Varamaður tekur þingsæti

75. fundur
Fimmtudaginn 06. febrúar 1992, kl. 10:35:00 (3268)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dagsett 29. jan. 1992:
    ,,Þar sem Kristín Ástgeirsdóttir, 18. þm. Reykv., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda, leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjavíkurkjördæmi, Guðrún J. Halldórsdóttir, forstöðukona Námsflokkanna í Reykjavík, taki sæti á Alþingi í forföllum hennar.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Anna Ólafsdóttir Björnsson,

formaður þingflokks Samtaka um kvennalista.``


    Kjörbréf Guðrúnar J. Halldórsdóttur forstöðukonu hefur þegar verið rannsakað og samþykkt.
    Guðrún J. Halldórsdóttir hefur áður átt sæti á Alþingi, raunar fast sæti, og er boðin velkomin til starfa.