Lánasjóður íslenskra námsmanna

79. fundur
Miðvikudaginn 12. febrúar 1992, kl. 14:21:00 (3408)

     Steingrímur Hermannsson (andsvar) :
    Herra forseti. Að sjálfsögðu hefur hæstv. menntmrh. tekið þátt í störfum Alþingis og greitt atkvæði með þeim tillögum sem þar hafa komið fram. Það sem ég vildi að kæmi hér skýrt fram er að tillögurnar eru tillögur hæstv. menntmrh. Það eru þær. Það eru þær tillögur sem hann hefur lagt fram í ríkisstjórninni, þær tillögur sem fjmrh. flutti hér fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og hæstv. menntmrh. hefur greitt hér atkvæði um sínar eigin tillögur í þessu sambandi og mér þykir vænt um að málin hafa að þessu leyti skýrst.