Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Frú forseti. Ég vil aðeins með örfáum orðum svara spurningum hv. 1. þm. Austurl. varðandi orð sem féllu af minni hálfu á aðalfundi Vinnuveitendasambands Íslands þar sem ég mun hafa orðað það eitthvað á þá lund að aðild að Evrópubandalaginu kæmi ekki til greina að svo stöddu. Ég átta mig á því að það er hárrétt hjá hv. þm. að þessi orð má misskilja. Fyrir mér vakti ekki annað en það að gefa ekki út ávísun á eilífðina, en til að taka af öll tvímæli, þá vil ég segja að það er ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar svo vel ég fái séð, hvorki í bráð eða lengd, að hún fari að fjalla um beina aðild að Evrópubandalaginu.