Ferill 394. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


1
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 394 . mál.


Nd.

708. Frumvarp til sóttvarnalaga.



(Lagt fram á 113. löggjafarþingi 1990 1991.)



I. KAFLI


Skilgreiningar

.

1. gr.


     Almennar sóttvarnir eru þær ráðstafanir sem lög þessi kveða á um að ávallt skuli beita vegna smitsjúkdóma.
     Opinberar sóttvarnir eru þær ráðstafanir sem skal beita vegna hættulegra smitsjúkdóma:
     þegar hætta er á að farsóttir berist til eða frá Íslandi,
     þegar hætta er á útbreiðslu farsótta innan lands,
     þegar smitaður einstaklingur skapar hættu á útbreiðslu smits með framferði sínu.

2. gr.


     Með smitsjúkdómum í lögum þessum er átt við sjúkdóma eða smitun sem örverur, eiturefni (toxín) þeirra eða sníkjudýr valda.

3. gr.


     Lög þessi fjalla um smitsjúkdóma sem valdið geta farsóttum og ógnað almannaheill og aðrar alvarlegar næmar sóttir.
     Þeir smitsjúkdómar eru skráningarskyldir sem ráðherra ákveður með reglugerð. Af skráningarskyldum smitsjúkdómum eru þeir tilkynningarskyldir sem ógnað geta almannaheill. Ráðherra ákveður, að fengnum tillögum sóttvarnaráðs, hvaða smitsjúkdómar eru tilkynningarskyldir.

II. KAFLI


Yfirstjórn sóttvarna.


4. gr.


     Embætti landlæknis ber ábyrgð á framkvæmd sóttvarna undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra.
     Til embættis landlæknis skal ráða lækni, sóttvarnalækni, til að sinna sóttvörnum. Læknir þessi skal hafa þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra.
     Sóttvarnalæknir skal í starfi sínu hafa samvinnu við héraðslækna, heilsugæslulækna, sjúkrahús, rannsóknastofur og heilbrigðisnefndir, eftir því sem við á.
     Héraðslæknar eru ábyrgir fyrir sóttvörnum, hver í sínu héraði, undir stjórn sóttvarnalæknis.
     Héraðslæknar og sóttvarnalæknir skulu hafa samstarf um framkvæmd nauðsynlegra sóttvarna og njóta aðstoðar lögregluyfirvalda ef með þarf.

5. gr.


     Verksvið sóttvarnalæknis er aðallega eftirfarandi:
     Að skipuleggja og samræma sóttvarnir og ónæmisaðgerðir um land allt, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum.
     Að halda smitsjúkdómaskrá til að fylgjast með útbreiðslu smitsjúkdóma með öflun nákvæmra upplýsinga um greiningu þeirra frá rannsóknastofum, sjúkrahúsum og læknum.
     Að koma upplýsingum um útbreiðslu smitsjúkdóma, innan lands sem utan, með reglubundnum hætti og eftir þörfum til lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna.
     Að vera læknum og öðrum, sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar.
     Að hafa umsjón með forvörnum gegn smitsjúkdómum, m.a. upplýsingum og fræðslu til almennings um þessi efni.

6. gr.


     Ráðherra skal skipa sjö manna ráð, sóttvarnaráð til fjögurra ára í senn.
     Ráðið mótar stefnu í málum sóttvarna og skal vera heilbrigðisyfirvöldum til ráðgjafar um aðgerðir til varnar útbreiðslu smitsjúkdóma.
     Í sóttvarnaráði sitja sjö menn skipaðir af heilbrigðisráðherra. Þar skulu vera starfandi embættislæknir, sérfræðingar á sviði smitsjúkdómalækninga, bakteríufræði, veirufræði, kynsjúkdóma, faraldsfræði/heilbrigðisfræði auk landlæknis sem jafnframt er formaður ráðsins.
     Sóttvarnaráð skal hafa aðsetur hjá embætti landlæknis og skal sóttvarnalæknir vera ritari þess.

III. KAFLI


Almennar sóttvarnaráðstafanir.


1. Skyldur einstaklinga.


7. gr.


     Það er almenn skylda að gjalda sem mesta varúð við smitsjúkdómum og gera sér allt far um að sýkja hvorki sjálfan sig né aðra, að svo miklu leyti sem framkvæmanlegt er.
     Hver sá, sem hefur ástæðu til að halda að hann hafi smitast af smitsjúkdómi sem ógnað geti öðrum mönnum, er skyldur að leita læknis án tafar. Leiði læknisrannsókn í ljós að um slíkan sjúkdóm sé að ræða er viðkomandi skyldur að fylgja fyrirmælum læknis um meðferð og ráðstafanir til að fyrirbyggja smitun.
     Ef læknir telur mikilvægt að rekja smit til að hefta frekari útbreiðslu þess ber sjúklingi skylda til að veita nauðsynlegar upplýsingar um það af hverjum hann gæti hafa smitast, svo og hverja hann kann að hafa smitað. Komi læknirinn því ekki við ber honum að vísa sjúklingi til stofnunar sem aðstöðu hefur til að rekja smit. Skylt er hlutaðeigendum að hlýða fyrirmælum læknis um nauðsynlegar rannsóknir til varnar sóttnæmisútbreiðslu frá sjúklingi.

