Lánasjóður íslenskra námsmanna

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 16:25:00 (3376)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Nú hefur verið gert samkomulag um það að taka hér fyrir frv. samkvæmt dagskrá. Það er frv. um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Gert hefur verið samkomulag um það milli þingflokkanna að þessi umræða verði með þeim hætti í dag að einn fulltrúi hvers þingflokks tali, síðan verði þeirri umræðu frestað. Er þetta gert af tillitssemi vegna fundar sem mun vera hér í nágrenninu og sem forseta skilst að hv. þm. hafi áhuga á að mæta á. Þess vegna biður forseti um að það fáist að halda hér áfram fundi með þeim hætti sem samið hefur verið um.