Forseti (Björn Bjarnason)
:
Vegna þeirrar fyrirspurnar sem fram hefur komið til forseta og ítrekuð hefur verið hér í umræðunum vill forseti, sá sem hér situr, lýsa því yfir að forsætisnefnd þingsins hefur að sjálfsögðu ekki tekið afstöðu í þessu máli. Samkvæmt þingræðisreglunni eru það alþingismenn sjálfir sem koma fram gagnvart ráðherrum en ekki forsætisnefndin sem slík.