2. Skyldur lækna og annars heilbrigðisstarfsliðs.


8. gr.


     Allir læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn skulu í starfi sínu hafa vakandi auga með smitsjúkdómum og útbreiðslu þeirra.
     Ef læknir kemst að því í starfi sínu að einstaklingur hefur smitast af smitsjúkdómi sem er tilkynningarskyldur og ekki hirt um að leita læknis skal hann þegar í stað vekja athygli héraðslæknis eða sóttvarnalæknis á því, sbr. 9. gr.

9. gr.


     Læknir, sem kemst að því í starfi sínu að einstaklingur hefur smitast af smitsjúkdómi sem samkvæmt lögum þessum er tilkynningarskyldur eða hefur rökstuddan grun um að svo sé, skal hann þegar í stað tilkynna það viðkomandi héraðslækni eða sóttvarnalækni.
     Hliðstæð skylda hvílir á forstöðumönnum rannsóknastofa, sjúkradeilda og annarra heilbrigðisstofnana.
     Heilbrigðisráðherra setur, að fengnum tillögum sóttvarnaráðs, reglugerð um það hvaða smitsjúkdómar séu skráningarskyldir og um fyrirkomulag tilkynninga skv. 2. mgr. 3. gr. og 1. og 2. mgr. þessarar greinar. Sóttvarnalæknir er ábyrgur fyrir því að haldin sé smitsjúkdómaskrá. Skráin tekur til smitsjúkdóma og ónæmisaðgerða, sbr. 2. tölul. 5. gr., og er til stuðnings sóttvarnastarfi og faraldsfræðirannsóknum. Skal gætt fyllsta trúnaðar um allar einkaupplýsingar sem þar koma fram.
     Ráðherra setur reglugerð um starfsemi rannsóknastofa sem fást við rannsóknir á smitsjúkdómum er lög þessi taka til. Þessar rannsóknastofur skulu hafa starfsleyfi heilbrigðisráðherra.
     Skylt er hlutaðeigandi aðilum að aðstoða viðkomandi héraðslækni og sóttvarnalækni m.a. með því að veita upplýsingar er þeir telja nauðsynlegar vegna sóttvarna.

10. gr.


     Hafi læknir, sem hefur sjúkling til meðferðar sem haldinn er smitsjúkdómi, rökstuddan grun eða vitneskju um að sjúklingurinn fylgi ekki fyrirmælum sem honum voru sett um umgengni og meðferð skal hann tilkynna það þegar í stað til viðkomandi héraðslæknis eða sóttvarnalæknis.

3. Skyldur heilbrigðisnefnda.


11. gr.


     Heilbrigðisfulltrúar og formenn heilbrigðisnefnda samkvæmt lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81 3. ágúst 1988, skulu tilkynna viðkomandi héraðslækni eða sóttvarnalækni jafnskjótt og þeir hafa orðið varir við hugsanlega smithættu. Sóttvarnalæknir skal gefa heilbrigðisnefndum nauðsynlegar upplýsingar og ráð og hafa yfirumsjón með að til viðeigandi ráðstafana sé gripið.
     Heilbrigðisnefndir og heilbrigðisfulltrúar skulu aðstoða við sóttvarnir og bera ábyrgð á að gripið sé til viðeigandi ráðstafana ef hætta er á að dýr, matvæli, vatn, skolplagnir, loftræsting eða annað í umhverfinu dreifi eða geti dreift smitnæmum sjúkdómum.

IV. KAFLI


Opinberar sóttvarnaráðstafan

ir.

1. Sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á farsóttum innan lands.


12. gr.


     Ef tilkynningar til sóttvarnalæknis um smitsjúkdóma benda til að farsótt sé yfirvofandi skal hann þegar í stað gera heilbrigðisráðherra viðvart.
     Ráðherra ákveður að tillögu sóttvarnaráðs hvort grípa skuli til opinberra sóttvarnaráðstafana, svo sem ónæmisaðgerða, einangrunar smitaðra, sótthreinsunar, afkvíunar byggðarlaga eða landsins alls, lokunar skóla eða samkomubanns. Sóttvarnalæknir eða héraðslæknar geta beitt slíkum vörnum til bráðabirgða án þess að leita heimildar fyrir fram ef þeir telja að hvers konar töf sé hættuleg, en gera skulu þeir ráðherra jafnskjótt kunnar ráðstafanir sínar.
     Nánari ákvæði um opinberar sóttvarnaráðstafanir skal setja með reglugerð.

2. Sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á farsóttum til eða frá Íslandi.


13. gr.


     Um sóttvarnaráðstafanir, sem grípa má til vegna hættu á farsóttum frá útlöndum eða frá Íslandi til útlanda, skal setja reglugerð í samræmi við efni þeirra alþjóðasamninga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem Ísland er aðili að.

3. Aðgerðir vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum.


14. gr.


