Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill minna á að fyrsta dagskrármálið, ríkisfjármálin, sem hæstv. fjmrh. á eftir að mæla fyrir er ekki komið á dagskrá. Forseti gerir því ráð fyrir að hæstv. fjmrh. svari ekki þessum spurningum fyrr en undir þeim dagskrárlið. Um leið vill forseti minna á að nú er til umræðu stefnuræða forsrh. og meiningin að reyna að ljúka henni áður en ríkisfjármálin verða tekin á dagskrá.