfsemi gæti að einhverju leyti komið í stað hinna hefðbundnu greina. Skemmst er frá því að segja að þessi starfsemi hefur algerlega brugðist vonum manna.
    Betur hefur tekist til með þjónustu við ferðamenn og aukna nýtingu hlunninda. Þetta hvort tveggja lofar góðu þó enn sé í smáum stíl.
    Þetta frumvarp, ef að lögum verðum, gæti orðið þessum tveim síðarnefndu greinum til nokkurs framdráttar. Má í því sambandi benda á þann möguleika að bændur við sjóinn kæmu sér upp sumarhúsum sem þeir síðan leigðu ferðamönnum og fylgdi veiði í netlögunum, t.d. í eitt net. Með hliðsjón af þessum möguleika er í þessu frumvarpi lagt til að veiðitími í netlögunum verði lengdur frá því sem nú er.
    Varðandi f-lið 6. gr. frumvarpsins (nýja 32. gr.), sem er um löggæslu, skal vísað til skýringa á einstökum greinum er því fylgja. Eins og þar kemur fram hefur það tíðkast nokkuð á síðustu árum að veiðifélög við ár ráði til sín veiðieftirlitsmenn og fái landbúnaðarráðuneytið til að gefa út fyrir þá starfsleyfi sem ná langt út fyrir vatnasvæði ánna. Ekki verður annað séð en þessi starfsleyfi séu háð því skilyrði að veiðifélagið greiði kaup eftirlitsmanna að fullu. Það samrýmist illa réttlætiskennd flestra Íslendinga að fjársterkir aðilar geti þannig í skjóli fjármagns keypt sér það sem þeir sjálfir kalla löggæslu. Ekki þarf að útskýra frekar að hér þarf að stemma á að ósi.
    Ragnar Arnalds er meðflutningsmaður að þessu frumvarpi þar sem hann hefur lagt áherslu á að réttarstaða þeirra, sem eiga land að sjó, þurfi að vera skýrari en hefur þó fyrirvara um viss atriði í frumvarpinu og greinargerð þess, enda gafst skammur tími til að samræma sjónarmið áður en frumvarpið var lagt fram.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. 5. gr.


    Gert er ráð fyrir að sérstakur kafli um veiði göngusilungs í sjó komi í lögin. Það verður að teljast hentugra að hafa ákvæðin um sjávarveiði silungs á einum stað en að þau séu dreifð um allan lagabálkinn. IV. kafli fjallar því einvörðungu um friðun lax.
     Í 4. mgr. 14. gr. laganna er tekið svo til orða að veiði göngusilungs í sjó skuli hlíta sömu reglum sem veiði í ósöltu vatni. Þetta er ekki hentugt þar sem aðstæður til veiða eru mjög ólíkar því sem gerist í sjónum. Þetta sjónarmið er viðurkennt að nokkru þar sem orðunum „eftir því sem unnt er“ er bætt við málsliðinn. Lagt er til að 4., 6. og 7. mgr. 14. gr. falli brott.
     15. gr. laganna fellur brott, en gert er ráð fyrir sömu ákvæðum um veiðivélar og fjarlægð veiða við árósa nokkuð breyttum í nýjum kafla um veiði göngusilungs í sjó.
    Ákvæði 3. mgr. 18. gr. laganna er nú fært í nýja 29. gr. og því lagt til í 3. gr. frumvarpsins að það falli brott.

Um 6. gr.


a-liður (ný 27. gr.).


    1. mgr. Þetta er sams konar ákvæði og 1. mgr. 2. gr. laganna en þar er ekki getið um veiði í sjó. Sjálfsagt er því að taka þetta fram í kafla um veiði í sjó. Einnig mun það í samræmi við ríkjandi skoðun að landeiganda sé einum heimil veiði í netlögum landareignar sinnar.
    2. mgr. Rétt þykir að taka fram að íbúar þéttbýlis hafi rétt til veiða í netlögum heimabyggðar sinnar hafi þeir til þess leyfi, sbr. 9. gr. laganna. Þetta er ekki síst nauðsyn vegna þess að sumir áreigendur hafa vefengt þennan rétt þeirra.
    3. mgr. Þetta ákvæði er samhljóða 4. mgr. 2. gr. laganna nema þar er stangaveiðiréttur undanskilinn. Óþarfi er að þetta sé þannig um veiði í sjó, m.a. vegna þess að stangaveiði er þar óveruleg.

b-liður (ný 28. gr.).


    1. mgr. Þetta er lítillega breytt 1. mgr. 15. gr. laganna og þarfnast ekki skýringar.
    2. mgr. Hér er það nýmæli að ekki megi veiða silung í sjó utan netlaga. Þetta er að nokkru gert í friðunarskyni og að nokkru til þess að koma til móts við áreigendur sem stöðugt eru hræddir um að missa spón úr aski sínum vegna silungsveiði í sjó.
    3. mgr. Hér er í fyrsta lagi lagt til að friðunarsvæði við árósa verði aftur ákveðið 500 metrar út frá ósi eins og gilti allt fram til 1970. Ekkert hefur komið fram um að nauðsyn hafi verið á þeirri útfærslu sem þá var gerð og hún ekki studd neinum fræðilegum rökum. Þá er lagt til að aftur komi inn orðið „silunganet“ í stað orðsins „net“ sem virðist hafa komið til vegna misgánings þar sem breytingarinnar er ekki getið í greinargerð með frumvarpinu að lögum nr. 53/1957.
    Enn er lagt til að taka aftur inn orðalagið „enda gangi fiskur í það vatn“. Óþarfi, og raunar fráleitt, er að banna að leggja silunganet við smáár og læki sem enginn fiskur gengur í.
    Þá er gert ráð fyrir að lýðræðislegur meiri hluti veiðieigenda geti ákveðið styttri fjarlægð veiði frá ósi straumvatns en kveðið er á um í frumvarpinu.

d-liður (ný 30. gr.).