     Nú telur sóttvarnalæknir, er honum berst tilkynning um smitsjúkdóm, að grípa þurfi til frekari ráðstafana en læknir hefur þegar gert til þess að fyrirbyggja eða hefta útbreiðslu smitunar sem ógnað getur almannaheill. Skal hann þá í samráði við héraðslækni sjá til þess að til slíkra aðgerða sé gripið. Getur hann og, ef þurfa þykir, leitað aðstoðar lögregluyfirvalda vegna aðgerða til varnar smiti. Héraðslæknir getur einnig gripið til slíkra aðgerða í forföllum sóttvarnalæknis.
     Með nauðsynlegum aðgerðum er átt við læknisrannsókn, einangrun hins smitaða á sjúkrahúsi eða með öðrum hætti, svo og aðrar ráðstafanir gerðar án samþykkis hlutaðeigandi. Áður en gripið er til slíkra aðgerða skal ætíð reynt að leysa mál með öðrum hætti.
     Aðvörun sóttvarnalæknis eða héraðslæknis um aðgerðir af þessu tagi má áfrýja til ráðherra. Slík áfrýjun frestar ekki framkvæmd.

15. gr.


     Ef maður, haldinn smitsjúkdómi, fellst ekki á að fylgja reglum um umgengni við aðra eða að rökstuddur grunur er um að hann hafi ekki fylgt slíkum reglum getur sóttvarnalæknir ákveðið að hann skuli lagður inn á sjúkrahús í einangrun eða að hann skuli einangraður með öðrum hætti. Um þesssa dvöl skulu gilda ákvæði lögræðislaga, nr. 68 30. maí 1984, sbr. 3. mgr. 13. gr.
     Þurfi einangrun að vara lengur en 15 daga skal gera kröfu fyrir dómi um sjálfræðissviptingu, sbr. 19. gr. lögræðislaga.

V. KAFLI


Ýmis ákvæði.


16. gr.


     Starfrækja skal göngudeildir vegna tilkynningarskyldra smitsjúkdóma sem veita meðferð og rekja smitleiðir. Ráðherra setur reglugerð um starfsemi slíkra göngudeilda.
     Á sjúkrahúsi, sem heilbrigðisráðherra ákveður, skal vera aðstaða til einangrunar þeirra sem eru til rannsóknar eða meðferðar vegna smitsjúkdóma eða gruns um smitsjúkdóm.
     Heilbrigðisráðherra getur falið ákveðnum rannsóknastofum að ábyrgjast greiningu örvera eða sníkjudýra úr sýnum frá sjúklingum með smitsjúkdóma og fylgjast með ónæmisástandi einstaklinga gegn þýðingarmiklum smitnæmum sjúkdómum.

17. gr.


     Allur kostnaður, sem hlýst vegna framkvæmdar laga þessara er varðar tilkynningarskylda sjúkdóma, er sjúklingum að kostnaðarlausu.


18. gr.


     Auk þeirra reglugerða, sem lög þessi tilgreina sérstaklega, hefur heilbrigðisráðherra heimild til að setja í farsóttareglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessara laga.
     Sama máli gegnir ef til sérstakra ráðstafana þarf að grípa vegna sóttvarna við náttúruhamfarir.

19. gr.


     Um refsingar vegna brota á lögum þessum skal fara samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, og læknalaga, nr. 53/1988, með síðari breytingum.

20. gr.


     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1992. Þá falla úr gildi eftirfarandi lög:
     Lög um útbúnað og ársútgjöld spítala handa holdsveikum mönnum, nr. 2 4. febrúar 1898.
     Lög um aðgreining holdsveikra frá öðrum mönnum og flutning þeirra á opinberan spítala, nr. 3 4. febrúar 1898, sbr. breyting á þeim lögum nr. 57 30. júlí 1909.
     Berklavarnalög, nr. 66 31. desember 1939.
     Lög um ráðstafanir til varnar gegn fýlasótt, nr. 70 7. maí 1940.
     Lög um eyðing á rottum, nr. 27 12. febrúar 1945.
     Lög um hundahald og varnir gegn sullaveiki, nr. 7 3. febrúar 1953.
     Sóttvarnarlög, nr. 34 12. apríl 1954.
     Farsóttalög, nr. 10 19. mars 1958.
     Lög um varnir gegn kynsjúkdómum, nr. 16 28. apríl 1978, sbr. breyting á þeim lögum nr. 7 7. apríl 1986.



Fylgiskjal.


Flokkun smitsjúkdóma eftir meginsmitleiðum.


(Skáletraðir sjúkdómar eru tilgreindir í alþjóðaheilbrigðisreglum.)



