Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill nú benda á það að samkvæmt þingsköpum ber að kjósa í fastanefndir þingsins á 2. fundi og þess vegna er einungis verið að leita þessara afbrigða að það er ekki þar með sagt að það eigi að fresta þessu til lengri tíma. Það má alveg eins tala um að það sé verið að fresta kosningu í fastanefndir til lengri eða skemmri tíma. Ég bið hv. þm. að hafa það í huga. Það er einungis verið að uppfylla skyldur þingskapa með þessari frestun og leita þessara afbrigða í dag.