Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

73. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 21:58:00 (3165)

     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
     Um leið og ég þakka hv. þm. fyrir að lýsa fortíðarsögu sinni með þeim hætti sem hann hér gerði vil ég enn fremur þakka honum fyrir þá ágætu samstöðu sem milli okkar myndaðist um það á sínum tíma hvernig ætti að skattleggja hlutafé og arð því sú samvinna var með ágætum og það hefur hv. þm. stundum sagt áður þegar það hefur þótt betur henta en nú.