     1.      Smitsjúkdómar þar sem persónueinkenna sjúklings er ekki getið og verða skráningarskyldir samkvæmt reglugerð, sbr. 2. mgr. 3. gr.
               1.1      Þarmasmit:
                        Yersiniosis
                        Listeriosis
                        Toxoplasmasýking
                        Sullaveiki
                        Tríkínósis

               1.2      Öndunarfærasmit:
                        Hemóphilus influenzae (gerð b) sjúkdómur
                        Psittacosis
                        Legionellosis
                        Rauðir hundar
                        Mislingar
                        Hettusótt
                        Kíghósti
                        Inflúensa

               1.3      Blóðborið smit:
                        Sýkingar vegna blóðgjafa
                        Meðfæddir rauðir hundar

               1.4      Samræðissmit:
                        Condyloma genitalis
                        Þvagrásarbólga af öðrum eða óþekktum orsökum

               1.5      Skordýraborið smit:
                        Malaría
                        Rykkjasótt (febris recurrens)
                        Dílasótt (typhus exanthematicus)

               1.6      Aðrir smitsjúkdómar:
                        Heilahimnubólga af völdum örvera
                        Heilabólga af völdum veira
                        Stífkrampi
                        Óvenjulegar berklasýkingar
                        Hjartaþelsbólga

     2.      Smitsjúkdómar sem tilkynna skal einstaklingsbundið og sem verða tilkynningarskyldir samkvæmt reglugerð, sbr. 2. mgr. 3. gr.
              2.1      Þarmasmit:
                        Lömunarveiki (poliomyelitis)
                        Smitandi lifrarbólga A (hepatítis A)
                        Önnur smitandi lifrarbólga (hepatítis E)
                         Kólera
                        Salmonellusýkingar (þar með talið taugaveiki og taugaveikibróðir)
                        Kampýlóbaktersýkingar
                        Blóðkreppusótt (shigellosis)
                        Aðrar þarmasýkingar af völdum baktería

               2.2      Öndunarfærasmit:
                        Barnaveiki (difteria)
                        Meningókokkasjúkdómur
                        Berklar
                         Svarti dauði (pestis)

               2.3      Blóðborið smit:
                        Smitandi lifrarbólga B (hepatítis B)
                        Smitandi lifrarbólga C (hepatitis C)
                        Önnur smitandi lifrarbólga
                        HIV (human immunodeficiency virus)

               2.4      Samræðissmit:
                        Klamýdía
                        Lekandi
                        Sárasótt
                        Hepatítis B
                        HIV (human immunodeficiency virus)

               2.5      Skordýraborið smit:
                        Svarti dauði (pestis)
                        Gulusótt (yellow fever, febris flava)


               2.6      Aðrir smitsjúkdómar:
                        Bótúlismi
                        Holdsveiki (lepra)
                        Hundaæði (rabies)
                        Militisbrandur (anthrax)


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


     Þróun íslenskrar löggjafar á sviði sóttvarna hófst ekki að ráði fyrr en á síðari hluta síðustu aldar. Árið 1875 gengu í gildi lög um mótvarnir gegn því að bólusótt og hin austurlenska kólerusótt og aðrar næmar sóttir flytjist til landsins. Á tæpri öld þróuðust þessi lög í löggjöf um varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands og síðan í núgildandi sóttvarnalög sem eru frá árinu 1954.
     Liðlega tuttugu árum síðar, eða árið 1896, gengu í gildi fyrstu lögin um varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma. Þessi lög hafa síðan þróast í núgildandi farsóttalög frá 1958.
     Um aldamótin var ástand í málum holdsveikra og berklaveikra hér á landi mjög bágborið og aðgerðir aðkallandi. Árið 1898 gengu í gildi tvenn lög er snertu holdsveika, annars vegar lög um aðgreiningu þeirra frá öðrum mönnum og flutning á spítala og hins vegar lög um stofnun holdsveikraspítala á Íslandi. Þó úrelt séu og óþörf eru þessi lög enn í gildi.
     Fyrstu lögin um varnir gegn berkaveiki gengu í gildi nokkrum árum síðar, eða árið 1904. Núgildandi berklavarnalög eru frá árinu 1939.
     Hinn 17. október 1988 skipaði heilbrigðisráðherra nefnd sem falið var það hlutverk að endurskoða farsóttalögin frá 1958, sóttvarnalögin frá 1954, ýmis sérlög um varnir gegn ákveðnum smitsjúkdómum, svo sem berklavarnalögin frá 1939, lögin um varnir gegn kynsjúkdómum frá 1978, með síðari breytingu, og lögin um varnir gegn holdsveiki frá síðustu aldamótum.
     Í nefndina voru skipuð: Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, formaður, Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir, Haraldur Briem, sérfræðingur í smitsjúkdómum, Skúli Johnsen borgarlæknir og Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, og var hún jafnframt ritari nefndarinnar.
     Nefndin lauk störfum haustið 1989. Frumvarp til sóttvarnalaga, sem hún samdi, var lagt fram á 112. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Með því frumvarpi fylgdu sem fylgiskjöl yfirlit sem nefndin tók saman um þróun íslenskrar löggjafar á sviði sóttvarna og samantekt um stöðu löggjafar á sviði sóttvarna á Norðurlöndunum.
     Farsóttanefnd, sem í eiga sæti Ólafur Ólafsson landlæknir, formaður, Haraldur Briem, sérfræðingur í smitsjúkdómum, Skúli G. Johnsen borgarlæknir, Ólafur Steingrímsson yfirlæknir, Hrafn Tuliníus prófessor, Sigurður B. Þorsteinsson læknir og Margrét Guðnadóttir prófessor hefur endurskoðað frumvarpið í ljósi umsagna sem bárust við meðferð málsins á Alþingi. Farsóttanefnd hefur gert tillögur um nokkrar breytingar á frumvarpinu. Farsóttanefnd, að Margréti Guðnadóttur undanskilinni, er sammála frumvarpinu í þeim búningi sem það er nú lagt fram. Fylgiskjölin sem birtust með frumvarpinu er það var lagt fram á 112. löggjafarþingi eru ekki endurbirt.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Hér eru skilgreindar þær tvenns konar sóttvarnaráðstafanir sem grípa skal til. Annars vegar eru hinar almennu sóttvarnaráðstafanir, en það eru ráðstafanir sem ávallt skal beita gegn smitsjúkdómum. Hins vegar eru hinar opinberu sóttvarnaráðstafanir sem beita skal vegna hættulegra smitsjúkdóma í þremur tilvikum:
     Í fyrsta lagi þegar hætta er á að farsóttir berist til eða frá landinu.
     Í öðru lagi þegar hætta er á útbreiðslu farsóttar innan lands.
     Í þriðja lagi þegar smitaður einstaklingur skapar hættu á útbreiðslu smits með framferði sínu.

