Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

69. fundur
Föstudaginn 17. janúar 1992, kl. 17:40:00 (2845)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
     Herra forseti. Nú hallar degi og nokkuð óljóst hversu lengi er ætlunin að halda hér áfram fundi. Þannig stendur á að nú styttist mjög í að ég komist á mælendaskrá en jafnframt minnugur þess að ég er hálfnaður með ræðu í ágætu máli, það hefur færst á milli ára, þá þætti mér ekki gæfulegt að hafa nú tvær ræðum í miðjum klíðum ef svo mætti komast að orði og vildi nú gjarnan fá það upplýst hjá hæstv. forseta hvenær hann hyggst slíta fundi hér í deildinni.