Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 451 . mál.


Ed.

850. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 9/1984, um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar manna í atvinnurekstri, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990 91.)



1. gr.


     Í stað fjárhæðanna „115.000 kr.“ og „230.000 kr.“ í 2. gr. laganna komi: 86.000 kr. og 172.000 kr.

2. gr.


     10. gr. laganna orðist svo:
     Einstaklingar, sem kaupa hlutabréf í innlendum hlutafélögum er fullnægja skilyrðum 11. gr., geta dregið kaupverð þeirra hlutabréfa frá skattskyldum tekjum sínum innan þeirra marka sem um getur í 2. gr. og að svo miklu leyti sem um er að ræða aukningu á fjárfestingu í atvinnurekstri samkvæmt lögum þessum.
     Frádráttur skv. 1. mgr. vegna hlutabréfakaupa miðast við kaup á hlutabréfum í innlendum hlutafélögum, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 75/1981, og er háður því skilyrði að maður eigi viðkomandi hlutabréf í a.m.k. tvö ár. Selji hann bréfin innan þess tíma færist nýttur frádráttur til tekna á söluári viðkomandi hlutabréfa. Skal hann framreiknaður samkvæmt ákvæðum 26. gr. laga nr. 75/1981 frá því ári þegar hann var dreginn frá tekjum til söluárs. Ekki skal þó beita ákvæðum um tekjufærslu frádráttar ef maður kaupir önnur hlutabréf í innlendu hlutafélagi staðfestu af ríkisskattstjóra í stað hinna seldu innan 15 daga frá söludegi þeirra og kaupverð keyptra hlutabréfa nemur a.m.k. sömu fjárhæð og hinna seldu. Sé kaupverðið lægra skulu ákvæði 2. og 3. málsl. eiga við um mismuninn.
     Fjárhæð umfram frádráttarmörk, sem lögð er í hlutafjáraukningu í hlutafélagi eða lögð til hlutafjárkaupa við stofnun hlutafélags, er heimilt að flytja milli ára og nýta á næstu fimm árum. Ónýtt frádráttarheimild tekur hækkun samkvæmt verðbreytingarstuðli, sbr. 26. gr. laga nr. 75/1981.

3. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 1992.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


     Frumvarp þetta er flutt samhliða frumvarpi til laga um breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Varðar frumvarpið árlega fjárhæð frádráttar sem mönnum heimilast vegna fjárfestingar í atvinnurekstri.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Hér er lagt til að hámark frádráttar vegna fjárfestingar samkvæmt lögum þessum lækki. Um er að ræða grunnfjárhæðir sem taka breytingum samkvæmt skattvísitölu árlega. Ef ákvæði þessarar greinar hefðu verið lögfest við álagningu í ár næmi frádráttur við álagningu í ár, vegna fjárfestingar á árinu 1990, 94.170 kr. hjá einstaklingi og 188.340 kr. hjá hjónum í stað núgildandi frádrátta sem eru 125.925 kr. hjá einstaklingi og 251.850 kr. hjá hjónum.

Um 2. gr.


     Hér er um breytingu að ræða sem er sambærileg við breytingu sem lögð er til í fyrirliggjandi frumvarpi til breytinga á 4. tölul. B - liðar 30. gr. laga nr. 75/1981 og leiðir raunar af henni. Vísast í athugasemdir sem fylgja því lagafrumvarpi.
     Framsetning greinarinnar er gerð markvissari en í núgildandi ákvæðum og orðalag gert skýrara.

Um 3. gr.


     Ekki er gert ráð fyrir að breyting, sem af lögfestingu 1. gr. frumvarpsins leiðir, taki gildi fyrr en við álagningu gjalda á árinu 1992 vegna fjárfestinga á árinu 1991.