Um 2. gr.


     Rétt þykir að skilgreina í lögunum við hvað er átt þegar talað er um smitsjúkdóma. Með smitsjúkdómum er átt við sjúkdóma sm orsakast af örverum (bakteríum, sveppum, veirum eða öðrum frumstæðum lífverum) og sníkjudýrum (einfrumungum, ormum, lúsum og flóm) sem geta fjölgað sér, lifað á eða í hýsli og valdið sjúkdómi og borið manna á milli eða frá dýrum til manna. Margar örverur geta framleitt eiturefni (toxín) sem valdið geta sjúkdómum í mönnum, t.d. með mengun matvæla, jafnvel þótt örverurnar sem slíkar nái ekki að sýkja menn. Slíkar eitranir eru alla jafna taldar til smitsjúkdóma og því tilgreindar hér í skilgreiningu frumvarpsins á smitsjúkdómum.

Um 3. gr.


     Hér er fjallað um gildissviði laganna. Gert er ráð fyrir að þau nái annars vegar til smitsjúkdóma sem valdið geta farsóttum og ógnað almannaheill og hins vegar til annarra alvarlegra næmra sótta. Gert er ráð fyrir að skráningarskyldir verði þeir smitsjúkdómar sem ráðherra ákveður með reglugerð. Tilkynningarskyldir verða þeir skráningarskyldir smitsjúkdómar sem ógnað geta almannaheill. Ráðherra skal ákveða, að fengnum tillögum sóttvarnaráðs, hvaða smitsjúkdómar eru tilkynningarskyldir.
     Tilkynningarskylda felur í sér að skylt verður að tilkynna tafarlaust til heilbrigðisyfirvalda ef grunur er á um að einhver tiltekinna hættulegra smitsjúkdóma hefur fundist eða greinst og geti ógnað almannaheill. Skráningarskylda felur í sér að tilteknar sjúkdómsgreiningar verða skráðar og upplýsingar um fjölda tilfella sendar reglulega til heilbrigðisyfirvalda enda þurfi ekki í slíkum tilvikum að grípa til tafarlausra ráðstafana.

Um 4. gr.


     Í samræmi við áratuga hefð gerir frumvarpið ráð fyrir að ábyrgð á framkvæmd sóttvarna sé hjá embætti landlæknis undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra.
     Samkvæmt gildandi sóttvarnalögum eru héraðslæknar sóttvarnalæknar. Í ljósi gerbreyttra samgangna þykir óþarfi að hafa fleiri en einn sóttvarnalækni til að sinna sóttvörnum í landinu öllu. Eðlilegt er að slíkur læknir hafi aðsetur hjá embætti landlæknis. Læknir þessi skal hafa þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra. Í starfi sínu skal hann hafa samvinnu við héraðslækna, heilsugæslulækna, sjúkrahús og rannsóknastofur auk heilbrigðisnefnda, eftir því sem við á.
     Til að tryggja nægileg tengsl sóttvarnalæknis út í læknishéruðin þykir einnig rétt að héraðslæknar beri áfram ábyrgð á sóttvörnum undir stjórn sóttvarnalæknis. Samvinna sóttvarnalæknis og héraðslækna um sóttvarnir er mjög mikilvæg þar sem héraðslæknar búa yfir staðarþekkingu sem nauðsynleg er þegar taka þarf ákvörðun um aðgerðir.
     Ekki tekst alltaf nauðsynleg samvinna milli sjúklings og læknis um nauðsynlegar aðgerðir vegna sóttvarna. Í lögum um smitsjúkdóma hefur frá upphafi verið að finna ákvæði þess efnis að heilbrigðisyfirvöld skuli njóta liðsinnis lögregluyfirvalda sé þess þörf. Hér er einnig slíkt heimildarákvæði.

