Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Áður en lengra er haldið vill forseti upplýsa um fundahöldin í dag þar sem hefðbundnir þingflokksfundir hefðu átt að hefjast núna kl. 4, en þessum fundi verður haldið áfram til kl. 5 í dag. Ef ekki tekst að ljúka þessari umræðu, þá verður henni væntanlega fram haldið á mánudaginn en á mánudag verður skýrsla um ríkisfjármálin tekin til umræðu.
Þetta vildi forseti upplýsa á þessari stundu.