Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 19:50:00 (3023)

     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Það eiga sér fleiri fortíð en Alþb. Ég vísa til afstöðu Sjálfstfl. til þessara laga þegar þau voru sett. Og ef flokkurinn hagar sér í einhverju samræmi við þá afstöðu þá legði hann til að þessi lög yrðu numin úr gildi. Það gerir flokkurinn ekki og það dugar ekki hæstv. sjútvrh. að vitna til afstöðu aftur í tímann þegar hann reynir að rökstyðja gerðir sínar fram í tímann. Til þess eru engin efni, a.m.k. ekki hvað mig varðar.