Um 5. gr.


     Hér er verksvið sóttvarnalæknis skilgreint nánar. Hann skal sjá um að skipuleggja og samræma sóttvarnir um land allt, fylgjast með útbreiðslu smitsjúkdóma og koma upplýsingum þar að lútandi áleiðis til lækna og annarra sem á slíkum upplýsingum þurfa að halda. Þá skal hann vera læknum og öðrum sem við sóttvarnir fást til ráðgjafar og hafa umsjón með forvarnastarfi á þessu sviði.

Um 6. gr.


     Rétt þykir að setja á laggirnar sjö manna ráð, sóttvarnaráð, til að móta stefnu í málum sóttvarna og vera heilbrigðisyfirvöldum til ráðgjafar um aðgerðir til varnar útbreiðslu smitsjúkdóma.
     Árið 1986 skipaði heilbrigðisráðherra samstarfs - og ráðgjafarnefnd, farsóttanefnd, sem fékk það hlutverk að fylgjast með farsóttum og gera tillögur um aðgerðir til að hindra útbreiðslu þeirra. Gert er ráð fyrir að starf þessarar nefndar leggist niður ef ákvæði frumvarpsins um sérstakt sóttvarnaráð nær fram að ganga.
     Gert er ráð fyrir að sóttvarnaráð verði skipað sjö mönnum, starfandi embættislækni, sérfræðingum á sviði smitsjúkdómalækninga, bakteríufræði, veirufræði, kynsjúkdóma, faraldsfræði/heilbrigðisfræði auk landlæknis sem jafnframt verður formaður ráðsins.
     Ráðið skal hafa aðsetur hjá embætti landlæknis og skal sóttvarnalæknir vera ritari þess.

Um 7. gr.


     Orðalag greinarinnar er í samræmi við ákvæði í gildandi löggjöf um þessi efni.

Um 8. gr.


     Ákvæðið er í samræmi við fyrirmæli í gildandi lögum. Gert er ráð fyrir að læknir, sem kemst að því í starfi sínu að einstaklingur sem smitast hefur af smitsjúkdómi sem er tilkynningarskyldur og hefur ekki hirt um að leita læknis, skuli hann þegar í stað vekja athygli héraðslæknis eða sóttvarnalæknis á því.

Um 9. gr.


     Smitsjúkdóma skal tilkynna á þar til gerðum eyðublöðum til héraðslæknis eða sóttvarnalæknis. Þessi skylda hvílir jafnt á læknum sem og forstöðumönnum rannsóknastofa, sjúkradeilda og annarra heilbrigðisstofnana.
     Gert er ráð fyrir að heilbrigðisráðherra setji, að fengnum tillögum sóttvarnaráðs, reglugerð um fyrirkomulag skráninga og tilkynninga skv. 2. mgr. 3. gr. og 1. og 2. mgr. þessarar greinar. Halda skal sérstaka smitsjúkdómaskrá, sbr. 2. tölul. 5. gr., sem skal taka til skráningarskyldra smitsjúkdóma og einnig skráningar ónæmisaðgerða og mótefnamælinga skráningarskyldra sjúkdóma, bæði jákvæðar og neikvæðar upplýsingar.
     Þá er gert ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð um starfsemi rannsóknastofa sem greini sjúkdóma er lög þessi taka til og um eftirlit með þeim.

Um 10. gr.


     Hér eru ákvæði um skyldu lækna til að tilkynna héraðslækni eða sóttvarnalækni ef þeir komast að því í starfi sínu að smitaður einstaklingur fylgi ekki fyrirmælum um hegðun. Sambærilegt ákvæði er að finna í gildandi lagaákvæðum um sóttvarnir.

Um 11. gr.


     Heilbrigðisfulltrúar og formenn heilbrigðisnefnda samkvæmt lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, skulu tilkynna viðkomandi héraðslækni eða sóttvarnalækni jafnskjótt og þeir hafa orðið varir við hugsanlega smithættu. Sóttvarnalæknir skal gefa heilbrigðisnefndum nauðsynlegar upplýsingar og ráð og hafa yfirumsjón með að til viðeigandi ráðstafana sé gripið. Heilbrigðisnefndir og heilbrigðisfulltrúar skulu aðstoða við sóttvarnir og bera ábyrgð á að gripið sé til viðeigandi ráðstafana ef hætta er á að dýr, matvæli, vatn, skolplagnir, loftræsting eða annað í umhverfinu dreifi eða geti dreift smitnæmum sjúkdómum.

Um 12. gr.


     Hér er mælt fyrir um viðbrögð sóttvarnalæknis ef tilkynningar benda til að farsótt sé í uppsiglingu. Í því tilviki skal hann þegar í stað gera heilbrigðisráðherra viðvart. Ráðherra ákveður, að tillögu Sóttvarnaráðs, hvort grípa skuli til opinberra sóttvarnaráðstafanna. Þær opinberu sóttvarnaráðstafanir, sem ráðherra getur gripið til, eru hinar sömu og gildandi lög gera ráð fyrir. Jafnframt er gert ráð fyrir að sóttvarnalæknir eða héraðslæknar geti beitt slíkum vörnum til bráðabirgða ef þeir telja hvers konar töf hættulega en gera skulu þeir ráðherra jafnskjótt kunnar ráðstafanir sínar.

