Lokun fæðingardeilda

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 14:06:00 (3352)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Jarðgöng fyrir vestan hafa áður borið á góma hér í þingsölum. Eins og ég hef marglýst yfir þá stendur ekki til að fresta því að göngin opnist þannig að umferð geti farið um þau þó svo að frágangur eða einstakir verkþættir dragist um eitt sumar eða svo. Viðræður hafa staðið yfir milli verktaka og vegamálastjóra og mér er ekki kunnugt um að þeim sé lokið.
    Spurt er um vegsvalir við Óshlíð. Eins og hv. þm. er kunnugt þá liggur þáltill. um endurskoðun vegáætlunar fyrir þinginu. Það verður mælt fyrir henni eftir helgi og síðan verður unnið eftir venjulegum hætti með þingmönnum kjördæma og vegamálastjóra um hvernig rétt sé að ná fram þeim sparnaði sem ákveðinn hefur verið með fjárlögum og það verður ekki breyting á þeim vinnubrögðum. Þetta mun sem sagt skýrast í þessum mánuði.