    Hér er gert ráð fyrir að friðunartími silungs styttist um 24 klukkustundir á viku og er það hugsað sem nokkur úrbót fyrir þá sem silungsveiði stunda í sjó. Í því sambandi verður að hafa í huga að slæmt sjólag við ströndina hindrar oft netalagnir dögum og vikum saman. Er jafnvel vafasamt að nokkrar tímatakmarkanir þurfi að vera á silungsveiði í netlögum í sjó þar sem náttúruöflin sjá líklega um nægilega friðun.

e-liður (ný 31. gr.).


    Við gerð þessarar greinar var höfð nokkur hliðsjón af reglum nr. 205 sem landbúnaðaráðuneytið birti 4. maí 1990. Samkvæmt þessu frumvarpi er heimilt að leggja silunganet í öllum netlögunum enda vafasamt að bann við því samrýmist 67. gr. stjórnarskrárinnar. Þá er möskvi lítillega stækkaður og heimilað að hafa nokkru gildara og þá um leið sterkara girni í netunum. Þetta er nauðsynlegt þar sem aðstæður til veiða í sjó eru allar erfiðari en í stöðuvötnum. Bil milli neta er þrengt því að sums staðar hagar svo til við strendur að aðeins mætti leggja eitt net í landareign ef farið væri eftir fyrrgreindum reglum.
    Í 4. mgr. er gert ráð fyrir að þeim sem stunda veiði fyrir landi annarra sé skylt að merkja net sín með nafni og heimilisfangi. Hins vegar virðist óþarfi að krefjast þess sama af landeigendum þar sem auðvelt ætti að vera að leita til þeirra ef vafi leikur á um eiganda ólöglegs nets.

f-liður (ný 32. gr.).


    1. mgr. Hér er tekið fram að löggæslumenn ríkisins skuli hafa eftirlit með silungsveiði í sjó. Þetta er gert hér vegna þess að nokkur undanfarin ár hefur það tíðkast að veiðieftirlitsmönnum við ár hefur einnig verið falið veiðieftirlit með ströndum heilla byggðarlaga. Hafa þessir eftirlitsmenn sums staðar farið fram með nokkru offorsi og hefur landeigendum við sjó þótt hart undir því að búa. Hæpið er að slíkir eftirlitsmenn geti talist hlutlausir löggæslumenn einkum þegar svo ber undir að þeir þiggja öll sín laun af áreigendum.
    2. mgr. Hér er gert ráð fyrir að haft sé samráð við notendur veiði á viðkomandi svæði ef talin er þörf á að skipa sérstaka eftirlitsmenn með silungsveiði í sjó.
    3. mgr. Í þessum lið eru nefnd helstu verkefni og valdsvið þeirra eftirlitsmanna, sem um getur hér að framan, sbr. 2. og 4. mgr. 89. gr.
    4. mgr. Komið hefur fyrir að veiðieftirlitsmenn hafa valdið tjóni með því að styggja æðarfugl í varpi og sel í lögnum og er ákvæðinu ætlað að sporna við slíku.
    5. mgr. Í þessari málsgrein eru nefndar nokkrar vélar og tæki sem líkleg eru til að valda verulegu ónæði en reynsla er fyrir því að slíkt hafi gerst með þessum tækjum með bagalegum afleiðingum.

g-liður (ný 33. gr.).


    Í 5. mgr. 89. gr. laganna segir að fiskur sé ólöglegt veiðifang ef sá maður, er hefur hann undir höndum, getur ekki gert eftirlitsmanni grein fyrir hvar hann hefur fengið fiskinn. Hér er þessu snúið við og sönnunarskyldan falin viðkomandi eftirlitsaðila eins og yfirleitt tíðkast í íslenskum lögum. Enda annað varla sæmandi í nútíma réttarríki.

h-liður (ný 34. gr.).


    Samkvæmt 6. mgr. 89. gr. laganna er eftirlitsmanni heimilt að gera leit í verslun, frystihúsi og reykhúsi án undangengins úrskurðar dómara ef hann hefur grun um að þar sé geymt ólöglegt veiðifang. Hér er lagt til að eftirlitsmanni sé leitin því aðeins heimil að hann hafi í höndum úrskurð dómara til leitarinnar sem er eðlileg réttarregla.

Um 7. gr.


    Ákvæði þessarar greinar frumvarpsins eru í samræmi við efni nýrra 33. og 34. gr. laganna um sönnunarskyldu og leitarheimild þegar grunur leikur á um ólöglega veiði.