Um 13. gr.


     Ísland gerðist aðili að sóttvarnasamningi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar árið 1952. Gildandi sóttvarnareglugerð nr. 229/1971 hefur að geyma ýmis ákvæði í samræmi við þann samning. Rétt þykir að hafa í þessu frumvarpi almennt ákvæði sem heimili að setja reglugerð um sóttvarnaráðstafanir sem grípa má til vegna smithættu og eru í samræmi við þá alþjóðasamninga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem Ísland er aðili að.

Um 14. gr.


     Hér er lýst þeim tilvikum sem talið er að réttlæti það að grípa til nauðsynlegra aðgerða án samþykkis einstaklings. Á það er hins vegar lögð áhersla að aðgerðir af þessu tagi skulu ætíð vera neyðarúrræði, þ.e. að reynt sé til þrautar að ná samvinnu við sjúkling. Rétt þykir að ákvörðunum um aðgerðir, sem teljast nauðsynlegar af þessum ástæðum, sé hægt að áfrýja til ráðherra án þess þó að slík áfrýjun fresti framkvæmd.

Um 15. gr.


     Hér er fjallað nánar um einangrun smitbera á sjúkrahúsi eða annars staðar. Samkvæmt heimild 3. mgr. 13. gr. lögræðislaga, nr. 68/1984, má ekki svipta mann frelsi gegn vilja sínum nema hann sé haldinn alvarlegum geðsjúkdómi, ofnautn áfengis eða ávana - og fíkniefna. Slík frelsisskerðing má þó ekki standa lengur en í 2 sólarhringa, nema til komi samþykki dómsmálaráðuneytisins. Ef frelsisskerðing á að vara lengur en 15 daga skal gera kröfu fyrir dómi um sjálfræðissviptingu, sbr. 19. gr. lögræðislaga.
     Talið er eðlilegt að þessum heimildum til frelsisskerðingar megi einnig beita í þeim tilvikum er maður er haldinn smitsjúkdómi fellst ekki á að fylgja reglum um meðferð og umgengni eða rökstuddur grunur er um að hann hafi ekki fylgt slíkum reglum. Einangrun yrði ýmist á sjúkrahúsi eða með öðrum hætti.

Um 16. gr.


     Rétt þykir að setja í sóttvarnalög ákvæði þess efnis að starfrækja skuli göngudeildir vegna tilkynningarskyldra smitsjúkdóma. Rétt þykir einnig að heilbrigðisráðherra ákveði á hvaða sjúkrahúsum skuli vera aðstaða til einangrunar vegna sóttvarna. Þá þykir og rétt að ráðherra ákveði hvaða rannsóknastofur ábyrgist greiningu sýna úr einstaklingum sem grunaðir eru um smit.

Um 17. gr.


     Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 18. gr.


     Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 19. gr.


     Í öllum gildandi lögum á þessu sviði eru sérstök refsiákvæði sem gilda nema þyngri refsing samkvæmt öðrum lögum liggi við broti. Rétt þykir hins vegar að vísa um refsingu vegna brota á lögum þessum einvörðungu til ákvæða almennra hegningarlaga og læknalaga.

Um 20. gr.


     Greinin skýrir sig sjálf. Rétt er þó að benda á að gildistaka frumvarpsins hefur í för með sér allnokkra lagahreinsun. Óhætt þykir að fella úr gildi lög um hundahald og varnir gegn sullaveiki, sem og lög um eyðing á rottum, þar sem í gildandi lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit er að finna ákvæði um hvoru tveggja.

Um fylgiskjal.


Markmið.


    
Skráning og tilkynning smitsjúkdóma með reglubundnum og kerfisbundnum hætti þjónar þeim tilgangi að afla upplýsinga um atburðarás þeirra á hverjum tíma þannig að unnt sé að skipuleggja og grípa til varnaraðgerða gegn þeim og til þess að hægt sé að fylgjast með árangri ónæmisaðgerða og annarra forvarna gegn smitsjúkdómum. Upplýsingaöflunin hefur einnig þýðingu við að fylgjast með langtímabreytingum á nýgengi og algengi smitsjúkdóma.

Forsendur framkvæmdar.


    
Nauðsynlegt er að einungis mikilvægir smitsjúkdómar séu skráðir og tilkynntir og að slíkar aðgerðir séu skilvirkar. Skráningar og tilkynningarformið þarf að vera eins einfalt og mögulegt er og niðurstöður um útbreiðslu smitsjúkdóma þurfa að berast læknum með reglubundnum og skýrum hætti þannig að þær nýtist í daglegu starfi til sóttvarna og til fróðleiks.

Aðferð.


