Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

69. fundur
Föstudaginn 17. janúar 1992, kl. 16:39:00 (2843)

     Halldór Ásgrímsson (andsvar) :
     Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa leiðréttingu. Mér var ekki ljóst að þetta hefði verið svona líka í rússneska keisaradæminu en ég hef betri þekkingu á hinu kerfinu því að meðan ég var ráðherra í ríkisstjórn þá kom ég þar tvívegis eða þrívegis og sá nokkurn veginn hvernig það virkaði og mér leist ekki á og mér líst heldur ekki á þessa nýju tilsjónarmenn núv. ríkisstjórnar þótt hún starfi ekki undir merkjum sósíalismans.