    
Öflun upplýsinga um útbreiðslu smitsjúkdóma getur farið fram með tvennum hætti. Annars vegar með skráningu, þ.e. talningu á fjölda smitaðra án persónuauðkenna og hins vegar með tilkynningu, þ.e. persónuauðkennum hins smitaða með upplýsingum um smitleiðir.
     Tilgangur skráningar um heildarfjölda smitaðra eintakinga án persónuupplýsinga er sá að fá faraldsfræðilega yfirsýn yfir þýðingarmikla smitsjúkdóma þar sem það hefur ekki hagnýta þýðingu að þekkja til einstaklinganna við sóttvarnir.
     Tilgangur tilkynningar um smitsjúkdóm með persónueinkennum hins smitaða er sá að hindra útbreiðslu smits með aðgerðum sem beinast að hinum smitaða, t.d. með einangrun, meðferð og rakningu smits milli einstaklinga eða frá menguðum matvælum, vatni eða öðrum efnum til einstaklinga. Til þess að fullnægja þessum skilyrðum verða að fylgja tilkynningunni upplýsingar um líklegan smitunarstað og smitunartíma og einkenni til að tengja smitaða einstaklinga með faraldsfræðilegum hætti og meta áhrif smitsins.

Alþjóðlegar skuldbindingar.


    
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin samþykkti árið 1969 alþjóðlegar heilbrigðisreglur (International Health Regulations) með breytingum sem tóku gildi 1973 og aftur 1981. Hefur Ísland skuldbundið sig til að fylgja þeim án fyrirvara. Í reglugerðinni eru tilgreindir eftirtaldir sjúkdómar sem lúta tilkynningarskyldu til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar:
    
  
     svarti dauði,
    
  
     kólera og
    
  
     gulusótt (febris flava).

Sjúkdómar sem skrá skal án persónueinkenna.


    
Í frumvarpi til sóttvarnalaga er gert ráð fyrir því að sett verði reglugerð yfir skráningaskylda smitsjúkdóma. Í fylgiskjali er tillaga að lista yfir skráningarskylda sjúkdóma. Þar eru taldir smitsjúkdómar sem ástæða er til að fylgjast með, t.d. til þess að meta árangur ónæmisaðgerða. Þar er einnig að finna ýmsa sjúkdóma sem ekki eru landlægir á Íslandi en gætu borist til landsins og náð útbreiðslu hér. Sumir sjúkdómar geta augljóslega ekki náð að breiðast út hérlendis, eins og t.d. malaría, en mikilsvert er að fá upplýsingar um gagnsemi forvarnaaðgerða gegn slíkum sjúkdómum meðal ferðalanga.

Sjúkdómar sem tilkynna skal einstaklingsbundið.


    
Í frumvarpi til sóttvarnalaga er gert ráð fyrir að ráðherra ákveði, að fengnum tillögum sóttvarnaráðs, hvaða smitsjúkdómar eru tilkynningarskyldir. Hugmyndin er að smitsjúkdómar, sem náð geta mikilli útbreiðslu í samfélaginu og jafnframt ógnað almannaheill, og þar sem vitneskja um smitaðan einstaking hafi þýðingu við upprætingu smits, skulu tilkynntir. Í þessum flokki er einnig gert ráð fyrir að alvarlegir smitsjúkdómar, sem ekki munu ná mikilli útbreiðslu, verði tilkynntir ef ekki er hægt að hindra útbreiðslu þeirra með öðrum hætti en að þekkja til smitaðra einstaklinga.
     Þegar um er að ræða sjúkdóma þar sem persónulegar upplýsingar eru sérstaklega viðkvæmar eins og við samræðis - eða kynsjúkdóma þarf meðhöndlandi læknir að afla sér þeirra til að geta rakið smit. Til þess að rjúfa ekki trúnað í slíkum tilvikum þarf að tilkynna slíka sjúkdóma til sóttvarnalæknis með hluta nafnleyndar (semianonymt) þannig að einstaklingur þekkist ekki, en jafnframt verði komist hjá tvískráningu eins og hægt er. Meðhöndlandi læknir tilkynnir hins vegar sjúkdóminn með nauðsynlegum persónuauðkennum til sóttvarnalæknis ef sjúklingur fylgir ekki fyrirmælum eins og lögin kveða á um. Í fylgiskjali er tillaga að lista yfir sjúkdóma sem vænta má að yrðu tilkynningarskyldir.
     Að lokum eru í fylgiskjalinu þeir sjúkdómar skáletraðir sem Íslendingar eru skuldbundnir til að tilkynna til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
     Það eru nýmæli í sóttvarnalögunum að ráðherra geti fjölgað eða fækkað tilkynningarskyldum sjúkdómum. Lögin sem slík nefna enga ákveðna smitsjúkdóma, þau kveða aðeins á um hvaða almenn skilyrði smitsjúkdómar þurfi að uppfylla til að teljast tilkynningarskyldir. Reynslan sýnir að smitsjúkdómar taka breytingum þannig að ástæða kann að vera til að fella burt tilkynningarskyldu eða nýr skaðvænlegur smitsjúkdómur birtist sem ástæða er til að tilkynna.